Nýöld

Nýöld


Æ, þessar Svika-Lárur

skjalfti.jpg

Við könnumst öll við hina gömlu Láru miðil, konugarminn sem gabbaði samborgara sína í Reykjavík upp úr skónum á fyrri hluta 20. aldar. Hún endað fyrir hæstarétti og saga hennar rataði löngu síðar í bók eftir Pál Ásgeir Ásgeirsson.

Lesa Æ, þessar Svika-Lárur
Birgir Baldursson | Viðbrögð (41)

Það gerist (ekki) í kvöld!

Margir telja sig sjá inn í framtíðina og tala gjarna um að þeim sé sýnt eitthvað (væntanlega að handan). Hvað svo sem veldur þessum ranghugmyndum fólks er það oftar en ekki óhrætt við að skýra heiminum frá þessum þönkum, aðeins til þess að verða uppvíst að því að hafa haft rangt fyrir sér þegar ekkert gengur eftir.

Lesa Það gerist (ekki) í kvöld!
Birgir Baldursson | Viðbrögð (71)

Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun

Nýjasta æðið í óhefðbundnum lækningum er svokölluð höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð. Meðferðin er fólgin í því að sjúklingurinn er látinn liggja á bekk meðan höfuðbeinasérfræðingurinn fer fimum höndum um höfuðbein og spjaldhrygg sjúklingsins. Lykilatriði er að beita ekki miklum þrýstingi heldur nota eins lítinn kraft og unnt er. Höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð á að lækna allt frá lestrarörðugleikum til heila- og mænuskaða. Þar sem ég var nýbúinn að frétta af norskri rannsókn um gagnsleysi höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferðar, vakti þessi starfsemi forvitni mína. Ég kynnti mér málið og komst að óvæntri niðurstöðu.

Lesa Höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun
Teitur Atlason | Viðbrögð (21)

Sölufundur Davids Lynch

David Lynch.jpgÞað eru ekki allir sem geta haft gaman af meistara Lynch. Draumkenndir söguþræðir og absúrar myndir af raunveruleikanum hafa ekki beint gert það sem kaninn kallar „box office“ smellara, en þær hafa þó náð athygli hóps kvikmyndaunnenda. Undirritaður er í þeim hóp. Ég var því að sjálfsögðu ánægður að heyra að hann ætlaði að halda fyrirlestur hér á landi. Ég var hinsvegar ekki eins ánægður þegar ég heyrði að ídolið mitt ætlaði ekki að tala um list sína heldur eitthvað allt annað.

Lesa Sölufundur Davids Lynch
Kristján Lindberg | Viðbrögð (26)

David Lynch í ruglinu

Kvikmyndaleikstjórinn David Lynch er að koma til landsins. Því miður ætlar hann ekki að ræða kvikmyndaferil heldur fyrirbæri sem kallast Transcendental Meditation (TM) og er yfirleitt kallað innhverf íhugun á íslensku. Stofnað var til þessa kerfis af Maharishi Mahesh Yogi (1918-2008).

Til að byrja með er rétt að taka fram að Vantrú er ekki á móti hugleiðslu sem slíkri. Það er örugglega bara gott og róandi. Það er annað sem ergir okkur við þetta fyrirbæri. Það sem okkur líkar illa við eru þær fjarstæðukenndu staðhæfingar sem fylgja þessum kenningum og að kerfið byggir á blindri trú á Maharishi Mahesh Yogi.

Lesa David Lynch í ruglinu
Óli Gneisti Sóleyjarson | Viðbrögð (10)

Hún Stormur

Í þessu myndbandi flytur skemmtikrafturinn Tim Minchin ljóð við undirleik um samtal sitt við stúlku að nafni Storm:

Lesa Hún Stormur
Ritstjórn | Viðbrögð (4)

Af hverju að takmarka sig við smáskammtalækningar?

