Vantrú er lögformlegur félagsskapur, með löglega kosna stjórn, félagslög og hvað eina. Um inntöku nýrra félaga gildir þessi lagagrein:
6.gr. Félagið er opið trúleysingjum og þeim sem hafna yfirnáttúru, samþykki þeir að vinna að markmiðum félagsins, hlíta lögum þess og séu orðnir fullra 18 ára. Ritari tekur við umsóknum og ber þær undir stjórn. Stjórnin ákveður svo, að höfðu samráði við aðra félagsmenn ef þörf krefur, hvort umsækjandi er samþykktur inn í félagið.
Markmið félagsins eru þessi:
2.gr. Tilgangur félagsins er að veita mótvægi við boðun hindurvitna og vinna gegn áhrifum þeirra í samfélaginu, s.s. skipulögðum trúarbrögðum, skottulækningum og gervivísindum
3.gr. Tilganginum hyggst félagið m.a. ná með því að stuðla að gagnrýninni umræðu um trúmál og halda úti vefsíðu sem fjallar um trúmál, trúleysi og efahyggju. Félagið skal einnig vinna að tilgangi sínum með öðrum hætti s.s. útgáfustarfsemi eða fyrirlestrahaldi eða aðild að fyrirlestrum sem varða markmið þess.
Félagsgjaldið er 1.000 krónur á ári, þeir borga sem geta.
Fara hugsjónir þínar saman við tilgang félagsins? Viltu ganga til liðs við þennan vaska hóp fólks sem setur hugsanafrelsið ofar kreddunum? Sendu þá tölvupóst á netfangið umsokn@vantru.is. Við höfum svo samband.