Ólafur Sindri Ólafsson skrifar ögn um tilurð mótmælendatrúar, hin vafasömu athöfn sem er skírn og ferming, og vitaskuld gróðafíkn presta, í grein sinni Nauðungarvist á himnum sem birtist á Maurildinu.
Í mars árið 2006 var greint frá því í aukablaði Morgunblaðsins um fermingar, drengur einn hefði fengið sérstaka undanþágu frá biskupi til þess að fermast 12 ára. Ég lagði inn fyrirspurn á Trú.is: „Hvers vegna þurfti leyfi frá biskupnum?“ Kristján Valur Ingólfsson svaraði mér:
Lesa Ósamræmi: Trúfélagsskráningar- og fermingaraldurÍ Danmörku stendur nú yfir umræða um hvort lækka eigi fermingaraldurinn um eitt ár, og ferma börn í 12 ára bekk í stað 13 ára bekkjar. Þessi umræða á án efa eftir að berast hingað áður en langt um líður, þannig að það er eins gott að byrja debattið bara strax með svari til væntanlegra formælenda þessarar hugmyndar.
Lesa Danmörk: Fermingar 12 ára?Vantrú mælir með fróðlegum pistli Stefáns Pálssonar um fermingar.
Nú er sá tími árs að fermingarundirbúningur Þjóðkirkjunnar er að hefjast. Allir vita að flestir krakkar fermast hjá Þjóðkirkjunni, að þeir gera það vegna gjafanna og láta svo ekki sjá sig þar framar. Prestar vita þetta ekki síður en aðrir. Eins og við höfum ítrekað rakið hér á Vantrú, þá er það andstætt landslögum að ferma þann sem er ekki orðinn fullra 14 ára -- en eins og allir vita eru flestir 13 ára þegar þeir fermast.
Lesa Fermingarvertíð Þjóðkirkjunnar er að hefjastÍ dag ganga nokkur hundruð börn hinn andlega planka upp að altarinu og meðtaka svolitla forneskju frá ríkisstyrktum andalæknum. Flest þeirra munu ekki standa frammi fyrir skrýddum presti við altari aftur fyrr en þau gifta sig, og fæst aftur eftir það. Flest þeirra taka þátt í þessari athöfn vegna þess að þau vilja ekki draga að sér neikvæða athygli með því að vera öðruvísi, og vegna þess að þau eiga gjafir í vændum. Hollt veganesti út í lífið það, að láta undan hópþrýstingi og selja sál sína fyrir veraldleg gæði, hmm?
Lesa Afbrotahrina í Reykjavík: Lögreglan aðhefst ekkertEldri sonur minn er að fara að fermast eftir rúma viku. Hann fermist borgaralega enda verið alinn upp utan trúfélaga og trúarbragða. Vegna þessa fór ég að hugsa um ferminguna mína á sínum tíma. Málið var það að ég uppgötvaði það frekar fljótt í fermingarfræðslunni að ég gat ekki ímyndað mér að staðfesta skírnarheitið og þegar ég sótti messu í kapellunni á hrafnistu eins og okkur var skylt að gera endaði það með því að ég lét mig hverfa og gekk út. Mér ofbauð svo trúarofstækið (í hefðbundinni messu hjá þjóðkirkjunni) að ég mætti aldrei aftur. Samt lét ég ferma mig! Af hverju? Jú, vegna þess að ég taldi mér trú um á þeim tíma að ég væri Deisti. Ég þóttist sjá slík merki í náttúrunni og náttúrulögmálunum sem báru þess vitni að þetta gæti ekki allt verið sprottið af tilviljun. Eitthvert æðra vald hlyti að hafa búið til þessi lögmál og sett allt af stað þó svo að það sama vald væri annaðhvort farið á braut, skipti sér ekki af sköpunarverkinu eða hefði einfaldlega ekki mátt til þess.
Lesa FermingarhugleiðingAllir eru sammála því að þegar ungabörn eru skírð hafa þau ekki þroska til þess að taka upplýsta og sjálfstæða ákvörðun varðandi skírnina. Það stöðvar samt Þjóðkirkjuna ekki í því að skíra þau. Kirkjan bíður síðan þangað til barnið er orðið þrettán ára svo að það geti tekið upplýsta og sjálfstæða ákvörðun. En trúir því virkilega einhver að þrettán ára unglingar taki sjálfstæðar og upplýstar ákvarðanir í trúmálum?
Lesa FermingaraldurinnErtu þreyttur á að heyra sífellt sömu versin lesin við fermingar? Leiður á þessum örfáu versum sem presturinn stingur upp á? "Svo elskaði guð heiminn....", "Ég er vegurinn, sannleikurinn..." Væri ekki gaman að hafa frumleg vers sem þú átt örugglega eftir að muna? Hérna er listi með nokkrum þannig versum. Ef presturinn vill ekki nota þau þá væri snjallt að spyrja hann hvers vegna hann vilji það ekki, sérstaklega þegar um er að ræða tilvitnanir í Jesú.
Lesa Fermingarvers VantrúarÁ einni af heimasíðum Þjóðkirkjunnar, www.tru.is, bar Katla Björg Kristjánsdóttir upp þrjár góðar og gildar spurningar:
Íris Kristjánsdóttir, sóknarprestur í Hjallakirkju, varð fyrir svörum. Svarið við fyrstu spurningunni er á þessa leið:
Lesa Þverstæða og rangfærslur séra Írisar KristjánsdótturMovable Type
knýr þennan vef