Höfuðhögg ruglar mann í ríminu, högg á fótinn hefur engin slík áhrif. Ódauðleg sál getur ekki orsakað þetta.
Heraklítos - ~500 f.o.t.
Þetta er nú frekar ófleyg setning. Algjör mörgæs setninga reyndar. Fóthögg hefur drepið margan góðan manninn. T.d. Jack Daniels. Svo, hvað? Datt engum í hug að sálin gæti verið staðsett í hausnum?
Fóthögg hefur drepið margan góðan manninn. T.d. Jack Daniels. Svo, hvað?
Ég skil ekki hvernig þetta tengist umræðunni.
Datt engum í hug að sálin gæti verið staðsett í hausnum?
Er sálin staðsett einhvers staðar?
Samkvæmt Biblíunni er sál, líkami með lífsanda í svo það ætti að vera nokkuð augljóst að sálin er til.
Samkvæmt Biblíunni er sál, líkami með lífsanda..
Mofi, ertu að halda því fram að í biblíunni sé:
líkami + lífsandi = sál ?
Já, Hjalti, akkurat.
1. Mósebók 2:7. Þá myndaði Drottinn Guð manninn af leiri jarðar og blés lífsanda í nasir hans, og þannig varð maðurinn lifandi sál.
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Kristján - 25/04/07 23:02 #
Það er nú í fyrsta lagi rangt að högg á fótinn hafi engin slík áhrif á hugann. Heraklítos hafði greinilega aldrei rekið tána fast í.