Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Íslenskir karlmenn

Typpið

Allir menn eru jafnir en karlar eru sterkara kynið hér á landi og skulu stjórnvöld að því leyti styðja þá og vernda. Við þurfum að horfa til sögu okkar og menningar og megum ekki fara of skart í eitthvað jafnræðishjal vegna pólitísks rétttrúnaðar. Á bara að valta yfir karla og láta undan þeim sem ofsækja þá? Nei, það þarf að taka fullt tillit til karla og sýna þeim umburðalyndi, skilning og sögulega meðvitund uns þroskuð umræða hefur átt sér stað um þetta hitamál.

Engum dylst að karlar hafa haft gríðarleg áhrif á sögu okkar og menningu, sem verður ekki skilin nema menn geri sér glögga grein fyrir áhrifum þeirra. Nægir þar að nefna orð og orðatiltæki sem hverju mannsbarni er nauðsyn að skilja eins og karlmennska og að vera karl í krapinu, svo dæmi sé tekið.

Nú hafa hins vegar risið upp öfgahópar sem vilja sópa þessari sögu okkar og menningu undir teppi og ráðast á karla með hatrömmum málflutningi, að því er virðist með hatrið eitt að leiðarljósi. Við megum ekki láta slíkar ofstækiskonur níða niður allt sem okkur er kærast, jafnvel þótt þær séu líka menn. En menn verða að kunna sér hófs. Auðvitað eru til ágætar konur og sjálfsagt að réttur þeirra sé tryggður með viðunandi hætti. Hér er enginn að mælast til þess að þær megi ekki stunda sína saumaklúbba.

Við þurfum að fara varlega og kollsteypa ekki þjóðfélaginu. Og þótt konur öðlist aukin réttindi megum við aldrei gleyma hver við erum og ættum ekki að skammast okkar fyrir að viðurkenna það. Það hafa alltaf verið karlar sem hafa verið í fararbroddi hér á landi, allt frá landnámi. Þeir hafa markað og mótað sögu okkar og hefðir. Eða hvernig á að segja Íslandssöguna ef ekki má minnast á Ingólf Arnarson, Þorgeir Ljósvetningagoða, Snorra Sturluson, Jón Arason, Skúla Magnússon eða sjálfan Davíð Oddsson? Það sjá allir hversu fáránleg sú staða væri.

Karlar hafa alltaf tekið ákvarðanir fyrir alla þjóðina, líka fyrir konur. Konur hafa notið góðs af þeirra verkum og margir karlar hafa hreinlega gert hluti fyrir konur, án tillits til kynferðis þeirra. Vegna sögu sinnar og óumdeilanlegrar réttlætisvitundar karla þurfa konur ekki að hafa neinar áhyggjur þótt svo verði enn um hríð.

Reynir Harðarson 11.06.2011
Flokkað undir: ( Grín , Stjórnmál og trú )

Viðbrögð


Reynir (meðlimur í Vantrú) - 11/06/11 19:38 #

Þessi grein með for- og eftirmála hefur verið send sem erindi til stjórnlagaráðs:

Sýna má stuðning hér


Kristján (meðlimur vantrú) - 16/06/11 23:17 #

Glæsilegt, hittir okkúrat á þann stað sem hitta á. Ég er viss um að hún vinkona mín Silja Ómarsdóttir hafi hlær sig máttlausa þegar hún les þetta (enda mikil kven- og trúréttindakona að mér skilst).

Frábært allt saman!

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.