Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
Guðfræðilegar bollaleggingar
05.09. kl: 12:12
Jesús er besti vinur hommanna
12.08. kl: 01:04
Eigi víkja
25.06. kl: 17:11
Prestur predikar, ýkir og skrumskælir
01.06. kl: 21:55
Hættuleg fæðing Jesú
14.03. kl: 01:49
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Messurýni

Messurýni

28.08.11

Guðfræðilegar bollaleggingar

Reynir Harðarson
Ísafjörður

Séra Hildur Eir Bolladóttir prédikaði í Hólakirkju á dögunum að hún hefði farið í ferðalag um Vestfirði með fjölskyldunni og lesið sér til um svæðið.

Lesa Guðfræðilegar bollaleggingar
Reynir Harðarson | Viðbrögð (10)

09.08.11

Jesús er besti vinur hommanna

Hjalti Rúnar Ómarsson
Gay Pride

Prestar eru gjarnir á að koma með ansi frumlegar túlkanir til þess að afsaka allt það ljóta í biblíunni. Hin hliðin á sama peningi er að reyna að lesa inn í biblíuna góða hluti sem er ekki að finna þar. Nú til dags má Jesús varla vera í kallfæri við konu án þess að það sé túlkað sem ákall rauðsokkunnar Jesú fyrir jafnrétti kynjanna. Sama virðist vera að eiga sér stað varðandi samkynhneigð.

Lesa Jesús er besti vinur hommanna
Hjalti Rúnar Ómarsson | Viðbrögð (9)

17.06.11

Eigi víkja

Ritstjórn
Biskupinn

Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, leiðarljós þjóðarinnar í siðferðismálum og hirðir prédikaði yfir lýðnum á þjóðhátíðardeginum og sagði "Eigi víkja" tólf sinnum í ræðunni! Ekki sjö sinnum, ekki tíu sinnum heldur tólf sinnum.

Karl er hugsanlega að misskilja orð Jóns Sigurðssonar eða að hann voni að þjóðin misskilji - einmitt þegar krafan er að hann eigi að víkja.

Lesa Eigi víkja
Ritstjórn | Viðbrögð (6)

26.02.11

Hættuleg fæðing Jesú

Hjalti Rúnar Ómarsson

Jesú og Jói

Ég held að margir trúmenn og prestar átti sig á því að sögurnar af fæðingu Jesú eru mjög hættulegar fyrir trú þeirra. Ríkiskirkjupresturinn Guðrún Karlsdóttir virðist bjóða hættunni heim í nýlegri jólapredikun, þar sagði Guðrún þetta:

Lesa Hættuleg fæðing Jesú
Hjalti Rúnar Ómarsson | Viðbrögð (11)

05.10.10

Prestur predikar, ýkir og skrumskælir

Guðmundur D. Haraldsson
Gunnlaugur Stefánsson

Gunnlaugur Stefánsson, prestur, flutti predikun í Bústaðakirkju nú um helgina. Meginstefið í predikuninni var sú umræða sem hefur verið um ríkiskirkjuna undanfarnar vikur. Greinilegt er af predikunninni að Gunnlaugur er ekki sáttur við þá umræðu. Segir Gunnlaugur í predikun sinni að þeir sem hafi lengst gengið gegn kirkjunni hafi látið „sér oft fátt um sannleiksgildi staðreynda finnast“. Má svo vera. En sýnist mér að Gunnlaugur gangi illa um sannleikann í predikun sinni.

Lesa Prestur predikar, ýkir og skrumskælir
Guðmundur D. Haraldsson | Viðbrögð (17)

12.09.06

Munnleg meðhöndlun

Hjalti Rúnar Ómarsson

Þarsíðasta sunnudag fengu prestar landsins ansi óþægilegan guðspjallatexta til þess að predika út frá. Textinn er kraftaverkasaga í Markúsarguðspjalli. Höfundar Lúkasarguðspjalls og Mattheusarguðspjalls, sem báðir notuðust við Markúsarguðspjall, slepptu báðir þessari frásögn. Hvað var þeim eiginlega svona illla við?

Lesa Munnleg meðhöndlun
Hjalti Rúnar Ómarsson | Viðbrögð (39)

06.05.05

Hvort er Örn Bárður lygari eða hálfviti?

Birgir Baldursson

Predikun Arnar Bárðar Jónssonar þann 24. apríl s.l. er merkileg fyrir margt. Þó er sennilega þessi málsgrein hér athyglisverðari en allt annað:

Lesa Hvort er Örn Bárður lygari eða hálfviti?
Birgir Baldursson | Viðbrögð (41)

16.03.05

Málpípur Gvuðs

Matthías Ásgeirsson

Ef prestar eru fréttamenn ættu þeir flestir að vera búnir að segja upp starfi sínu fyrir löngu. Þeir hafa það oft farið rangt með, endurtekið fullyrðingar sem þeir vita að eru rangar og reyna ætíð að segja ekki það sem illa hentar kirkjunni. Starf presta gengur út á að forðast að segja satt frá. Hvaða prestur boðar það sem menn vita best um kristni? Hagsmunatengslin eru of áberandi.

Séra Örn Bárður er þekktur fyrir að messa um pólitísk hitamál og svosem ekkert um það að segja. En hlustar einhver á það sem presturinn lætur frá sér, les einhver það sem hann skrifar? Það stendur nefnilega ekki steinn yfir steini í málflutningi hans þegar nánar er skoðað.

Lesa Málpípur Gvuðs
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (1)

25.10.03

Og orðið var Mu!

Einar Þorn

Í tilefni þess að guð átti stórafmæli um daginn og meira hefur farið fyrir þjónum hans og þeirra veraldlega vafstri í fjölmiðlum síðustu misserin en honum, langar mig til að bæta þar örlítið úr og birta lesendum nýjustu fréttir af föður vorum og skapara úr landinu helga. Lesandinn kann að undrast, því ekki hefur sést né heyrst til guðs í tvö þúsund ár svo öruggt geti talist, enda duld himnaföður staðreynd sem umboðsmenn hans hér á landi liðna þúsöld hafa lítið getað bætt úr.

Lesa Og orðið var Mu!
Einar Þorn |