Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.
Movable Type
knýr þennan vef
Í jól komu út tvær bækur sem gagnrýndu trúarbrögð, Ranghugmyndin um guð og Þú sem ert á himnum, en eins og venjulega komu nokkrar bækur þar sem trúmenn skrifa um ágæti eigin trúar. Ein þeirra var íslensk þýðing á Um Guð eftir Jonas Gardell.
Lesa Um Guð eftir Jonas Gardell
Ekkert rit er líklegra til að grafa undan kristinni trú en Biblían, þ.e.a.s. ef menn lesa hana. Hins vegar er Biblían svo drepleiðinleg að líklega hafa fáir menn lesið hana frá upphafi til enda. Einn þeirra er Úlfar Þormóðsson og hann punktaði hjá sér það helsta við lesturinn jafnóðum auk athugasemda stíluðum á guð almáttugan. Úlfar hlaut dóm fyrir guðlast á sínum tíma og auðvitað geta lesendur Vantrúar lesið sér til um þann hræðilega glæp hérna (Ath. alls ekki fyrir viðkvæma guðfræðinema.)
Ertu að spá í bókakaupum? Ertu í einhverjum vafa hvaða bók á að kaupa? Ertu kannski að spekúlera í einhverjum efahyggjubókum? Ef svo er þá höfum tekið saman lista yfir 13 bækur sem við í Vantrú mælum sterklega með til að gefa skeptíkerum, trúleysingjunum og öðrum, sem þætti þetta jafnvel forvitnilegt efni, að gjöf.
Lesa 13 bækur sem Vantrú mælir meðÍ umræðum um trúmál þvælist gjarnan fyrir að fólk virðist hafa mismunandi skilgreiningar á grundvallarhugtökum. Mig hefur lengi fundist það vanta bók sem myndi skilgreina helstu hugtökin sem eru notuð í trúmálaumræðunni svo að það væri hægt að ræða eitthvað annað en endalausar skilgreiningar.
Lesa Orðabók leyndardómanna
Þegar ég frétti að bókin Alkasamfélagið, eftir Orra Harðarson, væri á leiðinni varð ég óður og uppvægur að fá að ritdæma hana fyrir Vantrú. Ég sjálfur hef nefnilega gengið í gegnum það sama og Orri. Dómur minn um Alkasamfélagið er því óhjákvæmilega litaður af því. Til að vera alveg hreinskilinn þá er ég búinn að vera að bíða eftir svona bók frá árinu 2003.
Ég las bókina í tveimur 45 mínútna lotum í síðustu viku og konan mín hélt að ég væri að horfa á fótbolta því ég fagnaði ógurlega þegar Skagamaðurinn Orri hitti í mark með reynslulýsingum sínum á AA fundum, talibönum og “lausninni”.
Lesa Alkasamfélagið
Til að byrja með er best að taka fram að ég er enginn aðdáandi Dawkins, ég hef að vísu lesið eina bók eftir hann, The God Delusion, en fannst hún ekkert sérstök. Ég hef lesið betri bækur um trúleysi og gagnrýni á trú og tel helsta kost Dawkins vera þann að hann er góður að vekja athygli á þessu málefni.
Lesa Ranghugmyndir Alisters McGraths