Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Stjórnlagaráðsfulltrúar, að gefnu tilefni

Ríki og kirkja

Svo virðist sem að „lending“ Stjórnlagaráðs hvað varðar ákvæði um ríkiskirkju sé sú að tryggja stöðu ríkiskirkjunnar áfram. Nú er ákvæðið komið með sinn eigin undirkafla sem heitir „Þjóðkirkjan“ og er hann í þeim hluta tillagna Stjórnlagaráðs sem fjallar um undirstöður samfélagsins.

Ég ætla endurtaka þetta svo það fari ekki á milli mála hver millileiðin á milli þess að hafa ríkiskirkju í stjórnarskrá og að aðskilja ríki og kirkju er í augum stjórnlagaráðsfulltrúa: Í kafla sem fjallar um undirstöður þjóðfélagsuppbyggingarinnar hér á landi er sérstakur undirkafli sem heitir „Þjóðkirkjan“.

Í kaflanum segir að Alþingi eigi að ákveða - ég feitletra hér til áhersluauka - kirkjuskipan - og breyti svo um lit til að undirstrika fáránleikan - ríkisins!

Ennfremur að allt sem Alþingi ákveði í þessum málum verði að fara í þjóðaratkvæði sem er engin breyting frá því sem nú er.

Ég ætla að vitna í orð nokkurra valinkunnra einstaklinga. Tilvitnanirnar eru teknar úr svörum frambjóðenda við spurningum kirkjunnar um aðskilnað og birtust þau á sérstakri stjórnlagaþingssíðu hennar sem kirkjan hefur reyndar tekið niður núna. En netið gleymir engu:

Já, ég tel þörf á að breyta 62.grein stjórnarskrárinnar. Ég vil tryggja trúfrelsi á Íslandi þannig að allir einstaklingar hafi jafna möguleika á iðka þá trú sem þeir kjósa.
Hver er afstaða þín til núverandi sambands ríkis og þjóðkirkju?
Ég vil afnema það samband sem í dag ríkir á milli ríkis og þjóðkirkjunnar.
Ástrós Gunnlaugsdóttir


Að minni hyggju er ekki aðeins verið að tala um að gera breytingar á stjórnarskrá heldur að semja og setja nýja. Í samræmi við það falla allar greinar hinnar gömlu úr gildi og verða tæpast endurskrifaðar óbreyttar í hina nýju. Trúfrelsi finnst mér svo sjálfsagt að það hljóti að heyra undir almenna frelsisskilmála. Því tel ég að fella beri greinina burt án þess að nokkur ákvæði komi í hennar stað.
Erlingur Sigurðarson


Ég tek það einfaldlega tímaskekkju að ein kirkjudeild njóti sérstaks stuðnings ríkisins. Meðan svo er get ég ekki séð að fullt trúfrelsi ríki í landinu, þar eð sú kirkjudeild mun ævinlega hafa mikið forskot á aðrar kirkjudeildir og önnur trúfélög.
Illugi Jökulsson


Ég hygg að væru menn að skrifa stjórnarskrána frá grunni í þá væri afar ólíklegt að lagt yrði til að ein trúarskoðun eða eitt trúfélag yrði tilgreint sérstaklega með hætti sem nú er gert. Mér fyndist því eðlilegt að þessi umrædda grein myndi víkja úr stjórnarskráni. Í því felst ekki árás á þá trúarskoðun eða það trúfélag heldur, heldur byggist þetta á þeirri skoðun að ríkið eigi að vera hlutlaust þegar kemur að trúmálum.
Pawel Bartosek

Auk ofangreindra lýstu þau Eiríkur Bergmann, Freyja Haraldsdóttir, Katrín Oddsdóttir, Ómar Ragnarsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Þorkell Helgason, Þórhildur Þorleifsdóttir og Örn Bárður Jónsson* því yfir að þau teldu að aðskilja ætti ríki og kirkju,#. Gísli Tryggvason sagðist frekar andvígur en vildi „geyma“ umræðuna og Katrín Fjeldsted sagðist vera hlutlaus en hefur þó hingað til verið ljósið í starfi stjórnlagaráðs. Glöggir sjá að hér er um meirihluta að ræða innan stjórnlagaráðs.

