Þetta sást hjá ónefndum kennara á feisbúkk:
Skólastjórar Reykjavíkur sækja samtalsfund með prestum þjóðkirkjunnar um tillögur mannréttindaráðs Reykjavíkur um aðgreiningu á milli skóla og kirkjustarfs
Ekkert hefur verið minnst á þennan fund í fjölmiðlum. Um hvað er þetta fólk að fara tala?
Hvert svo sem umræðuefni þessa fundar er (reynist þetta allt saman satt og rétt), þá finnst mér í hæsta lagi dúbíus og fishy að einungis fulltrúar ríkiskirkjunnar fundi með skólastjórum, svo ekki sé minnst á hversu skrítið það er að skólastjórar séu boðaðir á þennan fund en ekki fulltrúar yfirvalda.
Eins finnst mér afar dularfullt að mannréttindaráð fresti ákvarðanatöku og skyndilega birtast þessar (mjög svo óopinberu) upplýsingar um þennan fund.
Fulltrúar vantrúar eru hér greinilega búnir að koma auga á enn eitt myrkraverkið. Þetta trúaða fólk er svo ísmeygilegt og óforskammað. Halda bara fund með fagaðilum, - hvílíkt hneyksli! Án okkar?
Á fundinn voru boðaðir fulltrúar Mannréttindaráðs og Fræðsluráðs Reykjavíkur en þeir mættu ekki. Hver skyldi nú vera ástæðan fyrir því - allir lasnir eða hvað? Eða eru menn bara farnir að skammast sín.
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Þórður Ingvarsson (meðlimur í Vantrú) - 28/10/10 01:49 #
Kannski eru þeir að fara tala um fermingaferðalög?
Mmmmhmmm. Jebb, altso voða saklaust alltsaman. Einmitt.