Útvarp


Okkar á milli

Reynir Harðarson formaður Vantrúar var gestur Ævars Kjartanssonar í þættinum Okkar á milli á Rás 1 í gærmorgun.

Hér er hægt að hlusta á upptöku af samtalinu. Við höfum reyndar klippt tónlistina úr þættinum, svo Stef verði ekki sigað á okkur, en hægt er að nálgast óklipptar upptökur á podcasti þáttarins.

Einnig hægt að sækja hljóðskrána ~31MB.

Ritstjórn | Viðbrögð (6)

Vantrúaráróður á Harmageddon

Fyrir stuttu hittust Þórhallur Heimisson og Matthías Ásgeirsson í útvarpsþættinum Harmageddon og rökræddu um gildi trúar. Það er vissulega mjög víðfeðmt og fjölbreytt viðfangsefni, og náðu þeir félagar ekki að ræða nema brotabrot af því sem mögulegt væri að taka fyrir. Í lok þáttar var því slegið á fast að Þórhallur og Matthías myndu mæta aftur að viku liðinni.

Því miður afboðaði Þórhallur sig viku síðar og tveimur vikum seinna sagðist hann ekki vilja ræða við vantrúarsinna því þeir væru alltaf að níðast á honum á netinu. Þetta eru hrein og klár ósannindi hjá Þórhalli og nokkuð ljóst að hann ætlaði sér aldrei að klára umræðuna.

Matthías mætti því einn til Frosta og Mána og ræddi við þá um félagið Vantrú og trúmál á Íslandi.

Ritstjórn | Viðbrögð (10)

Lífsskoðunaráróður á Harmageddon

Þórhallur Heimisson og Matthías Ásgeirsson hittust í útvarpsþættinum Harmageddon þriðjudaginn 11. nóvember sl. til að ræða aðeins um trú og trúleysi. Það er náttúrulega ykkar, lesenda og hlustenda, að dæma hvor var með betri málflutning, en það er samt hálfvandræðalegt hvað Þórhallur klifar í sífellu á harðræðinu í Sovetríkjunum á árum áður til að reyna ítreka þær ógurlegu hættur sem leynist í því að trúa ekki.

Þeir samþykktu í lokin að hittast aftur að viku liðinni - þ.e. í dag - en því miður þurfti Þórhallur að afboða komu sína sökum aðstæðna en samþykkti þó að mæta í næstu viku, þriðjudaginn 24. nóvember.

Ritstjórn | Viðbrögð (30)

Útvarpsviðtal við sjáanda

Væntanlega eru flestir búnir að fá nóg af Láru Ólafsdóttur, sjáandanum sem spáði stórum skjálfta sem ekki kom. Fjörtíu og átta tímar liðu og ekkert gerðist þannig að okkur er eflaust óhætt að fullyrða að spáin hafi ekki ræst.

Það vakti dálítið umtal þegar í ljós kom að sjáandinn hefur hugsanlega aðra hagsmuni en bara þá að vara fólk við, Lára og eiginmaður hennar reka fyrirtæki sem selur jarðskjálftahús.

Frosti Logason og Þorkell Máni Pétursson sem stjórna þættinum Harmageddon á X977 hringdu Í Láru í fyrradag og ræddu við hana um málið. Það er óhætt að segja að Lára hafi farið á kostum í viðtalinu.

(ef spilari virkar ekki getið þið sótt skrána ~6MB.

Það er rétt sem Lára segir, hún er ekki jafn slæm og fólk sem drepur börn. Það breytir því ekki að það er afar ómerkilegt að hræða fólk eins og Lára gerði. Vonandi er þetta mál ákveðin lexía fyrir þá sem trúðu spádómunum. Staðreyndin er að sjáendur, miðlar og aðrir af því sauðahúsi sjá ekkert annað/betur en við hin.

Ritstjórn | Viðbrögð (48)

Vísindaþátturinn

Á Útvarp Sögu á hverjum þriðjudegi er hinn afar fróðlegi Vísindaþáttur á dagskrá frá klukkan 17:00 til 18:00. Umsjónarmenn þáttarins eru þeir félagar Björn Berg Gunnarsson og Sævar Helgi Bragason.

Á Stjörnufræðivefnum er hægt að nálgast alla þættina sem eru orðnir fjórtán talsins. Meðal efnistaka má nefna Cern-hraðallinn í Sviss, stofnfrumurannsóknir, stjörnuskoðun, kjarnorkuverkfræði, samanburðarlífeðlisfræði, olíujarðfræði og margt fleira sem gæti vakið áhuga leikna sem lærða.

