SJÓNVARPIÐ
hefur ákveðið að hætta við sýningu bandarísku kvikmyndarinnar Síðasta
freisting Krists eftir Martin Scorsese, sem átti að vera á dagskrá Sjónvarps
í kvöld.
Kvikmyndin, sem gerð
var 1988, er byggð á bók gríska rithöfundarins Nikosar Kazantzakis, þess
hins sama og ritaði um Grikkjann Zorba. Myndin vakti mikið umtal og deilur á
sínum tíma, auk þess sem ásakanir heyrðust þess efnis að hún innihéldi
guðlast.