Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.
Movable Type
knýr þennan vef
Í morgunútvarpi Rásar2 í morgun setti Kolbrún Halldórsdóttir fram tillögur að niðurskurði ríkisútgjalda. Hennar lausn var meðal annars að skera niður í heilbrigðiskerfinu og beina fólki að ódýrari úrræðum.
Lesa Niðurskurðartillögur Vantrúar og KolbrúnarSpegillinn 43. árg. 2. tbl. maí 1983
Eftirfarandi grín og glens (og guðlast) birtist upphaflega í 2. tölublaði af Speglinum þann 1. maí, árið 1983. Blaðið var gert upptækt mánuði seinna. Stuttu síðar var ritstjóri spaugritsins kærður fyrir klám og guðlast.
Lesa Spegillinn bakvið fermingartjöldin!Ekki sjálftaka, ekkert dramb eða strákaklíka. Aðeins hæfileikar og heilbrigð stjórnsýsla:
Ólafur Skúlason dómprófastur 1982-01-01 Riddarakross
Ólafur Skúlason vígslubiskup 1987-01-01 Stórriddarakross
Ólafur Skúlason biskup Íslands 1990-01-01 Stórriddarakross með stjörnu
Ólafur Skúlason biskup Íslands 1992-06-17 Stórkross
Karl Sigurbjörnsson biskup 2000-06-17 Stórriddarakross með stjörnu
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur 2006-06-17 Riddarakross
Þökkum þeim vel unnin störf og einstaka fórnfýsi, landi og lýð til heilla.
Allir menn eru jafnir en karlar eru sterkara kynið hér á landi og skulu stjórnvöld að því leyti styðja þá og vernda. Við þurfum að horfa til sögu okkar og menningar og megum ekki fara of skart í eitthvað jafnræðishjal vegna pólitísks rétttrúnaðar. Á bara að valta yfir karla og láta undan þeim sem ofsækja þá? Nei, það þarf að taka fullt tillit til karla og sýna þeim umburðalyndi, skilning og sögulega meðvitund uns þroskuð umræða hefur átt sér stað um þetta hitamál.
Lesa Íslenskir karlmennEinsog alþjóð veit mun heimsendir hefjast í dag, 21. maí. Það eru einhverjir sem skjálfa á beinunum yfir þessu, aðrir sem taka þessu með jafnaðargeði, og enn fleiri sem spá ekki mikið í þessu. En samkvæmt helstu boðberum sannleikans í þessum efnum þá er nokkuð öruggt að dómsdagur hefst í dag og heimurinn mun svo enda 21. október. Svo hér eru fimm leiðir til að njóta tímans meðan þú getur.
Lesa 5 leiðir til að njóta heimsendisÍ þessari teiknimynd kennir Cectic okkur hvernig á að vera frábær miðill:
Lesa Að vera frábær miðill