Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Háskólinn

16.04.12

Hverjir vilja láta blekkja sig?

Magnús S. Magnússon

Háskóli Íslands

Öðru hverju undanfarna áratugi, en oftar undanfarin ár í tengslum við fyrirlestra mína um trú og trúarbrögð á alþjóðlegum ráðstefnum í Bandaríkjunum og Evrópu á sviði trúarvísinda og líffræði mannlegs atferlis hef ég hitt guðfræðinga.

Lesa Hverjir vilja láta blekkja sig?
Magnús S. Magnússon | Viðbrögð (17)

01.02.12

Akademískur heiður

Egill Óskarsson
Kettlingar

Undanfarin misseri hefur Háskóli Íslands verið að vandræðast með kæru Vantrúar vegna umfjöllunar um félagið í námsskeiði sem kennt hefur verið við Guðfræðideild skólans. Siðanefndir hafa komið og farið, rannsóknarnefndir hafa verið skipaðar en engin efnisleg niðurstaða hefur fengist í málið þrátt fyrir að málið sé í eðli sínu ákaflega einfalt.

Lesa Akademískur heiður
Egill Óskarsson | Viðbrögð (1)

29.12.11

Um "Heilagt stríð" og "einelti" Vantrúar

Ritstjórn

Þann 5. desember birtist grein um erindi siðanefndar Háskóla Íslands no. 1/2010 í sunnudagshefti Morgunblaðsins undir fyrirsögninni "Heilagt stríð" Vantrúar. Þó greinin hafi átt að fjalla um siðanefndarmálið var nær ekkert fjallað um erindi Vantrúar til siðanefndar Háskóla Íslands sem varðaði kennslugögn stundakennara. Meira var gert úr meintu einelti sem kennarinn upplifði af hálfu Vantrúar. Fyrstu greininni var fylgt eftir með greininni Einelti vantrúarfélaga í sunnudagsblaðinu þann 12. desember.

Vantrú fékk vilyrði fyrir því frá blaðamanninum að félagið fengi birta grein þar sem ásökunum yrði svarað og rangfærslur leiðréttar. Svar Vantrúar átti að birtast í sunnudagsblaði Morgunblaðsins þann 18. desember. Ritstjórn Morgunblaðsins hefur neitað að birta greinina og þess í stað boðið félaginu að senda inn lesendabréf og birta það undir liðnum umræðan. Við sögðum pass og birtum greinina því hér á Vantrú.

Lesa Um "Heilagt stríð" og "einelti" Vantrúar
Ritstjórn | Viðbrögð (8)

27.12.11

Ímyndað einelti

Hjalti Rúnar Ómarsson
Blóm

Í umfjöllun fjölmiðla um “siðanefndarmálið” hefur eitt af aðalatriðunum í atburðaröðinni verið meint einelti Vantrúar gegn stundakennaranum Bjarna Randveri. Síðari greinin um þetta mál hét einmitt “Einelti vantrúarfélaga: Lögðu stundakennara í HÍ í einelti í yfir tvö ár”. En hvaðan kom þessi hugmynd um að eitthvað einelti væri í gangi og hvað er þetta meinta einelti?

Lesa Ímyndað einelti
Hjalti Rúnar Ómarsson | Viðbrögð (12)

14.12.11

Yfirlýsing frá Ingvari Sigurgeirssyni

Ritstjórn

Ingvar Sigurgeirsson prófessor var skipaður formaður siðanefndar í máli sem lesendur ættu að þekkja vel og flestir eru væntanlega búnir að fá nóg af. Í kjölfar yfirlýsingar hóps háskólamanna sendi Ingvar þennan tölvupóst á póstlista HÍ. Fréttastofa RÚV vitnar í póstinn. Nú hafa báðir formenn siðanefndar tjáð sig um málið opinberlega, því áður hafði Þórður Harðarson skrifað grein í Morgunblaðið.

Lesa Yfirlýsing frá Ingvari Sigurgeirssyni
Ritstjórn | Viðbrögð (17)

13.12.11

Yfirlýsing frá Vantrú

Ritstjórn

Í Morgunblaðinu, Fréttablaðinu og á visir.is birtist í dag yfirlýsing varðandi erindi Vantrúar til siðanefndar Háskóla Íslands frá 109 háskólamönnum við íslenska háskóla og stofnanir, en þar af skrifa 84 kennarar og starfsmenn við Háskóla Íslands undir yfirlýsinguna.

Lesa Yfirlýsing frá Vantrú
Ritstjórn | Viðbrögð (51)

12.12.11

"Heilagt stríð" eða misskilningur?

