Íslam


Vangaveltur um Allir teikna Múhameð daginn

Nú eru nokkrir daga liðnir frá Allir teikna Múhameð deginum og ekki úr vegi að velta aðeins fyrir sér umræðunni sem skapaðist í framhaldi af deginum góða. Viðbrögðin voru vitaskuld af ýmsum toga og á meðan sumir kættust þá reiddust aðrir.

Lesa Vangaveltur um Allir teikna Múhameð daginn
Kristinn Theódórsson | Viðbrögð (14)

Allir teikna Múhameð dagurinn

Guðir

Í dag 20. maí er Allir teikna Múhameð dagurinn. Í tilefni hans höfum við í Vantrú eytt drjúgum tíma í að draga upp mynd af Múhameð, en til að gæta sanngirni höfum við líka teiknað Jesú, Bahá'u'lláh, Búdda og til gamans, Richard Dawkins.*

Lesa Allir teikna Múhameð dagurinn
Ritstjórn | Viðbrögð (39)

Guðlast og málfrelsi

Muh-hund.jpgNýverið hélt sænski teiknarinn Lars Vilks fyrirlestur um málfrelsi og sýndi glærur. Hann er einn af þeim sem teiknað hafa myndir af Múhameð spámanni, múslímum til mikils ergelsis. Múslímskir áhorfendur réðust að honum og reyndu að berja hann á meðan nokkrir aðrir í salnum æptu ALLAH AKHBAR eins og múslímum virðist mörgum þykja viðeigandi þegar verið er að misþyrma fólki.

Nokkrum dögum síðar var eldur borinn að heimili Lars Vilks og heimasíða hans yfirtekin. Múslímar eru reiðir við hann, því hann teiknaði móðgandi hundamynd af spámanni þeirra og al-Qaeda tengd samtök hafa boðið 150.000 dollara verðlaun þeim sem myrðir Lars - nánar tiltekið með því að skera hann á háls.

Lesa Guðlast og málfrelsi
Kristinn Theódórsson | Viðbrögð (13)

Guðfræðileg stærðfræði

Í þættinum Okkar á milli, á Rás 1 í morgun var viðtal við Þóreyju Guðmundsdóttur, sóknarprest í Noregi. í viðtalinu sagði Þórey meðal annars þetta:

Einnig er hægt að sækja hljóðskrána.

Séra Þórey Guðmundsdóttir

Núna þegar ég kem aftur [til Noregs] þá er ein fyrsta fréttin sem ég heyri í norska Ríkissjónvarpinu að fjórða hvert sveinbarn í Osló fái nafnið Múhameð. Sem þýðir hvað, eru ekki ca. álíka margar telpur sem fæðast eins og drengir? Er þá um það bil 50% af ungu kynslóðinni í Osló að verða múslimar?

Lesa Guðfræðileg stærðfræði
Ritstjórn | Viðbrögð (10)

Íslam - víti til varnaðar

Allt fram á 18. öld litu múslímar niður á Evrópu sem barbarískt villutrúarsvæði. Íslömsk menning stóð hinni evrópsku langt framar frá því fyrir tíma krossferðanna. Þar sannaðist enda að múslímar höfðu yfirburði á öllum sviðum, þar á meðal hinu hernaðarlega. Einhver besta sönnun þessa er sú staðreynd að flóttamenn fóru aðeins aðra leiðina – austur. Gyðingar fyrst en síðar einnig aðrir sem af trúarlegum eða pólítískum ástæðum þurftu að yfirgefa Evrópu, allt fram á 16. og jafnvel 17. öld.

Á sama tíma fóru múslímar nánast aldrei hina leiðina. Þeir höfðu ekkert út fyrir “hús trúarinnar” að sækja og síst til Evrópu. Í hugum þeirra var útbreiðsla Íslam óhjákvæmileg og sagan hafði ýtt undir þann skilning frekar en hitt.

