Forsíða
Spaugstofan
Sjónvarpið
Maltið

Útvarp Rót

Spegillinn
Félagi Jesús

Blekking og þekking

Brynjólfur
Til baka

Maltmálið

1993

 Víst ávallt þeim vana halt
 vera hress og drekka Malt

    Flosi Ólafsson


herra
Ólafur Skúlason Biskup

Árið 1993 tókst ríkiskirkjan á loft vegna guðlasts á heilræðavísum séra Hallgríms Péturssonar.  En einni vísunni hafði verið snúið í þágu Malt Extra í auglýsingu hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar.  Eiginlega varð ríkiskirkjan að athlægi með frumhlaupi sínu í þessu máli sem og öðrum viðlíka málum.  Svo alvarlegum augum var þetta litið að frétt um kveðskapinn komst á baksíðu Morgunblaðsins, þar þrýsti ríkiskirkjan á ríkissjónvarpið að stöðva birtingu auglýsingarinnar.  Svo vel vildi til fyrir kirkjuyfirvöld að í stóli ríkissjónvarpsins sat klerkur að nafni séra Heimir Steinsson.  Séra Heimir bannfærði auglýsinga fljótlega eftir að neðan greind frétt birtist í Morgunblaðinu, stöðvaðist þá sýning hennar hjá RÚV.  Stöð 2 sýndi þessa hressandi auglýsingu enda var stöðin ekki rekin frá biskupsstofu.  Enginn var klagaður til Ríkissaksóknara því kirkjuyfirvöld létu bannfæringu séra Heimis nægja í þetta skiptið.  Hér er frétt Morgunblaðsins af málinu þann 23 febrúar 1993 en blaðið greindi ekki frá bannfæringu séra Heimis.   Segja má að Maltmálið hafi verið fyrsta guðlasta mál herra Ólafs Skúlasonar biskups sem beittir sér mjög fyrir Kristilegum siðbótum, með því að finna skrattann í hverju horni í útsendingum ríkissjónvarpsins.  Sýning myndarinnar  "Síðasta freisting Krists" og Spaugstofumálið eru gott dæmi af mörgum um áhuga biskups að bæla niður glæpi gegn ríkisguði landsins.


séra Heimir Steinsson
(1937-2000)

Maltauglýsing með kveðskap séra Hallgríms umdeild
Biskupsritari biður RÚV að birta hana ekki oftar

AUGLÝSING, sem byggir á heilræðavísu eftir Hallgrím Pétursson og flutt hefur verið á sjónvarpsstöðvunum, hefur vakið umræður og þykir sumum að þar sé níðst á menningarverðmætum. Ölgerðin Egill Skallagrímsson er þarna að auglýsa maltöl. Biskupsritari hefur farið þess á leit við Ríkisútvarpið að auglýsingin verði ekki flutt oftar. Helgi Hálfdanarson gerir auglýsinguna að umræðuefni í pistli í Morgunblaðinu sl. laugardag og telur hana gróft dæmi um brot á friðhelgi andlegra verðmæta. Auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins, telur ekkert athugavert við auglýsinguna.
"Við höfum fengið margar upphringingar frá fólki sem sárnar hvernig snúið er út úr heilræðavísum Hallgríms í þessari auglýsingu. Þarna er verið að níðast á skáldskap sem mörgum er ákaflega kær og helgur," sagði Þorbjörn Hlynur Árnason biskupsritari, í samtali við Morgunblaðið.

Ekkert athugavert
"Ég taldi mig ekki vera þann siðapostula að geta stöðvað þessa auglýsingu þótt það hafi verið nefnt við mig áður en byrjuðum með hana," sagði Halldór V. Kristjánsson auglýsingastjóri hjá Ríkisútvarpinu. Hann sagði að frá sínum sjónarhóli væri ekkert athugavert við auglýsinguna, það væri þó ljóst að hún kæmi misjafnlega við fólk og bæri hann fulla virðingu fyrir skoðunum allra. Varðandi tilmæli biskupsritara um að hætt verði að flytja auglýsinguna sagði Halldór að þau hefðu verið tekin til athugunar en yrðu ekki tekin til greina. Ætti að halda málinu til streitu yrði að vísa því til siðanefndar Sambands íslenskra auglýsingastofa.  Halldór kvað það fara fyrir brjóstið á mörgum þegar þekkt listaverk væru notuð í auglýsingum en við því væri ekkert að gera. Auglýsingafólk hefði fullan rétt til að nota þetta efni og væri það að hans mati hluti af því lýræðis- og jafnréttisþjóðfélagi sem við byggjum í.

Ekkert niðrandi
"Það kemur á óvart að fólk skuli vera að agnúast út í þessa auglýsingu, manni dettur helst í hug að sumir telji sig eiga allt menningarefni í landinu og enginn megi hrófla við því," sagði Helgi Helgasson framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Gott fólk, sem gerði auglýsinguna. Hann sagði að ýmsir virtust hafa horn í síðu allrar auglýsingastarfsemi og fyndu henni flest til foráttu. Svipaðar aðferðir hefðu verið viðhafðar í dægurlagatextum, notaðar ljóðlínur eftir sígilda höfunda og þá virtist enginn hafa neitt við það að athuga. Helgi benti á að í auglýsingunni væri ekki verið að meiða höfundinn og þar væri ekkert niðrandi. "Ég ólst upp við það að guðlast væri að leggja nafn guðs við hégóma. Ef einhver heldur því fram að hér sé guðlast á ferðinni verða menn að athuga að séra Hallgrímur var ekki guð. Mér þykir það ansi hart ef hann er kominn í guða tölu," sagði Helgi.