Það tekst kannski einhverjum að láta þetta ríma við „lendingu“ stjórnlagaráðs. Ég get það ekki. Mér finnst niðurstaðan lykta af því að látið hafi verið undan ríkiskirkjusinnum til að halda einhvern „frið“.

Það eru mikil vonbrigði að vilji meirihluta þjóðarinnar, meirihluta stjórnlagaráðs og tveggja þjóðfunda skuli vera hundsaður með þessum skammarlega hætti.


*Túlkun Arnar Bárðar á þessu er þó frekar skrýtin. Hann telur aðalatriðið að ríkið hætti að skipta sér af innri málum kirkjunnar, að hún stjórni sér sjálf, og að það hafi nú þegar náðst í gegn. Hann vill að ríkið fjármagni kirkjuna áfram.

Egill Óskarsson 13.07.2011
Flokkað undir: ( Stjórnlagaráð , Stjórnmál og trú )

Viðbrögð


Anna Benkovic - 13/07/11 13:56 #

Ég trúi ekki ennþá að þetta verði að veruleika og eyðileggi annars gott verk. Þetta er svo mikið rugl og svo þvert ofan í kok á þjóðarvilja, sem hefur margsýnt sig á þjóðfundum og miklum meirihluta stjórnlagaráðsmanna, eins og bent er hér á. Hvaða vald er þetta sem þessir þjóðkosnu fulltrúar eru að taka sér hér? (Falið vald?)


Arnold Björnsson - 13/07/11 19:51 #

Því miður þá er alveg sama hvernig maður skoðar þetta mál að þá getur þetta ekki verið annað en þrýstingur annar staðar frá þ.e. frá lobbíistum þjóðkirkjunnar. Svona margt fólk gengur ekki á bak orða sinna öðruvísi. Sorglegt en örugglega satt.


Anna Benkovic - 13/07/11 22:38 #

Þorvaldur G. segir (http://www.facebook.com/Stjornlagarad?sk=app_190435500990432, min.155) að þjóðkirkjan hafi ekki verið aðili að Hruninu.


frelsarinn (meðlimur í Vantrú) - 15/07/11 07:53 #

Ríkiskirkjan er eina ríkisstofnunin sem hafði sína frambjóðendur. Einnig var Ríkiskirkjan eina ríkistofnunin sem skipti sér að kosningunum með beinum og óbeinum hætti. Stofnunin er með starfsmenn sína inní í stjórnlagaráði og vinnur hörðum höndum með almannatengslafyrirtæki að "hanna" atburðarás. Þetta er ekkert annað en spilling og gjaldþrot lýðræðis. Hvað segði fólk ef Landsvirkjun, Umhverfisstofnun, forsetinn o.s.frv. væru með sína frambjóðendur sem hömuðust á stjórnlagaþinginu.


Óli Jón - 15/07/11 10:23 #

Þetta er hraksmánarleg lending og til vansæmdar öllum sem að henni koma. En 'kirkjuskipan ríkisins' segir auðvitað allt sem segja þarf. Mér finnst, í raun, þetta ráðvillta fólk ganga í raun of skammt. Þau eiga bara hreinlega að lögfesta kristni sem ríkistrú og hætta þessari hálfvelgju.

Svo vil ég líka fá fótboltafélag ríkisins. Það fara, jú, fleiri á völlinn heldur en í kirkju þannig að þar brennur á að ríkið bjóða 'réttan' valkost fyrir pöpulinn.


Vignir - 15/07/11 12:40 #

Halda svo bara messu á vellinum til að kóróna þetta

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.