Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
Veðmál Pascals
09.06. kl: 13:37
11 klisjur um Vantrú
28.12. kl: 16:05
Argumentum ad populum
10.04. kl: 10:57
Athyglisverð köpuryrði frá Agli Helgasyni
25.01. kl: 18:06
Sök vegna tengsla
25.01. kl: 08:50
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Rökvillur

29.05.11

Veðmál Pascals

Svavar Kjarrval
Pascal

Margir trúaðir beita einhverri útgáfu af veðmáli Pascals í von um að sannfæra aðra um að það sé þess virði að trúa á æðri mátt. Ætlunin mín er að taka fyrir helstu rökin fyrir því að veðmálið standist enga skoðun í von um að fólk hætti að beita því sem rökum fyrir því að trúa á ákveðinn æðri mátt.

Lesa Veðmál Pascals
Svavar Kjarrval | Viðbrögð (19)

13.12.09

11 klisjur um Vantrú

Ritstjórn

Vantrú hefur verið ásakað um ýmislegt þau ár sem félagið hefur verið starfandi. Það getur verið hvimleitt að leiðrétta þessar rangfærslur hvað eftir annað þannig að okkur langar hafa hér til taks ellefu klisjur sem hafa verið notuð gegn Vantrú (og bara á trúleysingja almennt). Þetta er alls ekki tæmandi listi og eflaust ýmislegt sem vantar. Einnig viljum við vara við að klisjurnar hafa verið einfaldaðar til muna, en það er nú bara af þeirri einföldu ástæðu að þessi rök rista grunnt.

Lesa 11 klisjur um Vantrú
Ritstjórn | Viðbrögð (8)

05.04.06

Argumentum ad populum

Sverrir Guðmundsson

„Argumentum ad populum“ er dæmi um röksemdafærslu sem oft er gripið til en gengur ekki upp. Hún er á þessa leið:

Lesa Argumentum ad populum
Sverrir Guðmundsson | Viðbrögð (30)

28.01.06

Rökvilla brunnmígsins

Vésteinn Valgarðsson

Rökvilla brunnmígsins felst í því að sett er fram neikvæð staðhæfing um viðmælandann fyrirfram og gefið í skyn að þess vegna hljóti hann að hafa rangt fyrir sér, með því að láta áheyranda fá slæma tilfinningu fyrir honum áður en hann hlustar á málflutninginn. Dæmi um þetta gæti verið að fundarstjóri kynnti næsta ræðumann og skýrði áheyrendum í leiðinni frá því að hann væri dæmdur stríðsglæpamaður og öfuguggi.

Vésteinn Valgarðsson | Viðbrögð (0)

23.01.06

Athyglisverð köpuryrði frá Agli Helgasyni

Vésteinn Valgarðsson

Í nýlegri grein, Um fordóma og fáfræði, fjallar Egill Helgason um biskup og fjaðrafokið sem hann olli með ummælum sínum í nýjárspredikuninni góðkunnu. Egill getur ekki stillt sig um að hnýta aðeins í trúleysingja í leiðinni, með sérstakri vísun í Vantrú. Eins og gefur að skilja er ekki hægt að taka því þegjandi.

Lesa Athyglisverð köpuryrði frá Agli Helgasyni
Vésteinn Valgarðsson | Viðbrögð (8)

21.01.06

Sök vegna tengsla

Vésteinn Valgarðsson

Sök vegna tengsla er rökvilla sem felst í því að í stað þess að svara málflutningi andmælanda síns bendir maður á að einhver einstaklingur sem fólk hefur almennt andúð á hafi haldið uppi sama málflutningi, og þess vegna hafi andmælandi manns á röngu að standa. Dæmi um þetta er að segja að Stalín hafi unnið gegn skipulögðum trúarbrögðum, og þess vegna sé rangt að vinna gegn skipulögðum trúarbrögðum. Annað dæmi væri að segja að það sé rangt að aðhyllast íslam vegna þess að Ósama bin Laden aðhyllist íslam.

Ein undirtegund af þessari rökvillu er svo algeng að hún ber sérstakt heiti: Líking við Hitler. Dæmi: „Það er rangt að vera grænmetisæta vegna þess að Hitler var grænmetisæta.“

Vésteinn Valgarðsson | Viðbrögð (1)

18.01.06

Árás á persónu vegna aðstæðna

Vésteinn Valgarðsson

Rökvillan Árás á persónu vegna aðstæðna felst í því að í stað þess að svara rökum viðmælandans eða hrekja þau, er gefið til kynna að viðmælandinn hljóti að hafa rangt fyrir sér vegna þess að hann hafi sérstaka hagsmuni af því að hafa rétt fyrir sér. Þess vegna sé hann hlutdrægur og orðum hans sé ekki trúandi.

Lesa Árás á persónu vegna aðstæðna
Vésteinn Valgarðsson | Viðbrögð (0)

10.06.04

Skotfimi kúrekinn

Matthías Ásgeirsson

Rökvilla skotfima kúrekans er nafn sem faraldsfræðingar hafa gefið magnvillunni. Stjórnmálamenn, lögfræðingar og sumir vísindamenn eiga það til að einangra þyrpingu sjúkdómstilfella frá samhengi þeirra og gefa ranglega í skyn að orsakasamhengi sé milli umhverfisáhrifa og sjúkdómsins. Það sem virðist vera tölfræðilega markvert (ekki handahófskennt) er í raun eðlilegt út frá lögmálum líkinda.

Lesa Skotfimi kúrekinn
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (0)

13.04.04

Guðdómlega rökvillan

Matthías Ásgeirsson

Guðdómlega rökvillan eða rökfærslan útfrá skilningsleysi er tegund röksemdafærslu sem er eitthvað í þessa áttina: Ég skil þetta ekki, því hlýtur Guð að hafa gert það. Þetta er stórkostlegt; þar af leiðir, Guð framkvæmdi þetta. Mér dettur engin önnur skýring í hug, þar af leiðir, Guð olli þessu. Þetta er bara of skrítið, því stendur Guð á bak við þetta.

Lesa Guðdómlega rökvillan
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (1)

06.04.04

Fáfræðirökleiðslan

Matthías Ásgeirsson

Fáfræðirökleiðslan (argumentum ad ignorantiam) er rökvilla sem kemur upp þegar því er haldið fram að fullyrðing sé sönn vegna þess að það hefur ekki verið sannað að hún sé ósönn eða að eitthvað sé ósatt vegna þess að það hefur ekki verið sannað að það sé satt.

Lesa Fáfræðirökleiðslan
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (7)
Post hoc rökvillan - viðbrögð (0)
Vísun í yfirvald - viðbrögð (4)