Ritstjórn

Undanfarna daga hefur geisað pínulítill fjölmiðlastormur í kringum klögumál Vantrúar gegn Bjarna Randveri Sigurvinssyni. Þetta mál vatt reyndar upp á sig svo um munar og endaði í meðförum tveggja siðanefnda sem ekki gátu skilað niðurstöðu. Í millitíðinni var svo brotist inn á lokað spjallsvæði Vantrúar, þaðan stolið gögnum sem hafa verið notuð sem vopn gegn Vantrú og félagið útmálað sem eineltisbullur, sóðakjaftar og þaðan af verra.

Lesa "Heilagt stríð" eða misskilningur?
Ritstjórn | Viðbrögð (18)

09.12.11

Banntrúarmaður svarar fyrir sig

Egill Óskarsson
Fólk

Guðmundur Andri Thorsson skrifaði pistil í Fréttablaðið 5. desember sem bar heitið Banntrúarmenn. Þar fjallaði hann um félagið Vantrú, sem hann hefur augljóslega ekki miklar mætur á. Tilefni pistilsins var grein sem hafði birst í Morgunblaðinu helgina áður. Um þá grein verður ekki fjallað nánar hér en þó er vert að minnast á að sú grein átti að birtast viku fyrr og þá algjörlega án þess að rætt væri við nokkurn félagsmann í Vantrú. Það var ekki fyrir frumkvæði blaðamanns Morgunblaðsins sem sjónarmið Vantrúar fengu að birtast í greininni og skemmst er frá því að segja að félagsmönnum þykir greinin draga taum Bjarna Randvers Sigurvinssonar ansi hressilega.

Lesa Banntrúarmaður svarar fyrir sig
Egill Óskarsson | Viðbrögð (12)

08.12.11

Greinargerð í siðanefndarmáli

Ritstjórn

Þórður Harðarson, formaður siðanefndar Háskóla Íslands, skrifaði þessa grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Vantrú tekur sér bessaleyfi og birtir greinina þar sem hún skiptir að okkar mati miklu máli. Textann tókum við úr Morgunblaði dagsins og uppsetning hér er á okkar ábyrgð, en við reyndum að halda okkur sem mest við uppsetningu eins og hún er í blaðinu.. Vonandi er Þórður ekki ósáttur við að greinin birtist hér á Vantrú. Myndina tókum við einnig úr Morgunblaðinu. Ef einhver er ósáttur við notkun hennar verður hún fjarlægð.

Lesa Greinargerð í siðanefndarmáli
Ritstjórn | Viðbrögð (24)

06.12.11

Hvaða einelti?

Egill Óskarsson

Eins og frægt er orðið hefur félagið Vantrú lagt Bjarna Randver Sigurvinsson (BRS), stundakennara og nemanda við Háskóla Íslands, í einelti. Sjálfur hefur stundakennarinn neyðst til þess að grípa til varna. Við skulum, til fróðleiks, skoða í hverju hið meinta einelti fólst og hvernig kennarinn varðist.

Lesa Hvaða einelti?
Egill Óskarsson | Viðbrögð (22)
Hvað gekk á í guðfræðideild? - viðbrögð (29)
Opið bréf til 40 háskólakennara - viðbrögð (42)
Aðför Guðna Elíssonar að siðanefnd HÍ og Vantrú - viðbrögð (21)
Þrautarmein Háskóla Íslands - viðbrögð (14)
Þó líði ár og öld - viðbrögð (12)
Hvað stingur í stúf? - viðbrögð (41)
XIII. Guðfræði í HÍ: Þögnin rofin - viðbrögð (65)
XII. Guðfræði í HÍ : Hin æpandi þögn - viðbrögð (55)
XI . Guðfræði í HÍ: Síðustu glærurnar - viðbrögð (12)
X Guðfræði í HÍ: Vottar og virðing - viðbrögð (34)
IX Guðfræði í HÍ: Orðbragðið - viðbrögð (65)
VIII. Guðfræði í HÍ : Vantrúboð? - viðbrögð (39)
VII. Guðfræði í HÍ : Um trúarleg efni - viðbrögð (40)
VI. Guðfræði í HÍ : Dawkins-heilkennið - viðbrögð (20)
V. Guðfræði í HÍ : Vantrú kynnt til sögunnar - viðbrögð (37)
IV. Guðfræði í HÍ: Vantrú - viðbrögð (24)
III. Guðfræði í Háskóla Íslands: Níels Dungal og Helgi Hóseasson - viðbrögð (70)
II. Guðfræði í Háskóla Íslands : Bjarni Randver Sigurvinsson - viðbrögð (10)
I. Guðfræði í Háskóla Íslands : Fúsk, fáfræði eða fordómar - viðbrögð (108)