Um félagið - Um vefritið - SoS - Tenglar ritstjorn@vantru.is
Fersk viðbrögð
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1328* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Vantrúarbíó

19.06.09

Dennett um Darwin

Ritstjórn

Þeir sem vilja hita upp fyrir fyrirlestur Daniel Dennett næstkomandi sunnudag geta hitað upp með því að kíkja á þetta myndskeið. Hér er um að ræða langa útgáfu af viðtali sem Richard Dawkins tók við Dennett fyrir heimildarþættina The Genius of Charles Darwin (Dennett skrifaði bókina Darwin's Dangerous Idea).

Lesa Dennett um Darwin
Ritstjórn | Viðbrögð (0)

17.06.09

Penn & Teller eru ekki fullkomnir

Ritstjórn

Í fyrrakvöld fjallaði þáttur Penn & Teller Bullshit um óbeinar reykingar. Staðreyndin er sú að niðurstöður þeirra voru kjaftæði. En þegar þeir sjá að þeir hafa rangt fyrir sér þá berja þeir ekki höfðinu við steininn heldur játa það. Hér er myndskeið af The Amazing Meeting með þeim félögum.

Lesa Penn & Teller eru ekki fullkomnir
Ritstjórn | Viðbrögð (6)

13.02.09

Uppruni mannsins

Ritstjórn

.Í þessu myndskeiði úr hinum stórkostlegu þáttum Cosmos leiðir Carl Sagan okkur í gegnum uppruna mannsins.

Lesa Uppruni mannsins
Ritstjórn | Viðbrögð (2)

11.06.08

Svarthöfði á Prestastefnu

Ritstjórn

Það vakti töluverða athygli að Svarthöfði, stjarnan úr Stjörnustríðsmyndunum, lét sjá sig við upphaf prestastefnu. Á þessum myndum má sjá hve vel hann féll í hópinn. Í myndasyrpu frá Biskupsstofu frá viðburðinum sést af einhverjum ástæðum ekkert til Svarthöfða.

Ríkissjónvarpið gerði þessu góð skil í seinni fréttum gærdagsins en okkur þykir þessi útgáfa reyndar skemmtilegri.

Það vakti athygli að þó Stöð 2 sýndi frá setningu prestastefnu í gærkvöldi þá vantaði Svarthöfða.

--

Þess má geta að það gætti töluverðrar ónákvæmni í fréttaflutningi MBL af málinu en fréttin hefur nú verið leiðrétt. Félagið Vantrú stóð ekki fyrir þessum gjörningi.

Ritstjórn | Viðbrögð (25)

27.04.07

Séra Geir Waage um hjónabönd samkynheigðra

Matthías Ásgeirsson

Sigursteinn Másson og séra Geir Waage ræddu um giftingar samkynhneigðra í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í fyrradag, Helgi Seljan stjórnaði umræðum.

Í upphafi þáttar segir séra Geir að Þjóðkirkjan skipti sér ekki af Alþingi en í lokin þvertekur hann fyrir að Alþingi setji lög sem heimila (ath, heimila, ekki neyða) trúfélögum að gifta samkynhneigða. Höfum það á hreinu að Þjóðkirkjan átti stóran þátt í að breytingartillaga Guðrúnar Ögmunds komst ekki í gegn þegar lög um réttindi samkynhneigðra voru rædd á þingi. Sjálfur biskup Íslands mætti til nefndarinnar sem fjallaði um málið og þvertók fyrir að breytingartillagan yrði samþykkt. Það er kjaftæði að Þjóðkirkjan skipti sér ekki af Alþingi.

Lesa Séra Geir Waage um hjónabönd samkynheigðra
Matthías Ásgeirsson | Viðbrögð (21)

02.10.06

Skólaprestar og skóladjáknar

Ritstjórn

Þjóðkirkjan vígði nú um helgina einn skólaprest og einn skóladjákna. Með þessu má segja að hún sé búin að fella grímuna og byrjuð að stunda blygðunarlaust trúboð innan veggja skólanna. Allt sem menn hafa áður látið sér um munn fara, að innan skólaveggjanna ætti að fara fram hlutlaus fræðsla en ekki innræting, er nú ómerkt og dautt. Kirkjan er í herferð og fórnarlömbin eru auðtrúa og saklaus börn. Sjá nánar þetta myndskeið.

Lesa Skólaprestar og skóladjáknar
Ritstjórn | Viðbrögð (34)

08.08.06

Treystirðu þessum manni?

Ritstjórn

Karl Sigurbjörnsson, biskup Þjóðkirkjunnar, þreytist ekki á að útmála trúleysið sem rót alls ills og gera trúlausum það upp að vera siðlausir og tortryggilegir. En hvað um Karl sjálfan? Er hægt að treysta orðum þessa manns?

Lesa Treystirðu þessum manni?
Ritstjórn | Viðbrögð (23)

12.03.06

Blindan

Ritstjórn

Hver sá sem trúlaus skoðar hátterni og hugsun trúaðra sér í hendi sér hvílíka blindu þarf til að geta aðhyllst það sem reitt er fram.

Ég var vanur að lesa allt þetta ljóta í [Biblíunni] en á einhvern undarlegan hátt var það samt allt „ósýnilegt“ eða jafnvel fagurt. Mér hafði verið kennt það að Guð væri fullkomin, kærleiksríkur og réttlátur og það fannst ekki vottur af efa í huga mér um þessi persónueinkenni hans. Allar sýnilegar mótsagnir og ljótleika mátti skýra burt með trúnni á hina órannsakanlegu vegi Hans. Ég er mikið feginn að þeir dagar eru að baki.

Dan Barker

Lesa Blindan
Ritstjórn | Viðbrögð (3)

01.06.04

Það fossar blóð í frelsarans slóð

Ritstjórn

Saga kristindómsins er bæði ljót og blóðug. Það vitum við öll.

Lesa Það fossar blóð í frelsarans slóð
Ritstjórn | Viðbrögð (19)