Þórhallur Heimisson, ríkiskirkjuprestur í Hafnarfirði, sjálfskipaður gæslumaður trúarinnar, réttlætisins og bræðralags tókst nýlega á hendur suðurgöngu að gömlum sið. Með í för voru fjörutíu iðrandi sálir hafnfirskar. Hópurinn bankaði upp á hjá Páfanum, sem hefur getið sér slæmt orð fyrir yfirhylmingu barnaníðingsskapar, smokkabann og andstöðu við öll almenn mannréttindi.
Téður Þórhallur segist vera í ákaflega góðum tengslum við katólska og fannst því tilvalið að hitta páfann til að grennslast fyrir um þröngsýni, hræsni og almenna ónáttúru í ranni páfa. Grunur leikur á að páfi hafi rætt sérstaklega um upprisu holdsins við hópinn, en minna skeytt um áherslu á eilíft líf.
Eftir að páfi hafði lokið sér af fór hópurinn að heimsækja postulann Pál, sem var að vísu ennþá dauður, en á skv. skilningi ríkiskirkjunnar sífellt erindi við nútímann með sitt forneskjulega þvaður. Öll umræða um fátækt, eymd og volæði á Íslandi verður hafin á nýjan leik eftir helgina þegar helgislepjan og hræsnin rennur af suðurfaranum.
Þó ég sé ekki höfundur þessarar greinar held ég að tilgangurinn sé margþættur, meðal annars að:
benda á hræsnina í því að tala mikið um hve fátækt eykst á Íslandi og að fólk sem á erfitt þarf hjálp (þetta hefur Þórhallur talað um), en fara svo í dýra og óþarfa ferð til Ítalíu til að hitta páfann.
spyrja af hverju prestar úr íslenskri, lúterskri kirkju ætti að vilja heimsækja kaþólskan páfa? Sérstaklega núna þegar kaþólska kirkjan hefur sætt harðri og réttmætri gagnrýni vegna yfirhylmingar á barnaníðingsprestum.
Þetta er bara svona tvennt sem mér datt fyrst í hug...
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
gös - 27/10/11 14:05 #
Bræðlags?