Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
Christopher Hitchens látinn
19.12. kl: 14:12
Minnisvarði Helga Hóseassonar
07.09. kl: 12:05
Heimsókn James Randi
22.07. kl: 17:08
James Randi á Íslandi!
27.06. kl: 09:02
Martin Gardner er látinn
25.05. kl: 09:37
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Samherjar

Samherjar

16.12.11

Christopher Hitchens látinn

Ritstjórn

Því sem staðhæft er án sannana, er hægt að vísa frá án sannana.

Heimspekingurinn, ræðumaðurinn, rit- og pistlahöfundurinn Christopher Hitchens lést í nótt, þann 16. desember. Hann greindist með krabbamein í vélinda vorið 2010. Hitchens var ötull baráttumaður fyrir bættum lífsgæðum og bættri hugsun. Hann var óvæginn í sínum skoðunum hvað varðar trúmál, kreddur, hindurvitni og annað kjaftæði. Hann var vissulega umdeildur og fólk þarf ekki að vera sammála öllu sem hann sagði.

Lesa Christopher Hitchens látinn
Ritstjórn |

06.09.10

Minnisvarði Helga Hóseassonar

Ritstjórn
Whatever

Klukkan sex í dag verður látlaus athöfn á horni Langholtsvegar og Holtavegar til að minnast þess að ár er liðið frá láti Helga Hóseassonar. Um leið verður afhjúpuð minningarhella sem komið hefur verið fyrir á sama stað.

Í minningargreinum er gjarnan vitnað í þau orð Hávamála að orðstír deyi aldrei eða dómur um dauðan hvern. Í lifanda lífi var Helgi oft litinn hornauga og smánarleg var sú afgreiðsla sem hann fékk hjá fyrirmönnum þjóðarinnar og sér í lagi Þjóðkirkjunnar. Helgi var hreinn og beinn, heill í gegn.

Lesa Minnisvarði Helga Hóseassonar
Ritstjórn | Viðbrögð (7)

16.07.10

Heimsókn James Randi

Ritstjórn
James Randi

Vonandi fór það ekki fram hjá neinum að sjónhverfinga- og efasemdamaðurinn James Randi sótti okkur Íslendinga heim og hélt fyrirlestur á vegum Vantrúar og Siðmenntar í Háskóla Íslands 24. júní sl.

Tilefni komu hans var að í þætti sem hægt er að finna á Youtube sagðist hann gjarnan vilja fara til Íslands áður en ævin væri öll. Við í Vantrú tókum hann á orðinu og buðum honum hingað sem hann og þáði ef okkur tækist að greiða kostnaðinn. Á móti bauðst hann til að halda hér fyrirlestur endurgjaldslaust. Þar sem Vantrú fær enga milljarða úr ríkissjóði, líkt og ríkiskirkjan, ákváðum við að leita eftir samstarfi við Siðmennt til að minnka áhættuna á stórtapi af þessu fyrirtæki.

Lesa Heimsókn James Randi
Ritstjórn | Viðbrögð (9)

25.05.10

Martin Gardner er látinn

Reynir Harðarson

Martin Gardner

Martin Gardner er látinn (21. október 1914 – 22. maí 2010). Hann var einn helsti gagnrýnandi gervivísinda á 20. öld.

Lesa Martin Gardner er látinn
Reynir Harðarson | Viðbrögð (1)

17.05.10

James Randi á Íslandi!

Ritstjórn
James Randi.jpg

James Randi heldur fyrirlestur um hnignun skynseminnar og hindurvitni í boði Vantrúar og Siðmenntar 24. júní næstkomandi á Háskólatorgi, sal 105 kl. 20-21.

Lesa James Randi á Íslandi!
Ritstjórn |

14.12.09

10 trúlausir húmoristar

Ritstjórn

Stærðfræðingurinn og heimspekingurinn Alfred North Whitehead sagði það einkennilegast í samanlagðri bókmenntasögunni hve gjörsneydd biblían er af allri kímni. Þrátt fyrir það er bókin sú sennilega ein helsta uppspretta kímni á vorum dögum, en með þeim formerkjum þó að við hlæjum ekki með henni heldur að henni og vitleysunni, sem þar er haldið til streitu. Doktorsritgerð sr. Jakobs Jónssonar - Kímni og hæðni í nýja testamentinu (1965) - er oft tilvitnuð sem heimild um húmor í biblíunni, en þrátt fyrir góðan vilja tekst Jakobi ekki að sýna fram á að kímni eigi sér þar nokkurn stað. Góðvinur Vantrúar, sr. Örn Bárður, heldur þessu fram: "Jesús var húmoristi og margt af því sem eftir honum er haft í Biblíunni er án efa þrungið ískrandi húmor sem erfitt er reyndar að sjá í rituðum texta en var augljóst í lifandi flutningi". Þetta er auðvitað svona eins og þegar einhver segir misheppnaðan brandara, en klykkir út með því að segja hversu fyndinn hann hafi verið þegar 'hann Nonni' sagð'ann.

