Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Ríkisrekið ofbeldi og siðleysi

Þegar ég geng inn í kirkjur við athafnir hjá ættingjum verður mér alltaf jafn ómótt. Þar hangir lík uppi í tré með gamalli og viðbjóðslegri aftökuaðferð. Presturinn virðist vera alsæll með átrúnaðargoðið sitt misþyrmt á málverkum og öðrum listaverkum sem prýða hofið. Hann dásamar tilganginn með pínu Krists og upprisu hans.

Reyndar hefur sama kirkja pínt og drepið hundruð manna hér á landi með fjölmörgum aðferðum í Jesú nafni, en ekki er vitað til þess að þau fórnarlömb hafi risið upp eftir þann hildarleik. Þannig að meint aftaka og draugagangur fyrir tvö þúsund árum er ekki til neins nema að salta í sár fórnarlamba kirkjunnar. Kirkjugestir eru svo vanir öllum þessu ofbeldi og siðleysi að þeim virðist alveg standa á sama um allan ósómann.

Þessi blóðþyrsta sýndarþörf í kringum kristna trú minnir mig óneitanlega á stjaksetta hausa í þætti um mannætur á Discovery channel, sem ég sá fyrir nokkru síðan. Með blóðdrykkju og mannáti í altarissakramentinu öðlast kristnir kraft "frelsarans" á samskonar hátt og mannæturnar fá kraft frá fórnarlömbum sínum. Þannig eiga mannæturnar á Discovery channel og presturinn í ríkiskirkjunni sameiginlega siðfræði í andatrú sinni.

Þátturinn um villimennina á skjánum hefur hjálpað mér að átta mig á forneskju kristinnar siðmenningar örlítið betur. Villimennirnir í skóginum voru í stöðugri baráttu við illa anda eins og Jesús Biblíunnar. Með ýmsum aðferðum eru andarnir reknir burt eða ákallaðir af töfraprestum mannætanna og kristninnar. Ég sá töfraprest blessa timburkofann sinn á sama hátt og íslenskur prestur blessar opinberar byggingar hér á landi. Aftur og aftur áttu þessi trúbrögð samleið í heimsku og vitleysu. Mannætunum var þó vorkunn sökum þekkingarleysis, en sama verður vart sagt um háskólamenntaða sóknarpresta.

Það er sorglegt til þess að vita að þessi siðlausa íslenska villitrú þiggi milljarða frá skattgreiðendum og sé vernduð í stjórnarskránni. Það er komið miklu meira en nóg af milljarða viðhafnarlifnaði, lygi og siðleysi í nafni trúar hér á landi. Ég er sannfærður um að komandi kynslóðir eigi eftir að vakna úr þessum brjálaða gerviheimi og rjúfa sorglegan vítahring trúar á samfélagið okkar.

Frelsarinn 03.09.2003
Flokkað undir: ( Klassík , Siðferði og trú )

Viðbrögð


Davíð - 09/09/03 13:07 #

Ruglaðu ekki saman verkum manna og Krists. Skiljanlegt að menn geri það þar sem svokallaðir "fylgismenn" kristninnar hafa drýgt skelfilega glæpi í nafni Kirkju og trúar. Það er blóð sem hefur runnið fyrir hverja synd og meinsemd mannskepnunnar og það blóð rann svo sannarlega með kvölum. Jesú blóð hreinsar.

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.