Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Gallaðar forsendur Daggar Harðardóttur

Trúarbrögð og vísindi

Dögg Harðardóttir stjórnlagaráðsfulltrúi skrifar litla grein í Fréttablaðið 21. júní. Þar setur hún fram ákveðna röksemdafærslu fyrir því að borgarráð Reykjavíkur eigi að hafna tillögum mannréttindaráðs borgarinnar um samstarf skóla og trú- og lífsskoðunarfélaga.

Röksemdafærsla Daggar er í fljótu bragði á þessa leið:

1) Borgarráð verður að styðjast við vísindalegar rannsóknir til þess að geta rökstutt ákvörðun sína í málinu faglega.
2) Rannsóknir sýna að trúuðu fólki vegni betur í lífinu en trúlausum.
3) Reykjavíkurborg ætti því að hvetja börn til þátttöku í trúarlegu starfi.
4) Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður á um að það sem barni sé fyrir bestu eigi að hafa forgang þegar ákvarðanir eru teknar sem varða börn. Útkoman þegar þessar fjórar forsendur eru teknar saman sé sú að borgarráð verði að hafna tillögum mannréttindaráðs samkvæmt Dögg.

Vandamálið er bara að forsendurnar eru ekki nógu sterkar hjá henni og sumar þeirra eru beinlínis gallaðar. Hér verður farið yfir þær lið fyrir lið.

1) Vissulega væri þetta betra. En stjórnvöld taka iðulega ákvarðanir í hinum og þessum málum án þess að byggja fyrst og fremst á niðurstöðum rannsókna.
2) Dögg á að vita að svona málflutningur gengur ekki upp. Hvaða rannsóknir er Dögg að vísa í? Hvar er þær að finna? Hver framkvæmdi þær? Hvenær? Á hvaða forsendum var komist að þessum niðurstöðum? Eru samfélögin þar sem þær voru gerðar lík Íslandi eða ólík? Kemur fram í rannsóknunum að nauðsynlegt sé að taka þátt í starfi trúfélaga eða er nóg að vera trúaður? Og kemur fram að nauðsynlegt sé að trúfélög hafi aðgang að opinberum skólum? Það að vísa almennt í leitarvélar eins og Dögg gerir þykir ekki boðlegt þegar fólk reynir að eigna vísindum skoðanir sínar.
3) Hér er Dögg komin á hálan ís. Hún er ískyggilega nálægt því að leggja til að borgarráð hafni ekki bara tillögunum heldur að trú verði haldið að öllum börnum, óháð trúar- og lífsskoðun barnanna.
4) Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er líka ansi skýr þegar kemur að rétti barna til trúar- og lífsskoðana. Fyrstu tvö ákvæði fjórtándu greinar hans hljóða svona: „1. Aðildarríki skulu virða rétt barns til frjálsrar hugsunar, sannfæringar og trúar. 2. Aðildarríki skulu virða rétt og skyldur foreldra, og lögráðamanna, eftir því sem við á, til að veita barni leiðsögn við að beita rétti sínum á þann hátt sem samræmist vaxandi þroska þess.“

Eins og staðan er í dag er ljóst að margir íslenskir skóla brjóta þessi réttindi barna og foreldra. Það gerist þegar þeim er gert að velja á milli þess að sitja undir trúarstarfi trúfélags sem þau tilheyra ekki eða að hverfa úr hópi samnemenda sinna á meðan slíkt starf fer fram. Tillögur mannréttindaráðs munu verða til þess að slík brot muni vonandi ekki eiga sér stað framar í Reykjavík. Það væri óskandi að fleiri sveitarfélög tækju borgina sér til fyrirmyndar.


Greinin birtist upprunalega á Vísi.is þann 23. júní.

Egill Óskarsson 24.06.2011
Flokkað undir: ( Stjórnlagaráð , Stjórnmál og trú )

Viðbrögð


Reynir (meðlimur í Vantrú) - 24/06/11 09:12 #

Tryggvi Hrólfsson kennari svaraði Dögg líka á visir.is og bent var á þessi orð Daggar í nýlegri grein um Gídeon hérna.


Rökkvi Vésteinsson - 24/06/11 14:45 #

Forsenda 2 er hreinlega öfug. Flestar rannsóknir benda til þess að trúuðum vegni verr í lífinu en trúlausum. Til dæmis er neikvæð fylgni milli velmegunar og trúar ef öll lönd heimsins eru skoðuð saman. Hins vegar er auðvitað rökleysa að fullyrða að ef trúuðum gangi betur (eða verr) í lífinu að þá sé þessi velgengni (eða skortur á henni) nauðsynlega afleiðing af trú (eða trúleysi) einstaklingsins.


Jón Steinar - 25/06/11 04:40 #

Er ekki rétt að rukka manneskjuna um allar þessar "vísindalegu rannsóknir"? Einhverstaðar frá hlýtur hún að hafa þetta, svo það ætti að vera sjálfsagt mál. Pappírana takk.


ETE - 25/06/11 12:37 #

Ótrúleg rök sem þessi kona leggur fram.

Ég mundi hreinlega skammast sín hefði ég sett svona rök fram í umræðuna. Barnaleg "trú er best" rökin.

...að trúuðum vegni betur í lífinu.. þetta er fáránlegt.


ArnarG (meðlimur í Vantrú) - 25/06/11 13:05 #

Dögg er líka algjörlega hlutlaus er kemur að þessum málum og tengist þeim á engan hátt!!!!


Arnar - 25/06/11 16:41 #

Dögg er að gera sig að fífli með þessari grein.


Ægir Sævarsson - 27/06/11 13:26 #

Ég skil þetta ekki alveg. Eru Stjórnarskrárnefndin ekki að reyna að gera stjórnarskrártillögu sem hentar nútíma samfélagi? Hvað á að vera að druslast með 2000 ára gamla skáldsögu þarna inn? Finnst að Dögg ætti að koma með vísindalegar sannanir um tilvist Guðs áður en trúboð fer fram í skólum ;-) svona fyrst hún er með vísindin á hreinu

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.