Hér er hins vegar að finna tíu snillinga sem eru fyndnir í alvörunni og enginn verður svikinn af að hlusta og horfa á. Allir eiga þeir það sammerkt að vera óbrenglaðir af trú á hindurvitni trúarbragðanna og með kímnina að vopni benda þeir á hversu trúin er hjákátleg þegar allt kemur til alls. Njótið vel.

Lesa 10 trúlausir húmoristar
Ritstjórn | Viðbrögð (11)

25.10.09

Gurrí Haralds er númer þúsund

Ritstjórn

Gurrí Haralds
"Trúmál ættu að vera einkamál hvers og eins."

Ég hef ætlað að segja mig úr Þjóðkirkjunni árum saman ýmissa hluta vegna en einhver veginn vaxið það í augum þar sem ég er bíllaus og hélt að ég þyrfti að fara á Hagstofuna til að gera þetta. Það var síðan í gegnum Facebook vin minn, meðlim í Vantrú, að ég fékk leiðbeiningar og ákvað að drífa í þessu. Ég vil taka fram að gefnu tilefni að ég gerði þetta bláedrú og ekki á öldurhúsi.

Lesa Gurrí Haralds er númer þúsund
Ritstjórn | Viðbrögð (8)

02.10.09

Til minningar um Helga Hóseasson IV

Þóra Fjeldsted

Í Helga Hóseasssyni kynntist ég manni sem var hinn mesti höfðingi heim að sækja og indælismaður í öllum okkar samskiptum. Hann hafði geislandi sköpunargáfu sem braust fram á ýmsan máta. Í riti, ræðu, skiltum og mótmælum af ýmsu tagi mátti sjá tákn- og orðheim sem var í mörgu sérstakur, eins og Helgi var sjálfur, og ákveðin áferð var á því sem hann gerði.

Þetta kom til af því að hann vandaði til í öllu sem hann gerði, var vel lesinn. Í starfi þótti hann með afbrigðum góður smiður. Hann og félagi hans og eiginkona Jóhanna réttu mörgum hjálparhönd í tímans rás

Lesa Til minningar um Helga Hóseasson IV
Þóra Fjeldsted | Viðbrögð (0)

30.09.09

Til minningar um Helga Hóseasson III

Gísli Gunnarsson

Látinn er trésmiðurinn og Breiðdælingurinn Helgi Hóseasson, 89 ára að aldri.

Helgi var góðmenni, mátti ekkert aumt sjá og barðist fyrir réttlæti. Hann gerði hærri siðferðiskröfur til sjálfs síns en aðrir sem ég hef kynnst og gerði þá kröfu að yfirvöld höguðu sér einnig á siðrænan hátt. Hann átti ekki til hræsni og gerði því þær kröfur til yfirvalda um að þau kæmu fram af heiðarleika. Hann umbar hins vegar vel þá sem voru minni máttar og sýndi þeim samúð. Börn löðuðust að honum.

Lesa Til minningar um Helga Hóseasson III
Gísli Gunnarsson | Viðbrögð (1)

26.09.09

Til minningar um Helga Hóseasson II

Reynir Harðarson

Helgi HóseassonAum er sú stofnun sem getur ekki unnt manni þess að rifta samningi, sem hún þóttist þess umkomin að gera fyrir hans hönd sem ómálga barns, við himnadrauga. Hræsni hennar því yfirgengilegri að hún þykist eini málsvari kærleika og réttlætis hér á jörðu.

Helgi Hóseasson mátti þola þessa svívirðu alla sína ævi en hann gerði það hvorki þegjandi né hljóðalaust, sem betur fór. Réttlætiskennd hans var sterkari en svo. Þeir sem þekktu Helga og baráttu hans vita vel að hann bar af upphöfnum andskotum sínum eins og gull af eir.

Lesa Til minningar um Helga Hóseasson II
Reynir Harðarson | Viðbrögð (0)
Til minningar um Helga Hóseasson I - viðbrögð (4)
Ingersoll og hækjan - viðbrögð (2)
Penn & Teller - viðbrögð (50)