Umræður um Félaga Jesú á Alþingi
“Útgáfu slíkrar bókar á ekki
að styrkja af almannafé”
8/12.
Mjög
harðar umræður urðu utan dagskrár á fundi Sameinaðs Alþingis í gær,
er Ragnhildur Helgadóttir kvaddi sér hljóðs og gerði að umtalsefni
styrkveitingu úr Norræna þýðingasjóðnum til útgáfu bókarinnar
“Félagi Jesú”. Fjölmargir
þingmenn úr öllum flokkum tóku til máls.
Ragnhildur Helgadóttir sagði, að hér væri um að
ræða barnabók, þar sem fjallað væri um líf og kenningar Krists með
þeim hætti, að óþolandi væri fyrir alla, er vildu kenna börnum sínum
kristileg lífsviðhorf. Hér
væru málefni kristinnar trúar meðhöndluð á þann hátt, að
sennilega varðaði bæði við 62. grein stjórnarskráinnar og 125.
grein hegningarlaganna, sem bannaði að dregið sé dár að trúarbrögðum
eða þau smánuð. Gagnrýndi
Ragnhildur sérstaklega, að bók af þessu tagi skyldi hafa hlotið styrk
úr Norræna þýðingarsjóðnum. Gæti
slíkt eyðilagt þann grundvöll, sem sjóðsstofnunin byggði á.
Er kynlíf andstyggð?
Svava Jakobsdóttir sagði að sótsvart afturhald hefði stjórnað málflutningi
Ragnhildar. Hún vildi helst
koma í veg fyrir frjálsa bókaútgáfu og bæri fram svipaðar röksemdir
og yfirvöld í þeim ríkjum, sem vildu ráða útgáfu bóka.
Í stjórnarskrá Íslands segði, að ritskoðun megi aldrei í lög
leiða. Þess beri og að
minnast, “að ríkiskirkjan hefur ekki forræði yfir hugsunum manna og
hugmynda.”
Svava lagði áherslu á, að hér væri um skáldsögu að ræða, en
ekki sagnfræðirit eða kennslubók.
Hér væri fyrst og fremst um það að ræða, að höfundur skáldrits
hefði sett söguna í pólitískt samhengi, auk þess sem Jesús væri í
bókinni gæddur mannlegum tilfinningum.
Ef bókin væri andstyggð, þá mætti eins að því spyrja hvort
kynlíf væri andstyggð.
“Bækur dæma sig sjálfar”
Vilmundur Gylfason sagði í þessum umræðum:
Alþingi er ekki rétti vettvangurinn til að deila um, hvort bækur eru góðar
eða vondar. Þar ræður
smekkur manna. Um slíkt geta
menn deilt í dagblöðunum. Bækur
dæma sig sjálfar og Alþingi þarf ekki að hafa áhyggjur af því,
hvort þær eru góðar eða slæmar.
Hér eiga þessar umræður ekki heima, þar sem hvorki
höfundur né þýðandi geta borið hönd fyrir höfuð sér.
Yfirlýsingar biskupanna
Loks hefur sá einstæði atburður gerst, að birst hefur í blöðum, útvarpi
og sjónvarpi sameiginleg yfirlýsing frá biskupunum yfir Íslandi,
biskupi kaþólskra manna á Íslandi, forstöðumanni aðventista og
forstöðumanni Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík.
Í yfirlýsingunni fordæma þeir bókina “Félagi Jesú” og
hvetja alla heilbrigða menn til samstöðu gegn þessari og annarri ólyfjan
í prentuðu máli.
Roksala
Frá bóksölum berast þær fréttir, að eftir að hneykslunarumræður
hófust um bókina “Félagi Jesú”, hafi brugðið svo við, að bókin
tók að rokseljast, en áður var salan næsta dræm.
Er bókin nú uppseld hjá forlagi og víð í bókaverslunum.