Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.
Movable Type
knýr þennan vef
Þá er komið að því að tilkynna úrslit kosninga Ágústínusarverðlauna Vantrúar 2010. Það er auðvitað til mikils að vinna, en sigurvegarinn fær páskaegg og sérstakt viðurkenningaskjal fyrir afrek sín í guðfræðilegum vísindum sem afhent verður á hinu árlega bingói Vantrúar þann 22. apríl nk. Við vonum bara að sigurvegarinn láti sjá sig til að taka við þessum veglegum verðlaunum.
Við óskum verðlaunahöfum 2010 innilega til hamingju, og megi þeir tjá sig sem mest þetta árið.
Lesa Ágústínusarverðlaun Vantrúar 2010 : ÚrslitÓneitanlega hafa margir guðspekingar, -doktorar og -fræðingar beðið með greipar spenntar í von um að vera tilnefndur til hina eftirsóttu Ágústínusarverðlauna Vantrúar vegna afreka og gjörða í guðfræðilegum vísindum árið 2010. Þessi afar eftirsóttu verðlaun hafa verið veitt ár hvert síðan 2006. Sérstök og leynileg dómnefnd hefur nú undanfarna þrjá mánuði farið yfir hvern einasta stafkrók lærðra sem leikna guðvísindamenn sem tilnefndir voru árið 2010 og skilað af sér 10 tilnefningum sem lesendum býðst að kjósa um í leynilegri kosningu sem ætti að standast allar alþjóðlegar kröfur.
Takið þátt í kosningu Ágústínusarverðlauna Vantrúar 2010
Kosning stendur yfir í fimm daga og við lofum að birta niðurstöðurnar þann 13. apríl.
Lesa Ágústínusarverðlaun Vantrúar 2010Vegna tæknilegra vandamála tafðist birting á niðurstöðum úr kosningu á merkustu guðfræðiummæla ársins 2009. Verðlaunanefndin er nú á fullu að vinna úr hinum fjöldamörgu tilnefningum sem hún fékk vegna síðastliðins árs og bráðum verður kosið úr þeim tilnefningum.
Við viljum óska verðlaunahöfum ársins 2009 til hamingu.
Lesa Ágústínusarverðlaun Vantrúar 2009Meðan beðið er eftir úrslitum kosninganna þá hefur dómnefnd Ágústínusarverðlaunanna ákveðið að gefa lesendum kost á að lesa þær tilnefningar sem komust ekki í úrslit. Það má vera að lesendur séu ósammála um valið, en vert er að minnast á að dómnefndin valdi þau ummæli af kostgæfni og alúð.
Lesa Ágústínusarverðlaun Vantrúar 2009: Hratið
Eins og flestir lesendur Vantrúar vita þá hafa hin eftirsóttu Ágústínusarverðlaun ekki enn verið veitt í ár. En Ágústínusarverðlaunin hafa verið veitt til lærðra sem leikra guðfræðinga fyrir afrek þeirra í guðfræðilegum vísindum síðan árið 2006.
Dómnefnd Vantrúar hefur í tvo mánuði legið yfir ótal tilnefningum sem bárust henni á síðastliðnu ári. Nefndin hefur tilnefnt tíu ummæli og nú eru það lesendur Vantrúar sem ákveða hvaða guðvísindamaður hefur komið með merkasta innleggið í trúmálaumræðuna á Íslandi á árinu 2009
Takið þátt í kosningu Ágústínusarverðlauna Vantrúar 2009
Kosning stendur yfir í eina viku.
Lesa Ágústínusarverðlaun Vantrúar 2009Úrslit kosninga um Ágústínusarverðlaunin fyrir afrek í guðfræði eru ljós. Við þökkum lesendum okkar fyrir aðstoðina. Sjáum hverjir komust í efstu þrjú sætin.
Stjórnmálamenn eru áberandi á toppnum í ár enda voru þeir margir hverjir orðheppnir í umræðunni um kristilegt siðgæði, en hverjir sköruðu framúr?
Lesa Ágústínusarverðlaunin 2008 hlýtur...Kosning um Ágústínusarverðlaun Vantrúar fyrir árið 2008 stendur yfir. Eftir mikla yfirlegu valdi dómnefnd tíu tilvitnanir sem komust í úrslit. Við hvetjum alla til að kjósa.
Hér eru nokkur ummæli sem ekki hlutu náð fyrir augum dómnefndar.
Lesa Ágústínusarverðlaun - hratiðEftir að hafa legið yfir tilnefningum daga og nætur hefur dómnefnd Ágústínusarverðlaunanna loks valið tíu tilvitnanir sem keppa um hin eftirsóttu Ágústínusarverðlaun. Í ár verður hins vegar tekin upp sú nýbreytni að lesendur Vantrúar fá að kjósa á milli þessara tíu fleygu tilvitnana.
Takið þátt í kosningu Ágústínusarverðlauna Vantrúar 2008
Kosning stendur yfir í eina viku.
Ágústínusarverðlaun fyrri ára.
Vantrú hefur nú í tvö ár veitt verðlaun fyrir framfarir í kristilegum guðvísindum sem prestar og aðrir trúmenn láta útúr sér á hverju ári sem fengið hefur nafnið Ágústínusarverðlaunin. Til stendur að gera þetta að veglegri hátíð í framtíðinni þar sem verðlaunahöfum verða veitt glæsilegt og innrammað viðurkenningaskjal fyrir ívíð kærleiksríkan og kristilegan málflutning. Árið 2007 komu vissulega ýmis gullkorn frá pontum og bloggum trúaðra guðfræðinga rétt einsog árið 2006 og 2005, og vonandi verður engin skortur á viðlíka guðfræðilegum afrekum þetta árið.
Lesa Ágústínusarverðlaun Vantrúar 2007Eins og landsmenn vita þá eru Ágústínusarverðlaun Vantrúar án efa eftirsóttustu guðvísindaverðlaun Íslands. Síðastliðið ár var síður verra en allar þær stórfenglegu uppgötvanir sem voru gerðar árið 2005. Tuttugasta öldin var ef til vill öld raunvísindanna, en allt stefnir í að nú sé upp runninn öld guðvísindanna.
Lesa Ágústínusarverðlaun Vantrúar 2006