Lesa Íslam - víti til varnaðar
Brynjólfur Þorvarðarson | Viðbrögð (33)

Bræðralag múslima

Muslim BrotherhoodÍ vor fór ég á Sjöttu Cairo-ráðstefnuna um lýðræði og frið í Mið-Austurlöndum. Hún var um margt athyglisverð. Þar leiddu þeir hópar saman hesta sína, sem eru áfram um lýðræði og frið – eða, öllu heldur, þeir hópar sem mest andæfa þeim sem ógna lýðræði og friði í heimshlutanum. Ógnirnar koma fyrst og fremst frá vestrænni heimsvaldastefnu og austrænum ríkisstjórnum og andófið gegn þeim kemur einkum frá arabískum þjóðernissinnum, sósíalistum og íslamistum. Það voru s.s. þær þrjár fylkingar sem mest bar á á þessari ráðstefnu. Að sönnu athyglisverð blanda.

Ég halla ekki á neinn þótt ég segi að Bræðralag múslima hafi verið mest áberandi á þessari ráðstefnu. Ég hef verið gagnrýndur fyrir að sitja ráðstefnu með helfararafneitandi íslamistum, eins og það geri mig að einum þeirra, þannig að mér er bæði ljúft og skylt að deila því með lesendum Vantrúar, hvernig Bræðralag múslima kom mér fyrir sjónir frá fyrstu hendi.

Lesa Bræðralag múslima
Vésteinn Valgarðsson | Viðbrögð (3)

Í fótspor falsspámanns

Um daginn var sagt frá því að átta ára stúlka í Jemen hafi fengið að skilja frá tuttuguogátta ára eiginmanni sínum. Flestum þykir það eflaust ógeðslegt að það skuli tíðkast að gifta stúlkur svona ungar, en þetta vandamál á sér að einhverju leyti trúarlegar rætur.

Lesa Í fótspor falsspámanns
Hjalti Rúnar Ómarsson | Viðbrögð (8)

Skopmyndamálið

Mynd af Múhaðmeð spámanni Þessi skopmynd af Múhammeð spámanni birtist í þremur stærstu dagblöðum Danmerkur í dag til að ítreka að morðhótanir dugi ekki til að hefta tjáningarfrelsið. Þetta er gert í kjölfar þess að danska lögreglan hafði hendur í hári manna sem áformuðu að myrða Knut Westergaard, höfund myndarinnar.

Vantrú vill sýna samstöðu með þeim sem berjast gegn skerðingu málfrelsisins í nafni guðlasts eða Biblíubókstafs.

Lesa Skopmyndamálið
Ritstjórn | Viðbrögð (4)

Af tvennu illu

Í Evrópu verður vart sífellt meiri núnings kristni og Íslam. Íslamfóbía grasserar á Íslandi og kirkjunnar menn kynda undir henni. Dæmi um það eru þessi orð Karls Sigurbjörnssonar biskups:

Grunnstef okkar samtíðar birta að skammt er öfganna á milli, annars vegar er óheft tæknitrú, tómhyggja og mannhyggja, sem skilgreina alla trú sem hindurvitni, hins vegar hatrömm bókstafshyggja, múslimsk – en líka kristin. –-- Það er augljóst að minni hyggju að valið snýst ekki um trú eða trúleysi heldur um heilbrigða og óheilbrigða trú. Manneskjan er haldin ólæknandi trúhneigð.

Lesa Af tvennu illu
Reynir Harðarson | Viðbrögð (8)

Íslamistar með afslætti

islamistarmedafslaetti.jpg Nýlega hafa tvær bækur um Íslam komið út hér á landi. Fyrir jól kom út bókin Íslamistar og naívistar og í janúar gaf Nýhil út bókina Íslam með afslætti.

Það mætti með dálítilli einföldun segja að bækurnar standi fyrir sitthvora hlið umræðunnar um Íslam, annars vegar hlið þeirra sem hafa efasemdir um ágæti Íslam og útbreiðslu þeirra trúarbragða á vesturlöndum og hins vegar sjónarmið fólks sem finnst umræðan um Íslam einkennast af fordómum og rangfærslum.

Lesa Íslamistar með afslætti
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (7)