Í nýjasta þættinum var rætt við þá Matthías Ásgeirsson og Óla Gneista Sóleyjarsson um efahyggju og Vantrú:

Ritstjórn | Viðbrögð (5)

Hugsuðirnir og fiðrildin

Í þessum þriðja og síðasta pistli fjallar Þórdís Helgadóttur um trúarstökk og skynsemi.

Áður höfum við birt fyrsta og annan pistil hennar um trúleysi.

Lesa Hugsuðirnir og fiðrildin
Þórdís Helgadóttir | Viðbrögð (65)

Guðdómurinn og fólkið sem trúir á hann

Síðasta miðvikudag birtum við fyrsta af þremur pistlum heimspekingsins Þórdísar Helgardóttur um trúleysi. Pistlar þessir voru fluttir í útvarpsþættinum Víðsjá á Rás1.

Í öðrum pistli sem við birtum hér fyrir neðan heldur Þórdís áfram þar sem frá var horfið og ræðir um trúarhugtakið.

Lesa Guðdómurinn og fólkið sem trúir á hann
Þórdís Helgadóttir | Viðbrögð (26)

Önnur umferð í bítið á Bylgjunni

Matthías Ásgeirsson mætti aftur í þáttinn Í bítið á Bylgjunni í morgun. Haldið var áfram með umræður gærdagsins og hlustendur létu í sér heyra. Ein ágæt frú hundskammaði Matthías fyrir að tjá sig um trúmál á forsendum trúleysis.

Á heimasíðu Siðmenntar er hægt að lesa um fyrstu veraldlegu útförina á vegum félagsins. Þó trúleysingjar séu fjölmargir hér á landi, a.m.k. miklu fleiri en margir trúmenn vilja, eru flestir þeirra sinnulausir. Því má gera ráð fyrir að margir þeirra hafi ekkert verið að velta því fyrir sér hvað verður um lík þeirra eftir andlátið. Við hvetjum fólk til að ræða þessi mál við sína nánustu ef þetta skiptir það máli.

Í gær vísuðum við á rannsókn á trúarlífi íslendinga.

Matthías mismælti sig hressilega a.m.k. einu sinni í þessu samtali, spurningin er hversu margir tóku eftir því.

Ritstjórn | Viðbrögð (24)

Ítarefni fyrir hlustendur Bylgjunnar

Í umræðum í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun vísaði Matthías Ásgeirsson til könnunar á trúarviðhorfum Íslendinga. Hægt er að sækja niðurstöður* þeirrar rannsóknar á heimasíðu ríkiskirkjunnar (pdf skjal). Í greininni Meirihlutagoðsögnin er rýnt í niðurstöður hennar og bent á að vafsamt sé að segja að meirihluti Íslendinga séu kristnir.

Greinin Hvítasunnutónleikar í bítið var kveikjan að umræðunum í morgun, en þar brást Matthías við umfjöllun þáttastjórnenda í síðustu viku.

Upptökur af heimsóknum Birgis Baldurssonar á Bylgjuna er að finna í útvarpsflokknum hér á Vantrú.

Þeir sem vilja gera athugasemdir við umræðuna á Bylgjunni mega gjarnan gera það hér. Hér er upptaka af samtalinu.

* Reyndar vantar ýmsar mikilvægar spurningar í þessar niðurstöður, kirkjan ákvað t.d. að sleppa mikilvægri spurningu um viðhorf fólks til Jesús. Sú spurning var í rannsókninni.

Ritstjórn | Viðbrögð (22)

Hvítasunnutónleikar í bítið

Heimir og Kolla - Í bítiðÁ Hvítasunnudag sýndi Ríkissjónvarpið frá tónleikum Hvítasunnusafnaðirns Fíladelfíu á besta tíma eins og undanfarin ár. Ég var staddur í bústað og horfði á útsendinguna með öðru auga. Ekki get ég sagt að þessi tegund tónlistar veki áhuga minn og hann eykst ekki þegar hlustað er á textana. Ég mæli með því að gospelfólkið prófi að semja örlítið fjölbreyttari texta. Já, við vitum að Jesús er frelsarinn og ykkur finnst máttur hans mikill, við náðum því. Það komst til skila í fyrstu fjóru lögunum.

Ég tuðaði dálítið við konuna útaf þessari trúardagskrá í Ríkissjónvarpinu en verð að játa með nokkurri skömm að ég nennti ekki að gera veður útaf þessu.

Lesa Hvítasunnutónleikar í bítið
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (24)