Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Listi

21.05.11

5 leiðir til að njóta heimsendis

Ritstjórn

Háskóli Íslands

Einsog alþjóð veit mun heimsendir hefjast í dag, 21. maí. Það eru einhverjir sem skjálfa á beinunum yfir þessu, aðrir sem taka þessu með jafnaðargeði, og enn fleiri sem spá ekki mikið í þessu. En samkvæmt helstu boðberum sannleikans í þessum efnum þá er nokkuð öruggt að dómsdagur hefst í dag og heimurinn mun svo enda 21. október. Svo hér eru fimm leiðir til að njóta tímans meðan þú getur.

Lesa 5 leiðir til að njóta heimsendis
Ritstjórn | Viðbrögð (7)

01.05.11

Sex góðar ástæður til að láta bólusetja sig

Rebekka Búadóttir

Skopmynd frá 1803

Því miður gerir sumt fólk ekki almennilega grein fyrir kostum bólusetningar. Sumir einstaklingar ganga svo langt að segja að mislingar séu ekki hættulegir. Það eru margar góðar ástæður fyrir því af hverju við búum við frekar góða heilsu núna á 21. öldinni. Vegna stórkostlega læknisfræðilegra afreka á 19. og 20. öldinni. Og þeim afrekum er ekkert að linna.

Lesa Sex góðar ástæður til að láta bólusetja sig
Rebekka Búadóttir | Viðbrögð (13)

23.12.09

Einn guð og aðeins einn Guð

Ritstjórn

inn eini sanni Gvuð úr Leitinni að hinu heilaga grali

Okkur er sagt að það sé bara einn guð til. Það þarf ekkert gríðarlegt gáfumenni til að álykta að það sé bull...

Lesa Einn guð og aðeins einn Guð
Ritstjórn | Viðbrögð (25)

22.12.09

Tvær topp ástæður til að halda upp á jólin

Ritstjórn

Hátíðin er í þann veginn að renna upp og undirbúningur í hámarki!!! Aðeins tveir dagar til stefnu!!! Ó, við hlökkum svo til (sbr. Svölu Björgvins). Hvað ætli fólk - sem á annað borð gefur og þiggjur gjafir á þessum degi - fái í hendurnar? Örugglega alveg haug af dóti; tölvuleikjum, mynddiskum, kassettum, geisladiskum, blúreij, græjum, tólum, kerti og spil. Stór hluti þjóðarinnar mun gleðjast á einhvern hátt, en það þarf nú varla að taka það sérstaklega fram að til eru frávik - t.d. hvort sem fólk heldur uppá jólin, gefur gjafir og/eða gleðst ekki.

En við - sem getum hugsanlega glaðst og fagnað þessari hátíð - gerum það kannnski ekkert sérstaklega útaf gríðarlega mismunandi ástæðum. Við sem erum trúlaus fögnum til að mynda útaf hinum mannlegu gildum - félagslífinu sem myndast í kringum þessa hátíð. Við gleðjumst yfir því að hitta fjölskyldu og nána vini, borða með þeim, drekka og spjalla. Tim Minchin gerir þessu góð skil í jólalagi sínu.

Lesa Tvær topp ástæður til að halda upp á jólin
Ritstjórn | Viðbrögð (1)

21.12.09

Þrjár þéttar Vantrúargreinar

Ritstjórn

Þetta vefrit er búið að vera í gangi í vel á sjöunda ár. Væri það mannsbarn, væri það nú á skólaskyldualdri og því varnarlaust gagnvart trúboði í skólum, nema við foreldrarnir létum taka það til hliðar þegar presturinn kemur, eða farið er í kirkju til að kipra augun og biðja til guðs.

Í öll þessi ár hafa safnast saman margar verulegar góðar greinar, en auðvitað eru þarna margar slakari líka.

Lesa Þrjár þéttar Vantrúargreinar
Ritstjórn | Viðbrögð (0)

20.12.09

Fjórir fræknir guðfræðingar

Ritstjórn

Austurvöllur

Vegna jólaanna, þá datt topp fimm listinn út, en vonandi getiði fyrirgefið það svona fyrst það eru að koma jól. Það eru nefnilega aðeins fjórir dagar til jóla, og ekki laust við það að jólaskapið sé að gera útaf við okkur, þannig að í anda hátíðarinnar datt okkur í hug að senda smá jólakveðjur.

