Allar færslur Allir flokkar Um Vantrú Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Um félagið | Um vefritið | SoS | Tenglar ritstjorn@vantru.is | vantru@vantru.is Umsókn í félagið : umsokn@vantru.is
Fersk viðbrögð
Reikimeistararéttindi
06.01. kl: 09:54
til athugunar

TRÚFÉLAGSLEIÐRÉTTING

Vantrú hefur aðstoðað 1332* einstaklinga við að leiðrétta trúfélagsskráningu sína síðan 1. janúar 2006.

[Lesa nánar]

Ranghugmyndin um guð
[Lesa upphaf 2. kafla]

Andlegt sjálfstæði

Movable Type
knýr þennan vef

Gjörðu svo vel

20.10.04

Reikimeistararéttindi

Ritstjórn

Viltu verða reikimeistari, en átt ekki fyrir náminu?

Vantrú sparar þér hér með tugi þúsunda. Þú þarft aðeins að sækja þetta pdf-skjal, prenta það út, ramma inn og hengja upp á vegg og fólk mun um leið bera djúpa virðingu fyrir þér og dæla í þig fjármunum sínum. Og í kaupbæti færðu útrás fyrir snertiþörfina.

Gjörðu svo vel!

Ritstjórn | Viðbrögð (5)

Klúðrið hjá Guði

Þröstur Hrafnkelsson

Ein útgáfa af Gvuði, nú með skegg!

Nú standa fermingar yfir á Íslandi enn eitt árið. Þá eru margir krakkar að spá hvort þau trúi á Guð og Jesú. Mig langar aðeins að staldra við á þessu augnabliki og rýna aðeins í stöðuna hjá Guði. Kíkja við í kaffi hjá honum og sjá hvernig hann hefur það. Mér finnst eins og enginn spái í því – fólk er of upptekið af sjálfu sér. Öllum er sama um Guð kallinn og hvað hann er að ganga í gegnum.

Fráfarandi biskup tjáir sig um ástand ríkiskirkjunnar

Ritstjórn

Agnes Sigurðardóttir

Það kemur manni eiginlega ekkert á óvart lengur í þessari kirkju.

Agnes M. Sigurðardóttir fráfarandi biskup í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Hún segir í rauninni að það sé allt í tómu tjóni í kirkjunni.

Ljósmynd af biskup fengin af flickr síðu kirkjunnar og notuð samkvæmt cc leyfi.

Saga helvítis og presta Þjóðkirkjunnar

Hjalti Rúnar Ómarsson

Málverk sem sýnir kvalir helvítis

Helvíti er ein af vandræðalegustu kenningum Þjóðkirkjunnar. Opinberlega játar Þjóðkirkjan að við endurkomu Jesú muni hann dæma "guðlausa menn og djöflana" til "eilífra kvala".

Helvíti veldur Þjóðkirkjunni og prestum hennar endalausum vandræðum, þar sem þetta er frekar ógeðfelld kenning og prestar sem gagnrýna helvíti tala gegn játningu Þjóðkirkjunnar meðan þeir sem boða helvíti hrekja fólk frá Þjóðkirkjunni. Niðurstaðan er að prestar tjá sig nánast ekkert um helvíti, og þeir sem gera það geta átt von á veseni, eins og sagan sýnir.

Helvítið hans Jesú

Hjalti Rúnar Ómarsson

Málverk sem sýnir Jesús á dómsdegi

Vegna nýlegra ummæla prestsins Davíðs Þórs Jónssonar, þar sem hann sagði sérstakan stað vera tilbúinn ákveðnu stjórnmálafólki, hefur helvíti komið aftur upp í umræðuna. Af því tilefni skrifaði annar prestur, Sindri Geir, grein þar sem hann kemur með vafasamar fullyrðingar um helvíti.

Mun þögn Þjóðkirkjunnar senda tvo menn í fangelsi?

Hjalti Rúnar Ómarsson

Súmersk veggmynd

Nú standa yfir réttarhöld yfir tveimur mönnum sem verða mögulega dæmdir í þriggja ára fangelsi. Í ákærunni er glæpur þeirra sagður sá að svíkja „fjárframlög úr ríkissjóði“ og valda „íslenska ríkinu verulegri fjártjónshættu og fjártjóni í reynd“. Þessi meintu fjárframlög úr ríkissjóði voru sóknargjöld.