Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Sunnudagaskólinn

15.01.12

Guðfræði og trúarbragðafræði - viðtal við Guðmund Inga Markússon - seinni hluti

Ritstjórn


Hér birtist síðari hluti viðtals Hjalta og Birgis við Guðmund Inga. Umræðan fer út um víðan völl og tæpt er á ýmsu áhugaverðu.




Einnig má hlaða niður skránni hér með því að hægrismella á tengilinn og velja "save as".

Ritstjórn | Viðbrögð (5)

08.01.12

Guðfræði og trúarbragðafræði - viðtal við Guðmund Inga Markússon - fyrri hluti

Ritstjórn


Fyrir fáeinum misserum settust þeir Hjalti og Birgir niður með Guðmundi Inga Markússyni trúarbragðafræðingi og ræddu um þann geira fræðimennsku sem snýr að trú og trúarbrögðum. Í þessum sunnudagaskóla hlýðum við á fyrri hluta þess spjalls, en síðari hlutinn birtist hér að viku liðinni.

Einnig má hlaða niður skránni hér með því að hægrismella á tengilinn og velja "save as".

Ritstjórn | Viðbrögð (4)

28.02.10

Þjóðkirkjuhugtakið - viðtal við dr. Hjalta Hugason - seinni hluti

Ritstjórn

Í síðari hluta rabbsins við Hjalta Hugason byrja hlutirnir örlítið að snúast upp í "góða löggan - vonda löggan". Hjalti Rúnar mætir til þessara viðtala vel undirbúinn og með spurningalista, en Birgir leikur þetta meira af fingrum fram og spurningar hans eru tíðum meira "óþolandi". Hjalti Hugason kemst þó vel frá öllu saman.

Ritstjórn | Viðbrögð (1)

21.02.10

Þjóðkirkjan og ríkið - viðtal við dr. Hjalta Hugason - fyrri hluti

Ritstjórn

Í þessum sunnudagaskóla ræða Hjalti og Birgir við Hjalta Hugason prófessor í kirkjusögu við Háskóla Íslands. Meginefni þessa fyrri hluta er samband ríkis og kirkju gegnum söguna, en einnig er litið til framtíðar.

Viðtalið fór fram í aðalbyggingu Háskólans seint á síðasta ári þegar mikið óveður dundi yfir. Rokið skilar sér inn á upptökuna og einnig glymjandi hurðarskellir hinna bergmálandi ganga. Vonandi truflar það ekki einbeitinguna.

Ritstjórn | Viðbrögð (0)

17.01.10

"Af hverju ertu ekki kaþólikki?" - viðtal við séra Skúla S. Ólafsson - seinni hluti

Ritstjórn

Áfram héldu þeir Hjalti og Birgir að þjarma að prestinum í Reykjanesbæ og má segja að aðeins meiri harka hafi færst í leikinn.

Ritstjórn | Viðbrögð (2)

10.01.10

Vísindi, trú og skynsemi - viðtal við séra Skúla S. Ólafsson - fyrri hluti

Ritstjórn

Í þessum þætti setjast þeir Hjalti Rúnar og Birgir niður með Skúla S. Ólafssyni, presti í Reykjanesbæ, og bauna á hann ýmsum álitamálum um sannleika trúarbragða og hugsanlega skaðsemi þeirra. Þessi fyrri hluti er bráðfjörugur og ýmislegt kemur í ljós.

Ritstjórn | Viðbrögð (6)

03.01.10

Gildi ritningartexta og illir andar - viðtal við séra Bjarna Karlsson - seinni hluti

Ritstjórn

Í síðari hluta viðtalins við Bjarna Karlsson, Laugarneskirkjuprest, berst talið að því hvort ritningartexti aftan úr fornöld eigi eitthvert erindi við samtíð okkar. Þetta er m.a. rætt út frá fullyrðingum Nýja-testamentisins um tilvist illra anda. Spennandi samtal, en þögli farsíminn blandar sér áfram í umræðuna með ruddaskap, ofstæki og öfgum.

Ritstjórn | Viðbrögð (1)

27.12.09

Sexið og heilagt orð - viðtal við séra Bjarna Karlsson - fyrri hluti

Ritstjórn

Sunnudagaskólinn í dag einblínir á kynhegðun, samkynhneigð, klám og kvenfrelsi. Bjarni Karlsson, prestur í Laugarneskirkju, fer með þeim Hjalta og Birgi gegnum ritningarorð bæði í Gamla-testamentinu og því nýja. Var Jesús á móti samkynhneigð? Var Páll Postuli kvenhatari? Er barnaklám afleiðing gömlu grísku tvíhyggjunnar?

Þetta er fyrri hluti viðtalsins við Bjarna. Síðari hlutinn verður á dagskrá eftir viku.

Sunnudagaskólinn biðst velvirðingar á innrás farsíma nokkrum sinnum í upptökunni. Þessi sími var á "silent", en hefði betur verið alveg "off".

Ritstjórn | Viðbrögð (4)

20.12.09

Af Kristi - viðtal við séra Sigríði Guðmarsdóttur - seinni hluti

Ritstjórn

Í ágætu kaffispjalli á skrifstofu Sigríðar Guðmarsdóttur í Guðríðarkirkju saumuðu þeir Hjalti Rúnar Ómarsson og Birgir Baldursson að prestinum og veltu upp ýmsum kenningum kirkjunnar um meyfæðingu, altarisgöngu, erfðasynd og upprisu holdsins, auk þess að tæpa á bælingu og skaðsemi. Þetta er æsispennandi viðtal og sérann á þarna frábær tilsvör. Takk Sigríður fyrir góðar móttökur og fyrir að hafa haft þor til að hleypa svona snarbiluðum ofstækismönnum inn á gafl hjá þér.

Fyrri hluta viðtalsins má finna hér.

Ritstjórn | Viðbrögð (1)

13.12.09

Af Kristi - viðtal við séra Sigríði Guðmarsdóttur - fyrri hluti

Ritstjórn

Í dag ætlum við að endurvekja sunnudagaskólann okkar og næstu vikurnar birtast viðtöl við presta og guðfræðinga.

Fyrst ríður á vaðið Sigríður Guðmarsdóttir prestur í Guðríðarkirkju. Þeir félagar Hjalti Rúnar Ómarsson og Birgir Baldursson litu inn til hennar í kaffispjall síðsumars.

Umræðuefnið er maðurinn Jesús, heimspekingurinn og jafnvel femínistinn. Lagt var upp með friðþægingarkenningu kirkjunnar, en auðvitað barst talið út um víðan völl. Afraksturinn er í það minnsta skemmtilegur og fyrri hluta hans er að finna í spilaranum hér að neðan. Njótið.

Ritstjórn | Viðbrögð (11)
Um trú og trúleysi - viðbrögð (4)
Ásatrúin tekin fyrir - seinni hluti - viðbrögð (0)
Ásatrúin tekin fyrir - fyrri hluti - viðbrögð (29)