Um félagið | Um vefritið | SoS | Tenglar ritstjorn@vantru.is | vantru@vantru.is Umsókn í félagið : umsokn@vantru.is
Fersk viðbrögð
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1352* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Upprisan

12.05.10

Uppstigningardagur

Reynir Harðarson

Krosslafs hræ við láð varð laust,
ljótt með kauna aman.
Til himna líkt og skrugga skaust,
með skít og öllu saman.

-Helgi Hóseasson

Lesa Uppstigningardagur
Reynir Harðarson | Viðbrögð (31)

12.04.10

Lýgur séra Svavar Alfreð Jónsson?

Reynir Harðarson

Smekkur manna er misjafn, rétt eins og rökvísin. Um páskan birtist pistill á tru.is í boði ríkiskirkjunnar (sem kostar okkur að vísu 5.000.000.000 kr. árlega) eftir siðapostulann Svavar Alfreð. Tilefnið er „mesta hátíð“ kristinna manna, páskarnir, þegar þeir minnast þess að guð þeirra lét pynta og drepa son sinn (en þó sig sjálfan) til að fyrirgefa mönnunum að vera ekki betri en hann gerði þá (en að vísu reis hann svo upp tveimur dögum síðar – allt í plati).

Í prédikun Svavars segir hann frá filharmóníutónleikum nokkrum sem haldnir voru undir lok síðari heimsstyrjaldar í Berlín í boði nasistaflokksins þegar ósigur blasti við. „Við útgöngudyr biðu einkennisklædd börn úr Hitlersæskunni, héldu á körfum og buðu fólki blásýruhylki. Ókeypis,“ skrifar Svavar.

Lesa Lýgur séra Svavar Alfreð Jónsson?
Reynir Harðarson | Viðbrögð (6)

06.04.10

Ímyndaðir andstæðingar upprisunnar

Hjalti Rúnar Ómarsson

Mynd af vindmyllum

Íslenskir trúmenn halda því ekki oft fram að það sé rökrétt að trúa því að Jesús hafi lifnað upp frá dauðum, en þegar þeir gera það þá beita þeir nánast undantekningalaust rökum sem eru löngu úrelt. Mennirnir sem þessi rök voru hönnuð gegn dóu nefnilega út á 18. og 19. öld.

Lesa Ímyndaðir andstæðingar upprisunnar
Hjalti Rúnar Ómarsson |

21.03.08

Páskabréf til skóla

Reynir Harðarson

Heill og sæll, skólastjóri.

Ég hélt ég hefði bent þér á dóm Evrópudómstólsins eða úrskurð Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í máli norskra foreldra gegn norska ríkinu vegna kennslu í trúarbragðafræðum þar í landi. Í honum kemur fram að norskir foreldrar geta beðist undan því sem flokka má sem trúarinnrætingu/trúariðkun í skólanum og þar á meðal er nefnt að gera trúarlegar myndir. Í úrskurðinum kemur fram að undanþáguákvæði þar í landi er ekki virkt í framkvæmd og því brýtur kennsla þar í bága við þau mannréttindi sem felast í frelsi foreldra til að tryggja börnum sínum það trúarlega uppeldi sem þeir kjósa og á rétti barna til frjálsrar skoðunar og trúar.

Nú fyrir páskana kom barnið mitt heim með bækling sem það hefur litað myndir í.

Lesa Páskabréf til skóla
Reynir Harðarson | Viðbrögð (17)

08.04.07

Reis Jesús virkilega frá dauðum?

Ritstjórn

Eftir Dan Barker

Þessi grein birtist fyrst í Abuse Your Illusions: The Disinformation Guide To Media Mirages and Establishment Lies, ritstýrt af Russ Kick, 2003.

Í þau 19 ár sem ég predikaði fagnaðarerindið, þá var upprisa Jesú lykilatriðið í boðun minni[1]. Á hverjum páskum staðfesti ég aðvörun Páls postula: „En ef Kristur er ekki upprisinn, er trú yðar fánýt,...“[2]. Í vinsælum páskasöngleik sem ég samdi, „Ullin hans var hvít sem snjór“, er gleðileg yfirlýsing í lokaþættinum: „Syngið hósanna! Kristur er upprisinn! Sonurinn [e. the son, hljómar eins og the sun] er risinn til að skína á mig!“[3].

Lesa Reis Jesús virkilega frá dauðum?
Ritstjórn |