Í þessu feiknarlega skuggalegu myndbandi er hægt að sjá alvöru draug sveima um barnaherbergi í húsi einu. Þetta myndband væri ekki kleift nema fyrir framúrskarandi nútímatækni. Lesendur þurfa að vera ansi glöggir og skarpskyggnir til að taka eftir þessari vofu. Þetta er ekki fyrir börn né hjartveika.
Mér fannst þetta helvíti skerí þangað til maðurinn í lakinu birtist. Fram að því, var þetta best gerða drauga myndbandið sem ég hef séð.
Vá þetta er rosalegt!! Annars hef ég aldrei séð drauga í lökum :-)
Nokkuð gott, en ég er samt langt í frá sannfærður. Hefði viljað sjá betri nærmynd af ruggustólnum.
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Guðjón B. - 19/04/08 20:15 #
Vá, senda þetta á Magnús Skarphéðinsson strax... Þetta myndband hefur snúið mér, draugar eru til, miðlar tala við fólk, og guð er til! Hallelúja... eða eitthvað