Bókin Andlegt sjálfstæði eftir þá Robert G. Ingersoll og Pjetur G. Guðmundsson sem gefin var út fyrir um þremur árum er nú aðgengileg á Rafbókavefnum.
Það er óhætt að mæla með bókinni sem er bæði fyndin og fræðandi. Innsæi þessa gömlu trúleysingja á enn mikið erindi til okkar í dag.
Er hún ekki bara fríkeypis? Ég held að þú smellir bara þar sem stendur Epub / Kindle, þ.e.a.s. velur það sem þú notar og "dánlódar" svo bara.
Eða erum við bæði orðin kölkuð og fattlaus?
Jú, Sigurlaug hittir naglann á höfuðið. Ókeypis niðurhal á þessum tveimur skráarsniðum.
Þess má geta að fjöldi annarra titla er einnig fáanlegur með sama hætti á Rafbókavefnum.
Ég er jú gamall og fattlaus. Minn Kyndill er beintengdur við Amazon, svo ég þarf líklega að hala skránni niður í tölvuna og færa hana á milli. Það er svosem ekkert mál. Raunar má henda Pdf skrám af hverju sem er inn á þann máta. Þakka leiðbeiningarnar.
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Jón Steinar - 09/11/11 12:37 #
Ég get ekki fyrir nokkurn mun séð hvernig á að versla þessa bók á þeim hlekk sem gefinn er upp. Einhver sem getur útskýrt?