Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.
Movable Type
knýr þennan vef
Lúther kemur víða við í bæklingi sínum Um góðu verkin, meðal annars segir hann að kirkjan skuli "[...] láta til sín taka að veita vítur fyrir hórdóm, óskírlífi, okur, óhóf, heimslegt prjál, óhóflegt skart og þvíumlíkar augljósar syndir og skömm með miklum strangleika" [52]
Lesa Um góðu verkin hans Lúthers VI: Boðskapur Lúthers í nútímanumÞó Lúther hafi rofið skírlífsheit sitt og gifst fyrrverandi nunnu þá var hann samt sem áður viss um að skírlífi væri af hinu góða. Hreinleiki og skírlífi eru góðu verkin sem hann les útúr sjötta boðorðinu.
"Vér sjáum, að heimurinn er fullur af skammarlegum verkum óskírlífis, skammarlegum orðum, sögum og vísum. Æsa menn til þessa með áti, drykkju, iðjuleysi og óþarfa skarti." [62]
Lesa Um góðu verkin hans Lúthers V: Ekki gera það
Fjórða boðorðið er heiðra skaltu föður þinn og móður þína.
"Vér lærum af þessu boðorði, að engin verk eru til betri eftir hin háleitu verk hinna þriggju boðorða en hlýðni og þjónusta við alla þá, sem yfir oss eru settir. Því er og óhlýðni meiri synd en morð, óskírlífi, þjófnaður, svik og allt, sem í því getur falist" [47 - Feitletrun mín]
Lesa Um góðu verkin hans Lúthers IV: Lúther gegn góðu siðferðiLúther vill að við höldum hvíldardaginn heilagan og honum er ákaflega illa við "iðjuleysi, át og drykkj[u], spil og önnur slæm verk." [31]
Lesa Um góðu verkin hans Lúthers III: Farðu beina leið til helvítisEftir að hafa fjallað um fyrsta boðorðið snýr Lúther sér að því næsta:
"að vér eigum að heiðra nafn Guðs og nota það ekki að óþörfu, en það getur ekki orðið án trúarinnar, eins og öll önnur verk. En sé það gjört án hennar, er það ekki annað en hræsni og yfirskin." [20]
Lesa Um góðu verkin hans Lúthers II: Sífelld heiðrunÍ bæklingnum sínum "Um góðu verkin" sem gefinn var út árið 1520 þá talar Lúther um hvernig má þekkja "góðu verkin" út frá boðorðunum tíu. "Góðu verkin" eru reyndar oft ótengd því sem við köllum góðverk í dag heldur athafnir sem koma að trúrækni, svo sem bænum, föstum, skírlífi og svo framvegis.
Lesa Um góðu verkin hans Lúthers I: Forsenda góðra verka