Hér á Vantrú hefur oft verið fjallað um hómópata og remedíur þeirra (sjá t.d. nýlegan pistil). Hómópatar eru duglegir að halda því á lofti að smáskammtalækningar byggist á „gamalli lækningahefð“ (sem á í þessu tilfelli uppruna sinn að rekja til loka 18. aldar). Hómópatar beita sem sagt tveggja alda gömlum aðferðum á annað fólk, aðferðum sem byggjast á því að þynna blöndur nánast út í hið óendanlega í vatni svo varla stendur eftir ein sameind af upphaflega efninu.

Lesa Af hverju að takmarka sig við smáskammtalækningar?
Sverrir Guðmundsson | Viðbrögð (5)

Höfuð, herðar, hné og tær

Höfundur: Brian Dunning

Komdu hérna til mín: ég ætla að mæla á þér höfuðkúpuna til að finna út greindarvísitölu þína, líta í augu þér til að sjá hvort þú sért veikur, renna fingrunum yfir andlit þitt til að sjá út skapgerð þína og svo ætla ég að skoða hendur þínar til að sjá hvaða framtíð þú átt. Ég ætla að komast að öllu sem vita má um þig með því að skoða líkamleg sérkenni þín.

Flest fólk kannast við höfuðlagsfræði eða þá trú að það að skoða ójöfnurnar á hausnum á þér gefi innsýn í hvaða hlutar heila þíns eru þróaðastir. Höfuðlagsfræði var þróuð í kringum 1800 af þýska lækninum Franz Joseph Gall og það er áhugavert að þá var höfuðlagsfræði það nýjasta og besta innan taugafræðinnar. Gall var meðal fyrstu frumkvöðla til að telja heilann, en ekki hjartað, vera miðverk mannshugans. Ef hann hefði látið þá ályktun duga hefði allt verið í lagi. En, byggt á bestu tiltækri þekkingu þeirra tíma, hafði hann ofureinfaldaða hugmynd um hvernig heilinn gæti virkað. Hann fullyrti að hver einstakur hluti af heilanum öllum, sem hann taldi samsettan úr fjölda aðskildra líffæra, bæri ábyrgð á ákveðnum þætti hugsunar eða hegðunar. Gall og aðrir höfuðlagsfræðingar gerðu, af besta ásetningi, óvandaðar rannsóknir á höfuðbeinum skjólstæðinga og krufðu heila látinna sjúklinga sem höfðu þekkt persónueinkenni. Þannig kortlögðu þeir hvernig litlir hlutar heilans áttu hver fyrir sig að stjórna persónuleikaþáttum einstaklings og þessar skýringarmyndir, af höfuðbeinum skipt í svæði samkvæmt þessu, þekkjast enn í dag.

Lesa Höfuð, herðar, hné og tær
Karl Gunnarsson | Viðbrögð (4)

Hvar eru læknarnir?

Nú er bráðum ár síðan heilbrigðisráðherra fyrrverandi gaf út fyrsta græðararskírteinið og veitti þar með lækningakuklurum langþráða viðurkenningu á rugli sínu og bulli. Þarna var stigið mikið óheillaskref og í raun verið að færa heilbrigðiskerfið að einhverju leyti aftur á miðaldir.

Lesa Hvar eru læknarnir?
Birgir Baldursson | Viðbrögð (42)

Töfrahugsunarháttur

"...töfrahugsunarháttur er "grundvallarþáttur í hugsanaferli barns." --Zusne og Jones

Samkvæmt mannfræðingnum Dr. Philips Stevens Jr., felur hugtakið töfrahugsunarháttur í sér nokkra hluti, þar á meðal þá trú að allir hlutir tengist með kröftum sem hafnir eru yfir bæði efni og anda. Töfrahugsunarháttur gæðir hluti sem teljast táknrænir sérstökum kröftum. Samkvæmt Stevens, "trúir mikill meirihluti mannkyns á að raunveruleg tengsl séu á milli tákns og þess sem það stendur fyrir og að einhver raunveruleg og jafnvel mælanleg orka flæði þar á milli." Hann telur að þetta eigi sér taugafræðilegar skýringar, þótt innihald táknanna sjálfra eigi sér menningarlegar rætur.

Lesa Töfrahugsunarháttur
Björn Darri | Viðbrögð (1)