Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Stjórnlagaráð

17.07.11

Moðsuða stjórnlagaráðs

Ritstjórn
11. fundur Stjórnlagaráðs

Einn af fjórum hornsteinum stjórnskipunar landsins er að mismuna megi trúfélögum. Sá hyrningarsteinn ber heitið "Þjóðkirkja" í stjórnarskrá, a.m.k. ef moðsuða Stjórnlagaráðs nær fram að ganga. Eða hvað?

Lesa Moðsuða stjórnlagaráðs
Ritstjórn | Viðbrögð (14)

13.07.11

Stjórnlagaráðsfulltrúar, að gefnu tilefni

Egill Óskarsson
Ríki og kirkja

Svo virðist sem að „lending“ Stjórnlagaráðs hvað varðar ákvæði um ríkiskirkju sé sú að tryggja stöðu ríkiskirkjunnar áfram. Nú er ákvæðið komið með sinn eigin undirkafla sem heitir „Þjóðkirkjan“ og er hann í þeim hluta tillagna Stjórnlagaráðs sem fjallar um undirstöður samfélagsins.

Lesa Stjórnlagaráðsfulltrúar, að gefnu tilefni
Egill Óskarsson | Viðbrögð (6)

12.07.11

Vanhæfi Stjórnlagaráðs

Ritstjórn
11. fundur Stjórnlagaráðs

Nú er Þjóðkirkjuákvæðið orðið að undirstöðu stjórnskipunar á Íslandi samkvæmt nýjustu tillögu Stjórnlagaráðs að drögum að stjórnarskrá. Lengi getur vont versnað.

Lesa Vanhæfi Stjórnlagaráðs
Ritstjórn | Viðbrögð (9)

27.06.11

Kristin þjóð í stjórnarskrá

Ritstjórn

Stjórnlagaráðsmaðurinn Dögg Harðardóttir styður það að í nýrri stjórnarskrá verði tekið fram að "við" séum kristin þjóð:

Myndband
Lesa Kristin þjóð í stjórnarskrá
Ritstjórn | Viðbrögð (15)

25.06.11

Óráð stjórnlagaráðs

Reynir Harðarson
11. fundur Stjórnlagaráðs

Stjórnlagaráð afgreiddi mannréttindakafla A-nefndar inn í áfangaskjal ráðsins á 14. ráðsfundi í hádeginu í gær þar sem lagður var fram auka valkostur um þjóðkirkjuna.

Lesa Óráð stjórnlagaráðs
Reynir Harðarson | Viðbrögð (4)

24.06.11

Gallaðar forsendur Daggar Harðardóttur

Egill Óskarsson
Trúarbrögð og vísindi

Dögg Harðardóttir stjórnlagaráðsfulltrúi skrifar litla grein í Fréttablaðið 21. júní. Þar setur hún fram ákveðna röksemdafærslu fyrir því að borgarráð Reykjavíkur eigi að hafna tillögum mannréttindaráðs borgarinnar um samstarf skóla og trú- og lífsskoðunarfélaga.

Lesa Gallaðar forsendur Daggar Harðardóttur
Egill Óskarsson | Viðbrögð (7)

08.06.11

Stjórnlagaráð hikstar

Reynir Harðarson
11. fundur Stjórnlagaráðs

Frelsi, jafnrétti og bræðralag voru einkunnarorð frönsku byltingarinnar. Kirkjan hefur lengst af staðið gegn þessu öllu, og gerir enn, enda vildu Frakkar ekkert með hana hafa í sinni stjórnarskrá, Bandaríkjamenn ekki heldur.

Lesa Stjórnlagaráð hikstar
Reynir Harðarson | Viðbrögð (8)

06.06.11

Blá epli og bleikar appelsínur

Reynir Harðarson
Epli og appelsínur

Sá ágæti og vandaði maður, Hjalti Hugason, skrifar enn eina greinina um trúfrelsi í Pressuna 1. júní sl. og kallar hana Bleikt eða blátt trúfrelsi. Greinin er eflaust vel meint en illa hugsuð, því miður. Í stað þess að tala um jákvætt trúfrelsi og neikvætt, líkt og hann hefur gert áður, talar hann nú um bleikt og blátt, sem er vissulega til bóta. En Hjalti fellur í þá gryfju að bera saman epli og appelsínur. Eflaust áttar hann sig ekki á því og því er fagnaðarefni að geta leiðrétt þessa hugsanavillu.

Lesa Blá epli og bleikar appelsínur
Reynir Harðarson | Viðbrögð (4)

05.06.11

Sáttatillaga um 62. grein

Matthías Ásgeirsson
Bann kristni

Þegar fólk heyrir tvö andstæð sjónarmið hefur það tilhneigingu til að telja að "sannleikurinn" liggi mitt á milli þeirra. Þegar tveir deila þarf að komast að samkomulagi þannig að báðir verði sáttir.

Lesa Sáttatillaga um 62. grein
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (10)

31.05.11

Heilindi stjórnlagaráðs

Reynir Harðarson
Stjórnlagaráð

Í Fréttablaðinu er birtur kafli af netskrifum þeirra Valgarðs Guðjónssonar og Illuga Jökulssonar. Valgarður veltir fyrir sér hvort nokkur hætta sé á að prestur í stjórnlagaráði ætli að koma að afgreiðslu ráðsins á hugmyndum um tengsl ríkis og kirkju. Illugi spyr sig og aðra hvort ríkið eigi eða megi styðja og vernda eitt trúfélag umfram önnur og hvort nokkur ástæða sé til að fjalla um trúfélög í stjórnarskrá.

Lesa Heilindi stjórnlagaráðs
Reynir Harðarson | Viðbrögð (5)
Frambjóðendur til stjórnlagaþings sem eru fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju - viðbrögð (31)