Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Aftan úr öldum

Það er engin tilviljun að framþróun í heiminum hafi verið mest í hinum kristna hluta hans

- Davíð Oddsson á kristnihátíð árið 2000.

Þessi orð forsætisráðherrans sýna okkur ljóslega hvað kirkja og kristni hafa enn mikið kverkatak á íslensku samfélagi. Æðsti ráðamaður þjóðarinnar getur ekki annað en láta sér um munn fara slíkar rangfærslur og hver man ekki eftir því þegar forseti okkar þorði ekki annað en taka "trú" til að eiga séns í framboðsslaginn?

Í ofanálag er þjóðsöngur okkar eitthvert undirlægjuvæl gagnvart þessum valdasjúka guði, fáninn okkar dekoreraður merki heimskunnar, alþingi getur ekki hafist fyrr en búið er að særa galdraþulur fávísinnar yfir ráðamönnum og landsmönnum er gert að húka heima án skemmtunar og þjónustu á dánardægri hins meinta alvalds.

Stétt manna nýtur virðingar samfélagsins fyrir að ljúga heimskulegum kraftaverkasögum aftan úr forneskju að lýðnum. Hefur í ofanálag réttindi til ókeypis sálusorgunar (ríkið borgar) meðan þeir sem kjósa alvöru sálfræðiþjónustu þurfa að greiða háar upphæðir. Samt gerir menntun þessarar klerkastéttar hana að engu leyti hæfari en næsta mann til að stunda slíka klíník, það eina sem prestarnir geta ráðlagt fólki eru særingar og galdraþulur.

Svo er námsskrá grunnskólanna undirlögð tilskipunum um kristilega innrætingu og fjölmiðlar landsins uppfullir af kristilegum þáttum og klerkaþvaðri eins og ekkert sé sjálfsagðara.

Var einhver að tala um að þjóðfélagsástandið undir stjórn Talibana í Afganistan hafi verið aftan úr öldum?

Birgir Baldursson 04.10.2003
Flokkað undir: ( Kristindómurinn )