Hér eru fjórir guðfræðingar sem vakið hafa sérstaka athygli Vantrúarmanna undanfarin ár og fá þar af leiðandi sérstakar hátíðarkveðjur frá okkur í Vantrú. Segja má að þetta sé forsmekkurinn af Ágústínusarverðlaunum 2009.

Lesa Fjórir fræknir guðfræðingar
Ritstjórn | Viðbrögð (5)

18.12.09

6 topp-tónlistarmenn um trúarbrögð

Ritstjórn

Fyrir sjötta dag jóla gaf Vantrúin góða mér
sex fagra tóna
sjö tól flóna
átta hluti að góna á
níu til að stara á
tíu níðinga og róna
ellefu erkidóna
tólf...ööh.. rök...eftir bjána
þrettán bókakóna

og gleði og haaaaamingju!

Fjölmargir tónlistarmenn eru trúleysingjar eða efahyggjumenn. Það kom okkur skemmtilega á óvart að heyra þessa hugvekju Simon Le Bon, forsprakka hljómsveitarinnar Duran Duran þar sem hann ræðir um trúna sem hann átti áður og trúleysið, kemur meðal annars inn á jólin og jólalögin.

Áfram heldur niðurtalninginn til jóla og við hlökkum svo til. Í þetta sinn ætlum við að benda á sex tónlistarmenn sem hafa gagnrýnt trúarbrögð.

Lesa 6 topp-tónlistarmenn um trúarbrögð
Ritstjórn | Viðbrögð (15)

17.12.09

7 fíflaleg fyrirbæri

Ritstjórn

Sumar fullyrðingar eru dálítið vafasamar, aðrar frekar undarlegar og enn fleiri afskaplega skrítnar. Svo eru það fíflalegu fyrirbærin sem krefjast þess af fólki að það taki alla skynsemi og gagnrýna hugsun og sturti í salernið.

Í dag rifjum við upp sjö fíflaleg fyrirbæri sem við höfum fjallað um á Vantrú síðustu árin.

Lesa 7 fíflaleg fyrirbæri
Ritstjórn | Viðbrögð (6)

16.12.09

8 kvikmyndir sem Vantrú mælir með

Ritstjórn

Bara átta dagar til jóla og enn einn listinn frá okkur jólasveinunum á Vantrú. Það er oft gott að orna sér við ylinn frá sjónvarpskjánum og stara á ágætis kvikmynd eftir að hafa torgað í sig jólamatinn og opnað jólapakkana, bara svona rétt aðeins til að slaka á. Hér eru átta kvikmyndir sem við í Vantrú mælum með til þeirra sem á annað borð hafa gaman af kvikmyndum. Hver veit? Hér gæti leynst ágætis hugmynd að jólagjöf.

Lesa 8 kvikmyndir sem Vantrú mælir með
Ritstjórn | Viðbrögð (8)

15.12.09

9 þáttaraðir sem Vantrú mælir með

Ritstjórn

Við höldum áfram að telja niður og í anda jólana þá höfum við útbúið enn einn listann fyrir ykkur kæru lesendur. Tilgangurinn með þessum lista er sá hinn sami og með bækurnar 13 sem við mæltum með, en það er að benda ykkur á áhugaverðar þáttaraðir sem gætu kannski vakið áhuga ykkar. Svo hvetjum við ykkur auðvitað til að stinga uppá einhverjum þáttaröðum í athugasemdakerfinu sem kynnu að vekja forvitni okkar og annara.

Lesa 9 þáttaraðir sem Vantrú mælir með
Ritstjórn | Viðbrögð (1)
10 trúlausir húmoristar - viðbrögð (11)
11 klisjur um Vantrú - viðbrögð (8)
12 ástæður þess að Þjóðkirkjan er ríkiskirkja - viðbrögð (3)
13 bækur sem Vantrú mælir með - viðbrögð (11)