20.04.2011

Árlegt páskabingó Vantrúar

[Viðburðurinn@Facebook]

Bingó

Undanfarin ár hefur skapast hefð fyrir páskabingói á Austurvelli á föstudaginn langa og í ár verður engin undantekning á því. Við munum safnast saman klukkan 12:30 og sýna stjórnvöldum með þessum fallegu mótmælaaðgerðum hvað okkur finnst um löngu úrelta helgidagalöggjöfina.

Veglegir vinningar, bækur og páskaegg. Svo bjóðum við upp á kakó og kökur. Allt ókeypis! Öll börn fá glaðning.

Ritstjórn
Flokkað undir: ( Bingó )

Viðbrögð


AG - 20/04/11 16:08 #

Get vel séð mér fært að mæta. Hvernig hafa þessi páskabingó gengið undanfain ár?


Reynir (meðlimur í Vantrú) - 20/04/11 16:22 #

Bingóin hafa gengið vel. Veðrið hefur yfirleitt leikið við okkur en í fyrra var dálítið napurt.


Sigursteinn - 20/04/11 18:57 #

Þetta er gott og skemmtilegt framtak hjá Vantrú og hafið þökk fyrir. Ég trúi því að væri Jesú uppi í dag að þá spilaði hann með á föstudaginn.


Tommi - 20/04/11 19:06 #

Mæti með krossinn minn, heppna kanínufótinn minn, fjögra blaða smárann minn og svo auðvitað biblíuna góðu.


Dóri Sig - 21/04/11 10:00 #

Hér er myndband frá bingóinu í fyrra

http://www.youtube.com/watch?v=k31PEui7i1g


Eddi - 22/04/11 14:08 #

http://www.facebook.com/media/set/fbx/?set=a.1926437716236.2110396.1100944004

tók nokkrar myndir, betri mæting en í fyrra.

takk fyrir kökurnar :)


Þórður Ingvarsson (meðlimur í Vantrú) - 22/04/11 14:20 #

Við þökkum öllum fyrir komuna og óskum vinningshöfum til hamingju með vinningana. Takk fyrir okkur, þið eruð æði.


Matti (meðlimur í Vantrú) - 22/04/11 14:38 #

Hér eru fáeinar myndir í viðbót. Ég myndi giska á að það hafi verið um 70-80 manns á svæðinu miðað við útdeilingu bingóspjalda og myndirnar.


Ingólfur Páll Matthíasson - 22/04/11 14:52 #

[ "troll" athugasemd færð á spjallborð ]

Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.

Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.










Muna þig?