Vefritið var sett á laggirnar í ágúst-mánuði 2003. Upphaflega var vefritið ætlað til þess að skoða trúmál frá sjónarhorni trúleysingjans. Þegar lagt var af stað með þetta verkefni skrifaði Birgir Baldursson stefnuyfirlýsinguna Lygin um sannleikann. Þar útlistar hann þær hugsjónir sem hér liggja að baki.
Vefritið hefur þó tekið töluverðum stakkaskiptum. Hér er ekki eingöngu rætt um trúmál. Hér er einnig tekið á öðrum hindurvitnum, kukli, gervivísindum og ýmsum hugsanavillum.
Á bak við vefinn stendur félagið Vantrú. Vefritið er allajafna uppfært daglega og stundum oftar.
Ritstjóri er Þórður Ingvarsson og ábyrgðarmaður er Birgir Baldursson.
Hægt er að fylgjast með uppfærslum á Vantrú með rss-straum okkar: www.vantru.is/index.xml