Forsíða
Spaugstofan
Sjónvarpið
Maltið

Útvarp Rót

Spegillinn
Félagi Jesús

Blekking og þekking

Brynjólfur
Til baka

Útvarp Rót

1988

Saklaust 1. apríl gabb sem varð að guðlastmáli
eða


Árið 1988 bar fyrsta apríl upp á föstudaginn langa.  Þann dag var fyrsta aprílgabbið á Útvarp Rót á þá leið að fornleifafræðingar hefðu við uppgröft á Golgatahæð fundið minjar sem bentu til þess að Jesús Kristur hafi ekki verið krossfestur heldur hengdur og að kirkjunnar menn um allan heim væru að vinna að því að skipta út krossum fyrir gálga í kirkjum landsins.  Guðhræddum klerkum landsins og góðborgurum var ekki skemmt.  Það skipti engum togum að séra Ólafur Skúlason sem þá var sóknarprestur notaði páskamessu í beinni útsendingu til að æsa sig yfir meintum guðlastalýð á Útvarpi Rót.  Herra Ólafur bauð sig fram til embættis biskups og var skipaður í embættið árið 1989.  Afskipti hans að fjölmiðlum áttu eftir að vekja mikla athygli eins og sjá má á guðlastarvefnum.

Í kjölfar grínsins á Útvarpi Rót sendi Þjóðkirkjan kæru til Útvarpsréttarnefndar, sem tók málið til skoðunar.  Um það má lesa í morgunblaðinu þann 12. apríl sama ár:

Aprílgabb Útvarps Rótar:

Á ekki von á frekari aðgerðum af hálfu útvarpsréttarnefndar ­ segir Kjartan Gunnarsson, formaður nefndarinnar "ÞAÐ hefur engin formleg kæra borist útvarpsréttarnefnd vegna þessa máls og að öllu óbreyttu á ég ekki von á frekari aðgerðum af hálfu nefndarinnar. Við munum þó væntanlega fara yfir og ræða efnisatriði þessa máls á næsta fundi," sagði Kjartan Gunnarsson, formaður útvarpsréttarnefndar, er hann var spurðu hvort nefndin myndi aðhafast eitthvað frekar í máli því sem upp kom vegna "aprílgabbs" Útvarps Rótar á föstudaginn langa, en þar var fullyrt að gálgar myndu leysa krossa af hólmi sem tákn kristinna manna.

Kjartan sagði að athygli sín hefði verið vakin á þessu máli síðastliðinn föstudag og hann hefði þá haft samband við útvarpsstjóra Útvarps Rótar, Þórodd Bjarnason, og fengið hjá honum endurrit og hljóðupptöku af umræddri dagskrá. Í samtali fulltrúa útvarpsréttarnefndar við útvarpsstjórann á laugardag hefði komið fram að útvarpsstöðin hefði á laugardag fyrir páska, 2. apríl, sent út tilkynningu, þar sem beðið var afsökunar á þessari dagskrá. "Sú afsökun var þríþætt og beindist til allra þeirra sem telja má að hafi verið misgert við í þessari útsendingu," sagði Kjartan ennfremur. "Engin formleg kæra hefur borist útvarpsréttarnefnd vegna þessa máls og í samtali sem ég hef átt við útvarpsstjórann hefur það ítrekað komið fram að beðið hefur verið afsökunar á þessu. Sjálfur vil ég ekki leggja neinn efnislegan dóm á þessa dagskrá þar sem til þess kynni að koma að ég þyrfti að fjalla um málið sem úrskurðaraðili, það er að segja ef að formleg kæra kemur fram. Hins vegar get ég sagt það, eftir að hafa rætt málið við biskup, að þá er fyrirgefningin og iðrunin tvö af megininntökum kristinnar trúar og ætli maður geti nokkuð sett sig á hærri hest en sá sem kom til að boða okkur kristna trú," sagði Kjartan Gunnarsson.

Morgunblaðinu hefur borist afrit af ávarpi Þórodds Bjarnasonar, útvarpsstjóra Útvarps Rótar, sem flutt var laugardaginn 9. apríl síðastliðinn. Þar segir meðal annars: "Hvað gabbið sjálft varðar, geta víst flestir fallist á að gálgahúmor þess hafi sneitt ískyggilega nálægt mörkum þess sem smekklegt getur talist. Þessi uppákoma vekur hins vegar upp áleitnar spurningar varðandi þjóðkirkjuna og ríkistrú almennt."

Síðar í ávarpinu segir að Útvarp Rót sé grasrótarútvarp þar sem orðið sé frjálst og að stöðin telji sig einungis skuldbundna dagskráraðila um og hlustendum, auk gildandi útvarpslögum. "Við höfum haft mikið og gott samstarf við ýmsa trúarsöfnuði um dagskrárgerð. Hafi einhverjum þeirra þótt gamanið grátt, biðst ég hér með afsökunar. Trúað fólk tekur þátt í útvarpsdagskrá velflestra samtaka hér á Útvarp Rót. Hafi það hneykslast, biðst ég líka afsökunar. Hafi einhverjum hinna kristnu hlustenda Útvarps Rótar sárnað við okkur, þykir mér það ákaflega leitt og bið þá innilegrar afsökunar á sprellinu. Aðrir eiga ekkert inni hjá okkur og tel ég málið að öðru leyti úr sögunni," segir Þóroddur Bjarnason útvarpsstjóri í ávarpi sínu.


Miklar ritdeilur urðu um málið í Morgunblaðinu og heilu leiðararnir lagðir í málið um meint guðlast.  Herra Pétur Sigurgeirsson biskup lét svo kæru niður falla eftir að útvarpsstjóri Rótarinnar Þóroddur Bjarnason baðst opinberar afsökunar eins og sjá má í frétt Morgunblaðsins.