Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
Árlegt páskabingó Vantrúar
22.04. kl: 14:52
Bingó á föstudaginn langa
04.04. kl: 09:44
Velheppnað bingó
23.04. kl: 20:54
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Bingó

22.04.11

Vel heppnað bingó

Ritstjórn

Bingó

Við viljum byrja á því að þakka öllum sem mættu í siðað, kurteist en lagalega vafasamt bingó á Austurvelli í dag, föstudag. Boðið var uppá kakó, kaffi, kökur og kleinur. Við áætlum að um 80 manns hafi mætt, en því miður vorum við aðeins með 50 bingóspjöld. En fólk skiptist á spjöldum milli umferða, enda vel upp alið. Spilaðar voru fjórar umferðir.

Lesa Vel heppnað bingó
Ritstjórn | Viðbrögð (0)

20.04.11

Árlegt páskabingó Vantrúar

Ritstjórn

[Viðburðurinn@Facebook]

Bingó

Undanfarin ár hefur skapast hefð fyrir páskabingói á Austurvelli á föstudaginn langa og í ár verður engin undantekning á því. Við munum safnast saman klukkan 12:30 og sýna stjórnvöldum með þessum fallegu mótmælaaðgerðum hvað okkur finnst um löngu úrelta helgidagalöggjöfina.

Veglegir vinningar, bækur og páskaegg. Svo bjóðum við upp á kakó og kökur. Allt ókeypis! Öll börn fá glaðning.

Ritstjórn | Viðbrögð (9)

31.03.10

Bingó á föstudaginn langa

Ritstjórn

bingo.jpg Hið árlega bingó Vantrúar verður haldið föstudaginn langa, 2. apríl, klukkan 12:30 á Austurvelli.

Með þessu brjótum við í fjórða sinn lög um helgidagafrið sem banna sérstaklega bingó:

[Á föstudeginum langa] er eftirfarandi starfsemi óheimil: Skemmtanir, svo sem dansleikir eða einkasamkvæmi á opinberum veitingastöðum eða á öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að. Hið sama gildir um opinberar sýningar og skemmtanir þar sem happdrætti, bingó eða önnur svipuð spil fara fram."

Lesa Bingó á föstudaginn langa
Ritstjórn | Viðbrögð (9)

11.04.09

Velheppnað bingó

Ritstjórn

Í gær, föstudaginn langa, hélt Vantrú sitt árlega bingó á Austurvelli. Mikil stemming var á svæðinu enda er þessi viðburður orðinn fastur liður á þessum degi. Á annað hundrað manns tók þátt í táknrænum gjörningi til að minna á að tengsl ríkis og kirkju á Íslandi eru óeðlileg. Boðið var upp á heitt kakó og kleinur. Eftir að bingóinu lauk var haldin messa í hálftómri Dómkirkjunni.

Lesa Velheppnað bingó
Ritstjórn | Viðbrögð (2)