Katólsk kirkja er ekki aðeins trúarstofnun. Hún er einkum pólítísk stofnun. Hún sækist eftir auði og völdum. Og til þess að tryggja sér þetta hvort tveggja heimtar hún skilyrðislausa hlýðni af þegnum sínum. En höfuðskilyrði hlýðninar er fáfræðin. Þess vegna lætur katólsk kirkja sér annt um að útiloka fólkið frá hverri þeirri þekkingu, sem veldi hennar getur stafað hætta af.
Kennimenn sína uppelur hún eins og skynlausar skepnur. Skoðanir kirkjunnar verða þeirra skoðanir, vilji hennar þeirra vilji. Sannkatólskur maður hefir enga sjálfstæða skoðun í andlegum efnum. Hann hugsar eins og kirkjan hefir kennt honum að hugsa eða öllu heldur: Kirkjan hefir losað hann við þann vanda að þurfa að hugsa upp á eigin spýtur. Hann er hópsál í katólskri heild, sem nærist á hindurvitnum, valdafíkn og fégræðgði.
Þórbergur Þórðarsson, Bréf til Láru
Þetta er sérstök bók, Bréf til Láru, enda skrifuð að af sérstökum manni (sérstaklega miklum snillingi). Ég las hana fyrir svona 5 árum síðan og man ennþá glettilega mikið úr henni.
Annars má bæta við fleiri nöfnum við þennan lista af Jonas.is en bara að því mér finnst sagan af þessum manni svo ´´góð´´ þá verð ég að bæta henni við.
Sagan er af manni, presti sem yfirmaður evangelísku kirkjusamtakana í USA, manni sem var giftur og átti 5 börn, manni sem hraunaði yfir homma og lesbíur nánast hvern einasta sunnudag í valdi stöðu sinnar, manni sem í 3 ár áttu í leynilegu kynlífssambandi við karlhóru sem hann stundaði alla þá verknaði með sem hann talaði sem ötulast gegn sjálfur, manni sem í öll skiptin á meðan hann stundaði kynlíf sitt röngum megin línunar góðu var útúrdópaður og rammskakkur.
Ted Haggard verður minnst fyrir að hafa gefið okkur eina af þeim fáu sögum af kristinni hræsni sem eru svo klikk og out of this world að það væri ekki hægt að búa hana til - you could not make this shit up!
Soldill útúrdúr frá kaþólsku geðveikinni per se en Ted kallinn er engin eftirbáti kaþólikana þannig að ég skellti honum inn.
James Joyce lýsir þvi mjög vel í bókinni "The Dubliners" hvernig kaþólskan leggst eins og mara á allar hugsanir unglingsins í gegnum menntakerfið. Bókin er að hluta (eða mestu) sjálfsævisöguleg og maður skilur vel, eftir að hafa lesið hana, af hverju sagt er að menn hætti aldrei að vera kaþólikkar. Heilaþvotturinn er svo mikill og útspekúleraður að menn ná sér hreinlega ekki.
já Brynjólfur, mikið til í þessu. Hef verið utan kirkju í yfir 20 ár ....en á "dauðasakramenntið" til góða!...er oft að pæla í hvort ég muni nota það?
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Anna Benkovic Mikaelsdóttir (meðlimur í Vantrú) - 13/03/08 21:32 #
Jónas á segir m.a...