Heilagur hryllingur


Heilagur hryllingur IX: Endurskírendur

Endurskírandi tekinn af lífi með drekkingu árið 1592 í Weir.

Lesa Heilagur hryllingur IX: Endurskírendur
Frelsarinn |

Heilagur Hryllingur VIII: Blóðugu siðaskiptin

Mynd frá þrátíu ára stríðinu sem sýnir kaþólskan prest blessa mótmælendur sem teknir eru af lífi.

Lesa Heilagur Hryllingur VIII: Blóðugu siðaskiptin
Frelsarinn | Viðbrögð (8)

Heilagur hryllingur VI: Svartidauði

Þegar svartidauði lagðist sem plága yfir Evrópu árið 1348 með tilheyrandi mannfelli voru kristnir íbúar álfunnar fljótir að finna sökudólga. Töldu kristnir að gyðingar eitruðu vatnsbrunna til að koma af stað farsótt í þeirra hverfum. Fjöldamorð hófust á gyðingum í u.þ.b. 300 bæjum. Engum gyðingi var eirt nema að hann gengist umsvifalaust undir skírn og tæki trú á Jesú Krist. Í Strassborg voru yfir 200 gyðingar drepnir með því safna þeim saman í kornhlöðu sem síðan var brennd með körlum, konum og börnum.

Lesa Heilagur hryllingur VI: Svartidauði
Frelsarinn | Viðbrögð (0)

Heilagur hryllingur IV: Hinn heilagi kaþólski rannsóknarréttur

Þegar fórnarlamb rannsóknarréttsins var tekið af lífi þá hét sú kirkjulega athöfn „auto-da-fé“ eða „gjört af trú“.

Lesa Heilagur hryllingur IV: Hinn heilagi kaþólski rannsóknarréttur
Frelsarinn | Viðbrögð (13)

Heilagur hryllingur

Það fer yfirleitt leynt að milljónir barna, kvenna og karla voru tekin af lífi í nafni Jesú Krists. Kristnir trúmenn kunna yfirleitt ekki að skammast sín frekar aðrir helfaraafneitarar. Fjöldamorðin, misþyrmingarnar og ómennska kristninnar er afsökuð sem mistök eða yfirsjón. Að kristnir gerendurnir voru ekki “rétt” kristnir eða afvegaleiddir syndarar. Þessi afsökun er jafn heimskuleg og af sama toga og sú sem fórnarlömb kirkjunnar voru oft dæmd fyrir. Ekki “rétt” kristinn eða villutrú voru orð böðulsins forðum. Í dag, sunnudag, streyma atvinnugóðmenni út til að boða fagnaðarerindið sem tók líf svo margra. Þeir styðjast við sömu bókmenntir og böðlarnir. Yfirburðastaða kirkjunnar í lífi hvers Íslendings var fengin með ofbeldi. Það er undarlegt að geta lifað sáttur við hlutverk sitt sem prestur í dag, það er svipað eins og að aka um á stolnum bíl þar sem eigandinn var myrtur.

Lesa Heilagur hryllingur
Frelsarinn | Viðbrögð (18)

Heilagur hryllingur III: Villutrú

Mynd af fjöldamorðum þegar tvö þúsund Valdensar voru teknir af lífi í suður Ítalíu árið 1560 af kaþólskum her undir stjórn Michele Chislieri sem síðar varð Píus Páfi V og á endanum dýrlingur.

Lesa Heilagur hryllingur III: Villutrú
Frelsarinn | Viðbrögð (18)

Heilagur hryllingur II: Meintar oblátukrossfestingar Gyðinga

Á fjórða kirkjuþinginu í Lateran árið 1215 var öllum Gyðingum fyrirskipað að auðkenna sig á ekki ósvipaðan hátt og nasistar innleiddu á 20. öldinni, ásamt því að lifa í sérstökum gettóum fyrir Gyðinga. Á þessu kirkjuþingi var gjörbreytingarkenningin samþykkt. Hún þýddi að messuvínið og oblátur breyttust blóð og líkama Krists á meðan messu stóð. Ekki leið á löngu að sú saga barst á milli manna að Gyðingar steldu oblátum til að krossfesta eða stinga þær svo úr þeim blæddi blóð Krists.

Lesa Heilagur hryllingur II: Meintar oblátukrossfestingar Gyðinga
Frelsarinn | Viðbrögð (1)

Heilagur hryllingur I: Meintar blóðfórnir Gyðinga á börnum

Öldum saman hefur Kaþólska kirkjan predikað að Gyðingar séu morðingjar Krists og eitt af áróðurstækjum kirkjunnar manna var að saka þá um að fórna kristnum börnum. Tökum nokkur dæmi um áróður kirkjunnar: Heilagur Gregorí kallaði þá “Morðingja Krists, spámannanna og fjandmenn Guðs”. Heilagur Jeremías kallaði þá nöðrur og bölvalda. Heilagur Bernard frá Clairvaux kallaði þá “Smælki og perverta”. Þegar biskup nokkur lét brenna bænahús Gyðinga í Callinicum skrifaði heilagur Ambrósíus “Hverjum er ekki sama þótt samkunduhús þeirra séu eyðilögð. Þau eru heimili geðveiki og villutrúar”. Heilagur Jóhannes Chrysostom skrifaði “Gyðingarnir fórnuðu börnunum sínum í nafni Satans. ... Þeir eru verri en villidýr ... bænahús þeirra eru hóruhús, bæli full af illmennum, musteri djöfla og skurðgoðadýrkenda, heimili glæpamanna sem fyrirskipuðu aftöku Krists.”

Lesa Heilagur hryllingur I: Meintar blóðfórnir Gyðinga á börnum
Frelsarinn | Viðbrögð (4)