Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Brúður Krists

Spáið aðeins í þetta:

Við erum öll frumur í brúði Krists. Kristur er brúðguminn og Guð er með brúðina í smíðum fyrir son sinn. Það er hið mikla plan.

Við enda heimsins vinsar Guð svo góðu og gjöfulu frumurnar frá meinvörpunum (helvítis trúleysingjarnir) og hinir kristnu geta um eilífð sameinast í þessum risastóra dásemdarlíkama sem um aldur og ævi mun þjóna Jesú til sængur.

Dásamlegt, ekki satt?

Hvað fær fólk til að trúa í alvöru svona rugli? Ég hef ekki hugmynd um hvort eitthvað þessu líkt standi í Biblíunni, án þess að það skipti máli því hún er varla hótinu skárri í rugli og órum. En þetta er í það minnsta túlkun einhvers ruglsafnaðarins á hinni heilögu ritningu. Það eru kannski fimm ár síðan ég sá þátt á Ómega þar sem þessi útfærsla á henni var í heiðri höfð.

Til hverra er verið að höfða með þess háttar rakalausum vaðli? Hverjir eru nógu illa staddir til að gleypa við einhverju svona, og skoða það sem lausn á tilvistarvanda sínum? Eru það ekki hópsálirnar, þeir sem ástunda múgmennsku af sem mestu kappi? Er það ekki fólkið sem þráir að tilheyra einhverju sem er stærra en það sjálft, einhverju nógu stóru og sterku afli sem ekkert bítur á?

Maður hlýtur að þurfa að vera ansi andlega miður sín til að gleypa við svona þvættingi eins og þarna var borinn á borð. Og í því felst hið stóra siðleysi hinna frjálsu safnaða. Þeir raka til sín þessum smásálum og mergsjúga þær svo allt til dauðans.

Er ekki kominn tími til að stoppa þetta af? Þið þarna úti sem trúið þessu, prófið að máta þetta við einhver önnur trúarbrögð en ykkar eigin og sjáið hve afkáralegt þetta er!

Birgir Baldursson 21.05.2004
Flokkað undir: ( Siðferði og trú )

Viðbrögð


Jóhannes - 21/05/04 16:30 #

Þú sagðir "Við erum öll frumur í brúði Krists" Rangt svar. Aðeins þeir sem hafa gefist brúðgumanum.

Og vissulega álokum mun Guð skilja að þá sem hafa tekið við honum og þá sem kusu að gera það ekki. Tækifærið er í dag.

Og svona til að þú vitir það þá er þetta með Brúðina og Brúðguman myndlíking.

Sælir eru þeir, sem boðnir eru í brúðkaupsveislu lambsins.


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 22/05/04 02:41 #

Ég átta mig ágætlega á því að þetta er myndlíking. Það er pælingin á bak við hana sem ég er að velta fyrir mér.


Magnús G. Magnússon - 01/07/04 01:20 #

"Við erum öll frumur í brúði Krists. Kristur er brúðguminn og Guð er með brúðina í smíðum fyrir son sinn. Það er hið mikla plan.

Við enda heimsins vinsar Guðs svo góðu og gjöfulu frumurnar frá meinvörpunum (helvítis trúleysingjarnir) og hinir kristnu geta um eilífð sameinsast í þessum risastóra dásemdarlíkama sem um aldur og ævi mun þjóna Jesú til sængur."

Þetta er eiginlega hálfskelfileg myndlíking. Konan þarna hefur engan vilja, hún er einungis klippt og skorin brúða, allir agnúar hafa verið sníddir af; hún er samansafn af dásamlegum frumum sem uppfylla skilyrði fullkomnunarsinnaðs karlrembusvíns um hina undirgefnu, heilalausu sarðdýnu.

Ef þetta er myndlíking sem einhverjum trúuðum finnst falleg þá finnst mér það skammarlegt og hreint út sagt pervisið.

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.