Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Helför gegn fótbolta

Mynd af merki KSÍ

Skelfilegar fregnir hafa borist landsmönnum; RÚV mun fjalla aðeins meira um körfubolta í íþróttafréttum sínum þennan veturinn heldur en fótbolta.

Þessi hryllilega aðför að grundvelli íslenskrar menningar er óskiljanleg, en líkast til runnin undan rifjum illra afla innan Ríkisútvarpsins er svífast einskis til að rífa niður lýðheilsu landsins og alls sem aðnjótanlegt er. Handtök þessara huldusamtaka (ég vill ekki benda á neinn en óneitanlega dettur manni fyrst í hug villimennirnir í Landssambandi Hestamanna) hafa löngum verið ljós, sérstaklega eftir að RÚV fór að minnast á að til væru aðrar íþróttir en golf, handbolti og fótbolti. Auðvitað er fásinna að svo fámennur hópur nöldurseggja fái að eyðileggja skemmtun og sálarró heillar þjóðar en svona er nú komið fyrir okkur í hinum siðlausa nútíma letinnar.

Öllum viti bornum mönnum ætti að vera ljós ógnin sem lýðheilsu þjóðarinnar stafar af glataðri mínútu úr íþróttafréttatímanum. Á þessum ólgu tímum offitu og annarra lífstíls sjúkdóma ættum við að fagna aukinni umfjöllun um fótbolta í stað þess að kasta þessari glæsilegu íþrótt í skólpræsið. Eða er það kannski það sem RÚV vill? Hin myrku hulduöfl er öllu virðast ráða innan stofnunarinnar væru vís til þess að hafa slíkt á stefnuskrá sinni, að myrða börn þjóðarinnar úr hreyfingarleysi og slæmu matarræði.

Einnig virðist RÚV vilja gleyma því að Íslendingar eru fótboltaþjóð. Fótbolti er okkar þjóðaríþrótt og þjóðin hefur frá upphafi lifað í sátt með þessa tegund bolta sem sína hreyfingu. Við fáum bolta í afmælisgjöf sem barn, við lærum fögnuð með foreldrum okkar á landsleikjum og lærum vináttu í gegnum æfingar með vinum. Það er ekki hægt að slíta þjóðina frá boltanum; saga okkar og menning er samofin þessum níutíumínútna langa boltaleik. Samt ætlar örlítill, viðskotaillur hópur siðlausra manna að valta yfir þennan eðlilega part íþróttafréttanna og fullkomlega jarða þessa rótgrónu íþrótt. Það er ómögulegt að kljúfa Íslendinga frá fótboltanum og með þessari stríðsyfirlýsingu hefur RÚV lagt íþróttinni fyrsta banasárið.

Og með þessari atlögu er fokið í öll skjól fyrir áhangendur fótbolta á Íslandi. Afi minn, faðir, langaafi, allir hafa þeir notið þess að horfa á íþróttafréttir en Ríkisútvarpið undir forystu ónefndra lýðspillandi skuggaafla hrifsar þennan litla unað frá þeim og hlakkar eins og hrekkjusvín þar sem þau traðka á gildum íslenskrar menningar. Hvert eigum við að líta nú? Íþróttafréttir á Rás 1? Íþróttafréttir á Rás 2? Íþróttafréttir á Bylgjunni? Internetið? Leikir í beinni á RÚV úr hinum og þessum deildum? Stöð 2 Sport, Stöð 2 Sport 2/3/4/5? Lesa blöðin? Mæta á leiki? Það hefur verið gert ómögulegt fyrir heiðarlegt fólk hérlendis að njóta þjóðaríþróttar sinnar. Ekki nóg með að fótbolti hafi átt undir högg að sækja síðustu árin af hálfu siðblindra öfgaafla þá á nú að taka þennan síðasta virðingarvott við menningarlegt gildi íþróttarinnar af börnum og gamalmennum. Hugsið um börnin. Hvað mun verða um andlega og líkamlega heilsu barna okkar ef þau fá ekki að láta vindinn leika um nakta hárlokka sína með góðum vinum á sólríkum degi?

Það var nákvæmlega svona sem nasistar hófu ofsóknir sínar gegn gyðingum. Það er engin önnur leið til að lýsa þessum ósköpum; Það er í gangi helför gegn fótbolta.

Við getum einungis beðið góðan drottinn á himnum að færa okkur aftur þessar glötuðu mínútu í íþróttafréttatíma RÚV.

Halldór Logi Sigurðarson 23.08.2014
Flokkað undir: ( Aðsend grein , Grín )

Viðbrögð


Guðjón Ýmir - 25/08/14 08:09 #

Það á auðvitað að senda þennan pistil á Mbl og Fbl. Meiriháttar!

Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.

Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.










Muna þig?