Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Endurbætt tillaga Mannréttindaráðs Reykjavíkur

Mannréttindaráð Reykjavíkur sendi frá sér í dag tilkynningu um endurbætta tillögu er varðar samstarf skóla og trú- og lífsskoðunarfélaga sem unnar voru útfrá stefnu Leikskóla- og Menntasviðs um samstarf leik- og grunnskóla við trúar- og lífsskoðunarhópa(.pdf) frá árinu 2007. Tillagan verður send til Velferðar-, Mennta-, Íþrótta- og tómstunaráð Reykjavíkur til frekari umsagnar.

Tillöguna er hægt að lesa hér


Skólastarf í Reykjavík og trúar- og lífsskoðunarmál(.pdf)

Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar var samþykkt árið 2006. Hún kveður á um að íbúum verði ekki mismunað á forsendum kyns, efnahagsstöðu, uppruna, fötlunar, aldurs eða stjórnmálaskoðana. Undanfarin ár hefur markvisst verið unnið að framförum á sviði mannréttinda hjá borginni og hefur verulegur árangur náðst í auknu kynjajafnrétti, í réttindum samkynhneigðra og málefnum innflytjenda. Mannréttindastefnan kveður einnig á um að ekki skuli mismuna borgarbúum eftir lífs- og trúarskoðunum þeirra.

Árið 2007 kom út skýrsla Leikskóla- og Menntasviðs Reykjavíkur um samstarf kirkju og skóla. Í hópi skýrsluhöfunda voru fulltrúar frá öllum hlutaðeigandi aðilum; skólastofnunum borgarinnar, Biskupsstofu og Alþjóðahúsi. Ein af megin niðurstöðum hópsins var sú að móta þyrfti skýrar starfsreglur um samskipti trúar- og lífsskoðunarhópa og skóla Reykjavíkurborgar.

Mannréttindaráð Reykjavíkur leggur því til að eftirfarandi reglur gildi um samskipti leik- og grunnskóla og frístundaheimila borgarinnar við trúar- og lífsskoðunarfélög:

a) Hlutverk skóla borgarinnar er að fræða nemendur um ólík trúarbrögð og lífsskoðanir samkvæmt gildandi aðalnámskrá og námsefni. Bænahald og trúariðkanir af öllum toga eru hluti af trúaruppeldi foreldra en ekki hlutverk borgarstarfsmanna.

b) Trúar- og lífsskoðunarfélög skulu ekki stunda starfsemi innan veggja frístundaheimila, leik- og grunnskóla borgarinnar á skólatíma. Þetta á við allar heimsóknir í trúarlegum tilgangi, skemmtidagskrár eða aðrar kynningar tengdar starfi þeirra, sem og dreifingu á boðandi efni sem tákngripum, fjölfölduðum trúar- og lífsskoðunarritum, auglýsingum, hljóðritum, prentmyndum og kvikmyndum.

c) Skólastjórnendur grunnskóla geta boðið fulltrúum trúar- eða lífsskoðunarhópa að heimsækja kennslustundir í trúarbragðafræði sem lið í fræðslu um trú og lífsskoðanir, og skal heimsóknin þá fara fram undir handleiðslu kennara og vera innan ramma námsefnisins.

d) Heimsóknir á helgi- og samkomustaði trúar- og lífsskoðunarfélaga á skólatíma skulu fyrst hefjast á grunnskólastigi og eiga sér stað undir handleiðslu kennara sem liður í fræðslu um trú og lífsskoðanir og samkvæmt gildandi aðalnámsskrá og námsefni.

e) Þess verði gætt við allar heimsóknir til og frá grunnskóla vegna fræðslu um trú og lífsskoðanir að nemendur séu áhorfendur en ekki þátttakendur í helgisiðum og athöfnum, og að þær séu ekki vettvangur fyrir innrætingu eða dreifingu á boðandi efni.

f) Samþætting húsnæðis og starfsemi stofnana, sem vinna með börn á vegum Reykjavíkurborgar, og starfsemi trúar- og lífsskoðunarhópa verður ekki heimil á skólatíma.

g) Skólayfirvöld beini því til trúar- og lífsskoðunarfélaga að þau skipuleggi fermingarfræðslu og barnastarf með það að leiðarljósi að það hvorki trufli lögbundið skólastarf um skemmri eða lengri tíma, né leiði til mismununar nemenda utan tiltekinna trúar- og lífsskoðunarfélaga.

h) Þær stofnanir borgarinnar sem hafa starfandi áfallaráð tryggi að fagaðilar óbundnir trúar- og lífskoðunarfélögum komi að sálrænum áföllum. Ef sérstakar aðstæður kalla á aðkomu fulltrúa trúar- eða lífskoðunarfélags skal það gert að höfðu samráði skólastjóra við foreldra þeirra nemenda sem áfallahjálparinnar njóta og á ábyrgð viðkomandi. Helgistundir sem tengjast viðbrögðum við áfalli skulu fara fram utan skólatíma.

i) Sígildir söngvar, dansar, leikir og handíðir sem teljast hluti af gamalgrónum hátíðum og frídögum þjóðarinnar halda sínum sess í árstíðabundnum skemmtunum og starfi frístundaheimila, leik- og grunnskóla.

Til grundvallar þessum reglum er sá vilji Mannréttindaráðs að tryggja rétt barna til þátttöku í skólastarfi óháð þeirri trúar- og lífsskoðun sem þau eru alin upp í.

Upplýst fræðsla um kristna trú, trúarbrögð heimsins, lífsskoðanir, siðfræði, heimspeki og íslenska menningu, er mikilvæg í öllu starfi skóla borgarinnar. Trúarleg innræting og boðun tiltekinna lífsskoðana á þar ekki heima. Það er á hendi foreldra að ala börn sín upp í þeirri trúar- og lífsskoðun sem þeir kjósa.

Um það munu starfsmenn Reykjavíkur standa vörð samkvæmt mannréttindastefnu borgarinnar og þeim mannréttindasáttmálum sem Ísland hefur undirgengist.


Sjá einnig:
Vill ekki veita neinum aðila fullt aðgengi að börnum @ visir.is
Trúboðstillaga til umsagnar @ mbl.is
Endurbætt tillaga um reglur gegn trúboði og trúariðkun í opinberum skólum @ skoðun.is
Fundargerðir Mannréttindaráðs Reykjavíkur @ reykjavik.is

Ritstjórn 03.11.2010
Flokkað undir: ( Tilkynning )