Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.
Movable Type
knýr þennan vef
Tilkynning
Á morgun, þann 27. janúar, verður málþing um akademískt frelsi í kennslu og rannsóknum, haldið í Háskóla Íslands. Málþingið fer fram í stofu 132, í Öskju, klukkan 13:00. Í frétt Stúdentablaðsins kemur fram að kveikjan að a.m.k. einu erindi á málstefnunni eru "viðbrögð við umræðu sem skapaðist um akademískt frelsi í Háskólanum eftir að félag Vantrúarmanna kærði umfjöllun Bjarna Randvers Sigurvinssonar um félagið í kennslustund við guðfræðildeild háskólans".
Þetta gæti orðið fróðlegt málþing og við hvetjum áhugamenn að mæta, bæði háskólafólk og aðra.
Vantrú óskar landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla, árs og friðar. Hafið það gott um hátíðirnar og verið góð hvert við annað.
Ef þið verðið búin að lesa jólabækurnar, þá er helling af skemmtilegum jólagreinum að finna á Vantrú.
Lesa Fundaröð innanríkisráðuneytisins um mannréttindamálFyrsti fundur í fundaröð innanríkisráðuneytisins um mannréttindamál verður haldinn í Hörpunni í Reykjavík föstudaginn 9. desember klukkan 11.30 til 14.15. Tilefni þessa fyrsta fundar er alþjóðlegi mannréttindadagurinn, 10. desember, en Sameinuðu þjóðirnar hvetja aðildarlönd til að taka mannréttindamál til sérstakrar umfjöllunar þann dag.
Bókin Andlegt sjálfstæði eftir þá Robert G. Ingersoll og Pjetur G. Guðmundsson sem gefin var út fyrir um þremur árum er nú aðgengileg á Rafbókavefnum.
Það er óhætt að mæla með bókinni sem er bæði fyndin og fræðandi. Innsæi þessa gömlu trúleysingja á enn mikið erindi til okkar í dag.
[Viðburður@Facebook] | [Heimasíða Siðmenntar]
Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, efnir til menningarhátíðar í tilefni 20 ár afmælis félagsins (sem reyndar var á síðasta ári en betra seint en aldrei!) Húmanismi (manngildisstefna) er jákvæð lífsskoðun þar sem menning skiptir miklu máli og endurspeglast í blandaðri dagskrá tónlistar og ljóða menningarhátíðarinnar.
Lesa Menningarhátíð Siðmenntar[Viðburðurinn@facebook] | [EÁK@Facebook]
Er eitthvað dularfullt við pýramídana eða eru þeir e.t.v. bara gríðarstórar grjóthrúgur? Reynir Harðarson (formaður Vantrúar) fræðir fundargesti um sögu þeirra og misgáfulegar getgátur um byggingu þeirra, ýmis fyrirbæri í þeim og í kringum þá o.s.frv.
Lesa Efast á kránni - 6. septemberVefritið Pressan fjallar í dag enn og aftur um erindi Vantrúar til Siðanefndar Háskóla Íslands vegna kennslu Bjarna Randvers Sigurvinssonar um félagið.
Það vekur furðu Vantrúar að fréttamenn Pressunnar hafa aldrei haft samband við félagið en ítrekað rætt við aðra aðila málsins.
Við bendum á að hægt er að hafa samband við Vantrú með því að senda bréf á ritstjorn@vantru.is. Aukinheldur eru allir helstu forkólfar Vantrúar skráðir á já.is.
Sjá einnig:
Að gefnu tilefni vill Vantrú taka fram að nafnlausi penninn Eðvald Eðvaldsson, sem sent hefur nokkrum prestum tölvupósta undanfarið, tengist Vantrú ekki á nokkurn hátt. Skoðanir Vantrúar koma fram á vefriti þessu eða í tilkynningum frá stjórn félagsins.
Ýmislegt bendir til að Eðvald sé prestur innan ríkiskirkjunnar eða þekki a.m.k. vel til mála hennar. Það er ómaklegt af þeim sem stendur á bak við þessi bréf að blanda Vantrú í innanhúsdeilur. Greinilega er það gert til að ala á fordómum, hvað gæti verið verra en hrós frá Vantrú?
Allt sæmilega óbrjálað fólk áttar sig á því að séra Sigríður Guðmarsdóttir ber ekki ábyrgð á óförum ríkiskirkjunnar.
Fyrir einu og hálfu ári birti Vantrú ágætt viðtal við Sigríði.
Sökum óviðráðanlega aðstæðna hefur fyrirlestri Ann Druyans verið aflýst. Tekið af heimasíðu Siðmenntar:
Eldgosið í Grímsvötnum hefur haft þau áhrif á millilandaflug að ekkert verður af fyrirlestri Ann Druyan 26. maí. Ann Druyan, sem nú er stödd í Bandaríkjunum, vonast til að geta komið síðar til Íslands.#