Vinaleið Þjóðkirkjunnar er þjónusta sem hefur verið í boði í Mosfellsbæ í nokkur ár. Árið 2006 byrjaði Þjóðkirkjan að útvíkka þessa starfssemi og réð prest og djákna til starfa í Garðabæ til að sjá um Vinaleið.
Óþarfi er að kynna Vinaleiðina fyrir lesendum Vantrúar en hér er gerð grein fyrir þætti Jónu Hrannar Bolladóttur í þeim skollaleik.
En byrjum þó á þingsályktun Kirkjuþings:
Lesa Jóna Hrönn Bolladóttir, heilindi ríkiskirkjuprests„Kirkjuþing 2003 beinir því til Kirkjuráðs að það beiti sér fyrir því að skipuð verði samstarfsnefnd kirkju og skólayfirvalda til að móta stefnu í kærleiksþjónustu kirkjunnar við leik- og grunnskólabörn“
Hvað eru trúleysingjar að æsa sig út af kristinfræðikennslu í skólum? Er ekki sjálfsagt að börnin læri um kristni, sem hefur mótað svo mikið af sögu landsins í gegnum aldirnar?
Trúleysingjar eru ekki á móti kristinfræðikennslu. Þeir vilja að börn læri um kristni og önnur trúarbrögð í skólum. Þeir vilja hins vegar ekki að börnum sé innrætt kristni (eða önnur trúarbrögð) í skólum.
Lesa Hvað er málið?Prestar og skólar eiga enga samleið.
Það er gjörsamlega útilokað að prestar geti komið að námi barna í grunn- og leikskólum, ef virða á lög og reglur íslensks samfélags. Heimsóknir þeirra í leikskóla eru út í hött og heimsóknir nemenda í kirkjur eru út í hött ef prestur kemur þar nærri, meðhjálpari, djákni eða aðrir prelátar.
Ástæðan er einföld. Skólinn er fræðslustofnun, ekki trúboðsstofnun, eins og segir í námskrá, en innsta eðli kirkjunnar og öll störf kirkjunnar þjóna eru boðun, boðun trúar, trúboð.
Rökfræði 101
Forsenda 1: A er bannað í X. Forsenda 2: Allt sem tengist B felur í sér A. Niðurstaða: B er bannað í X. Lesa Rökfræðipróf 201Bæjarráð Garðabæjar samþykkti vorið 2007 að leita til sérfræðinga hjá KHÍ til að „meta réttmæti og gildi vinaleiðar“ og hafa þeir nú sent frá sér skýrslu en tengingar á hana er að finna á vefsíðunni blogg.visir.is/binntho. Skýrsluhöfundar fóru þá leið að vinna skýrsluna eingöngu út frá faglegum sjónarmiðum skólastarfs en taka ekki afstöðu til þess hvort aðkoma kirkju að skólastarfi sé réttmæt þegar horft er til almennra laga í lýðræðisþjóðfélagi.
Lesa Vinaleið fær falleinkunnSíðastliðinn vetur fengu þjóðkirkjan og skólayfirvöld í Garðabæ á sig mikla gagnrýni vegna þess að prestur og djákni hófu "kristilega sálgæslu" í skólum og á skólatíma. Biskup áleit þetta kjörið sóknarfæri fyrir kirkjuna og Kirkjuþing lýsti markmiðið að frelsa börnin (skv. kristniboðsskipuninni). Innrásin fékk veigrunarheitið "Vinaleið".
Lesa Ég panta matEftirfarandi fréttatilkynning var send til fjölmiðla í dag.
Lesa Fallið frá Vinaleið þjóðkirkjunnar í Flataskóla í GarðabæEins og fram hefur komið hérna á Vantrú viðurkenndi Jóna Hrönn Bolladóttir á málþingi um Vinaleið að vera prests í grunnskólum fæli í sér trúboð. Það eru nú frekar augljós sannindi og það er gleðilegt að annar prestur Þjóðkirkjunnar hafi viðurkennt þetta[1].
Lesa Að brjóta lög eða námskrá?Á málþingi sem ég fór á um daginn var fjallað um hlutverk Þjóðkirkjunnar á 21. öld. Í fyrirspurnatímanum hélt þjóðkirkjupresturinn Jóna Hrönn Bolladóttir ræðu um Vinaleið sem endaði á öskrinu: “Og það er talað við okkur eins og við séum GLÆPAMENN!!!!” Ástæðan er líklega sú að Vinaleið virðist brjóta gegn landslögum.
Lesa Annars flokks nemendurHalldór Reynisson á fræðslusviði Biskupsstofu heldur því fram í Fréttablaðinu 8. febrúar að málflutningur gegn Vinaleiðinni sé „ófaglegur". Ástæðan virðistvera sú að hann telur vegið ómaklega að sr. Hans Guðbergi, sem er fulltrúi trúfélags inni í grunnskólum. En persóna eða drengskapur þessa manns kemur málinu nákvæmlega ekkert við.
Lesa Sögð og ósögð orðNokkur umræða hefur verið um Vinaleið ríkiskirkjunnar undanfarið.
Talsmenn Vinaleiðar hafa bent á að fáir mótmæla og að mikill meirihluti foreldra sé þar af leiðandi jákvæður í garð þessa starfs. Helgi Grímsson skólastjóri Sjálandsskóla sagði í hádegisviðtali við Stöð 2 þann 4. janúar frá könnun þar sem rúm 80% foreldra voru ánægð með þjónustuna. Viktor A. Guðlaugson skólastjóri Varmárskóla segir í Morgunblaðsgrein þann 10. desember að mikil ánægja sé meðal barna, starfsfólks og foreldra með Vinaleið. Séra Jóna Hrönn Bolladóttir sagði í viðtali hjá morgunsjónvarpi Stöðvar 2 að gagnrýnin hefði ekki komið frá innflytjendum eða fólki frá öðrum trúarbrögðum og gefur í skyn að það fólk sé allt ánægt með Vinaleið. Nú síðast er haft eftir Sveinbirni Markúsi Njálssyni skólastjóra Álftanesskóla að hann sjái ekki „að nærvera prests hér innan skólans hafi truflað einn eða neinn“.
Lesa VinaleiðindiTrú, það er skoðun sem er ekki byggð á rökum, er helsti löstur allra trúarbragða. #
Richard Dawkins
Movable Type
knýr þennan vef