Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Vantrú gefur út "Um júðana og lygar þeirra" (Fyrsta apríl gabb)

Mynd af kápunni

Vantrú er stolt að kynna nýjustu útgáfu sína, Um júðana og lygar þeirra eftir dr. Martein Lúther. Bókin er hornsteinn lútherskrar guðfræði og veitir þvílíka innsýn í hugarheim Lúthers og þeirrar þýsku hefðar sem hann byggði upp og aðrir uppfylltu. Félagið seldi nýlega lénið biblia.is til erlends biblíufélags og með því fjármagni höfum við náð að prenta nógu stórt upplag af bókinni til að senda á hvert bókasafn í landinu, bæði almenningssöfn og skólasöfn enda er þekking á hugmyndum Lúthers forsenda siðmenningar á Íslandi.

Bókin kostar 3990 kr. í lausasölu og má panta í gegnum netfangið vantru@vantru.is

Hér að neðan má finna brot úr þýðingunni, lokaorð XI kafla:

Mynd af bls 29

Mynd af bls 30

Mynd af bls 31

Ritstjórn 01.04.2016
Flokkað undir: ( Grín )

Viðbrögð


Gréta - 01/04/16 10:01 #

Hver er þýðandinn?


Hjalti Rúnar (meðlimur í Vantrú) - 01/04/16 11:54 #

Sæl Gréta, við unnum þetta "þrekvirki" í sameiningu. S.s. bara félagsmenn.


Lárus Viðar - 13/04/16 04:11 #

Væri gott að fá þetta guðfræðilega stórvirki þýtt og gefið út í fúlustu alvöru. Næsta ár væri upplagt þegar þeir lúthersku ætla að minnast þess að 500 ár hafa liðið frá upphafi siðaskiptanna.


Benni - 04/05/16 07:39 #

Hann skrifaði þetta eftir að hann las og þýddi talmúdann. Þið ættuð kannski að þýða hann. Þið ættuð kannski að þýða bækurnar hans Douglas Reed, Arnold Leese, Gilat Atsmon, sem er gyðingur sjálfur eða bókina "Two hundred years together" eftir Alexander Solsjenitsyn. Miðað við þessar bækur þá sýnist mēr Lúther hafa nokkuð rétt fyrir sér. Það væri óvitlaust að hlusta á ræðuna hans Benjamin Freedman á youtube. Hann var Zíonisti í ynnsta hring. Ég reikna nú ekki með að þið lesið þessar bækur, þar sem ykkar rætur eru sennilega nær gyðinganna, eða þið jafnvel á launaskrá hjá þeim. Það væri nú kaldhæðnislegt ef þið væruð á launaskrá hjá sömu aðilum og Omega sjónvarpsstöðin, sem gerir ekkert annað en að dásama hryðjuverkastjórnina í Ísrael. Og hvað er Ísrael annað en sönnun fyrir orðum Lúthers?


Matti (meðlimur í Vantrú) - 04/05/16 12:46 #

Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.

Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.










Muna þig?