Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.
Movable Type
knýr þennan vef
Þórhallur Heimisson, ríkiskirkjuprestur í Hafnarfirði, sjálfskipaður gæslumaður trúarinnar, réttlætisins og bræðralags tókst nýlega á hendur suðurgöngu að gömlum sið. Með í för voru fjörutíu iðrandi sálir hafnfirskar. Hópurinn bankaði upp á hjá Páfanum, sem hefur getið sér slæmt orð fyrir yfirhylmingu barnaníðingsskapar, smokkabann og andstöðu við öll almenn mannréttindi.
Lesa Hafnfirðingar tefla við páfannÞrátt fyrir endurtekin loforð Vatíkansins um að tekið verði á barnaníði innan Kaþólsku kirkjunnar virðast málin halda áfram að hrannast upp. Presturinn Riccardo Seppia var handtekinn í nágrenni við Genúa á Ítalíu fyrr í mánuðinum og kærður fyrir kynferðisbrot og brot á fíkniefnalögum.
Lesa Áframhaldandi skandalar innan kaþólsku kirkjunnarHans heilagleiki, hinn óskeikuli fulltrúi Guðs (þessa eina) á jörðu, Benedikt XIV páfi (öðru nafni Ratzinger) "hafnar þeirri hugmynd að gyðingar beri ábyrgð á krossfestingu Jesú Krists. Þetta kemur fram í nýrri bók sem verður gefin út í næstu viku. Páfinn telur að það séu engar heimildir sem gefi tilefni til að kenna gyðingum um andlát frelsarans." Þetta kemur fram í frétt á visir.is.
Lesa Páfi dissar guðspjöllinÍ þessum hálftíma þætti er farið yfir skuggahliðar albönsku nunnunnar Agnesar Bojaxhiu, betur þekkt sem Móðir Teresa:
Lesa Engill helvítis: Móðir Teresa
New York Times greindi frá því á dögunum að nú séu loksins komin fram gögn sem sýna ótvírætt það sem menn hefur lengi grunað. Nefnilega að yfirmaður rannsóknarréttar kaþólsku kirkjunnar, kardínálinn Joseph Ratzinger, hafi árum saman hylmt yfir með barnanauðgurum.
Lesa Kaþólskir barnaperrar og Ratzinger páfiNíu ára stúlku í Brasilíu var nauðgað af stjúpföður sínum og varð ólétt af tvíburum. Það þarf ekki læknismenntun til að sjá að þungunin sjálf er stórhættuleg fyrir barnið. Fóstrunum var eytt til að vernda líf stúlkunnar. Kaþólska kirkjan hefur bannfært læknana og móðurina en ekki stjúpföðurinn.
Þarf þessi grein að vera lengri?
Fyrir jól kom út bókin María Magdalena: Vegastjarna eða vændiskona eftir séra Þórhall Heimisson. Í kynningu á bókinni kemur fram að í henni sé "[...] kafað í forn handrit sem mörg hver hafa ekki komið út á íslensku eins og guðspjall Maríu, Filipusarguðsjall, Gullnu sögurnar, Nornahamarinn og fleiri." Ég ákvað að kynna mér bókina aðeins og sjá hve djúpa fræðimennsku Þórhallur hefði ástundað og tók þá Nornahamarinn sem dæmi.
Nornahamarinn eða Malleus Maleficarum er alræmt rit er notað var af þeim sem stunduðu nornaveiðar. Þar eru útlistaðar kenningar um nornir og hvernig skal þefa þær upp. Í formála bókarinnar er yfirlýsing páfa um tilvist norna og hans stuðning við höfundana tvo. Þar á eftir fylgir stuðningsyfirlýsing frá guðfræðideild háskólans í Köln.
Lesa Kafað í barnalauginni: Nornahamarinn og Þórhallur HeimissonÍ september 2005 birti Grand Jury Philadelfíuríkis lengstu rannsókn á kynferðisbrotum katólskra presta sem gerð hefur verið af opinberum aðilum í Bandaríkjunum. Í meira en þrjú ár skráðu niður og birtu rannsóknaraðilar brot yfir sextíu katólskra presta sem misnotuðu hundruðir barna. Í skýrslunni er einnig að finna hvernig yfirmenn kirkjunnar reyndu að hylma yfir brot þessara níðinga. Skýrslan er 423 blaðsíðna löng og með 309 blaðsíðna viðauka. Skýrslan er áhrifamikið skjal bæði vegna þess að skýrsluhöfundar eru óvenju berorðir um níðingsskap prestanna og hversu yfirgripsmikil hún er. Eftir þriggja ára rannsóknarvinnu í leyniskjölum kirkjunnar og í viðtölum við gerendur og fórnarlömbin kemur fram djúpstæð andstyggð á þessum hrottalegu níðingsverkum.
Lesa Skýrsla Grand Jury í Philadelfíuríki frá 2005Nú þegar kaþólsk vika stendur yfir hér á Vantrú fannst mér ekki annað verjandi en að setja eitthvað á blað (skjá?) þar sem ég er víst eini Vantrúarseggurinn sem búsettur er í kaþólsku landi. Ég bý semsagt núverið í Mexíkó og líkar vel þrátt fyrir að kaþólska kirkjan og aðrar skyldar stofnanir guðs séu hér afar fyrirferðarmiklar. Margt hér í landi kemur Íslendingi, sem alinn er upp í síðkristnu lúthersku samfélagi, sérkennilega fyrir sjónir.
Lesa Skeyti frá kaþólsku landiÁ sunnudaginn voru þingkosningar á Spáni, þar sem Sósíalistaflokkur Zapateros forsætisráðherra vann sigur. Eftir að hann komst til valda hefur hann hrundið í framkvæmd margvíslegum þjóðþrifamálum, þar á meðal auðveldað hjónaskilnaði og losað um mjög ströng lög um fóstureyðingar. Auk þess hóf stjórnin rannsókn á glæpum falangistahreyfingarinnar í spánska borgarastríðinu og í stjórnartíð Francos, en kaþólska kirkjan lagði blessun sína yfir þá í meira en 40 ár, þar á meðal morð, og hvatti jafnvel til þeirra. Versti glæpur hinna guðlausu sósíalista var þó, að mati Antonio Maria Rouco Varela, kardínála í Madríd, að heimila staðfesta sambúð samkynhneigðra – hann kallaði það „stærsta áfall í 2000 ár“.
Lesa Spánn: Kaþólska kirkjan gegn mannréttindum