Í frétt á mbl.is kemur fram að Thorkild Grosbøll, trúlausi danski presturinn sem missti djobbið í hittifyrra, hefur ekki skipt um skoðun á himnadraugunum. Samt getur verið að hann fái að sinna preststörfum. Kannski það fari að verða óhætt fyrir alla trúlausu íslensku prestana að koma út úr skápnum.
Það eru svona þrjú eða fjögur ár síðan íslenskur prestur lýsti yfir að hann væri bæði trúlaus, samkynhneigður og geðveikur. Mikil hetja.
Flosi var útskúfaður úr þjóðkirkjunni í kjölfarið. Svona er umburðarlyndið mikið þar á bæ.
Ég hef reyndar ekkert konkret fyrir mér í því, og get því ekki fullyrt neitt, en óneitanlega læðist oft að manni sá grunur að grunnt sé á trúnni hjá mörgum prestinum. Þeir líti frekar á þetta sem þægilegt innistarf.
Þetta merki ég helst á því hvað margir þeirra eru uppteknir af því að verja stofnunina og starfið frekar en trúna sem slíka.
Þetta fór alveg fram hjá mér. Gerðist þetta nokkuð 2001?
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Hjalti (meðlimur í Vantrú) - 13/05/05 02:01 #
Hvað ætli það sé langt í það að einhver frjálslyndur Þjóðkirkjuprestur lýsi yfir trúleysi?