Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Ert þú í sambandi við guð?

Beint samband til einhvers

Það eru sérstök forréttindi að vera í stöðugu samband við veru sem veit allt, kann allt og elskar alla. Mér þykir það undarlegt hversu lítið trúað fólk nýtir sér þessa stöðu. Svör við mörgum þungum og erfiðum spurningum gætu ekki aðeins frætt okkur um umheiminn heldur einnig bjargað mannslífum. Það veldur mér vonbrigðum hversu illa þessi forréttindi eru nýtt.

Ef við segjum að guð sé til og hann sé í sambandi við þá aðila sem trúa á hann á réttan máta (sleppa að éta svín, kveikja ekki á ljósum á sunnudögum eða fordæma samkynhneigð), þá ætla ég hérmeð að gefa ykkur tækifæri á því að hjálpa stöðu guðs í þessu samfélagi. Ég ætla að bjóða ykkur að gera lítið úr þessum félagskap sem kallar sig Vantrú.

Svona förum við að þessu: ég hef skrifað texta og vistað hann í skránni lestumig.txt á flash lykli sem ég geymi á öruggum stað. Svo ég get nú ekki breytt textanum ef einhver giskar á réttan texta, þá hef ég reiknað út MD5 hash'ið af textanum og birti það hér:

dae71494e4c410ab87593b5393995ae7

Ef hin trúaði getur sagt mér hvað stendur, þá skal ég borga þeim aðila tíu þúsund krónur úr mínum eigin vasa (mikið fyrir fátækan námsmann) og gefa ykkur tækifæri til þess að færa sterk rök fyrir almáttugum guði (eða amk fyrir einhverskonar yfirnáttúrulegra eiginleikum).

Guð og fylgjendur hans hafa til 30 október til þess að svara og koma með nákvæma lýsingu af textanum (orð fyrir orð).

Margir gætu þá spurt sig: "Afhverju ætti guð að taka þátt í þessum skrípalátum". Ég spyr á móti, afhverju ætti hann ekki að gera það? Hann og þeir sem á hann trúa hafa til mikils að vinna og litlu sem engu að tapa. Þetta er gullið tækifæri til þess að troða sokk í munn okkar vantrúarfólks, gera okkur kjaftstopp orðvana og niðurlægja málstað okkar. Ekki nóg með það þá getið þið líka unnið tíu þúsund kall! Ef ykkur er illa við peninga þá getið þið brennt þessar krónur, gefið þær til góðgerðamála eða styrkt fátækan námsmann sem er tíu þúsund kalli fátækari.

Eftir hvað eru þið að bíða? Hendið ykkur á hnén, skellið höndunum saman, talið við Guð og græðið tíu þúsund krónur!

Kristján Lindberg 08.10.2010
Flokkað undir: ( Rökin gegn guði )

Viðbrögð


jogus (meðlimur í Vantrú) - 08/10/10 12:49 #

Mega miðlar líka taka þátt? ;)


Kristján Lindberg (meðlimur í Vantrú) - 08/10/10 16:34 #

Já... því ekki?


Agnar - 08/10/10 17:37 #

Þetta er best!


Guðmundur - 08/10/10 18:50 #

Guð er afsannaður...þetta er búið!

Við vitum að guð gerði ekki heiminn. Við vitum að Maðurinn var ekki komin frá Adam og Evu. Við vitum að hundruðir sögusagnir eru til eldri en um Jesú sem fjalla um menn sem dóu og risu upp frá dauðum. Við vitum að galdrar eru ekki til. Við vitum...


brynjar - 08/10/10 18:54 #

Það sem ég elska við Ísland er að kynslóðirnar sem trúa á Guð eru hægt að deyja út. ég held að aðeins 7% námsmanna í framhaldskólum trúa á guð. Eigum við ekki bara hætta þessum kjánaskap.


Sigurður - 08/10/10 19:17 #

         RELIGION IS LIKE A PENIS.

It's fine to have one. It's fine to be proud of it. But please don't whip it out in public and start waving it around, and PLEASE don't try to shove it down my children's throats.


Einhver - 08/10/10 21:43 #

@brynjar úr hvaða könnun kemur þetta?


Davíð Andri Jakobsson - 09/10/10 14:01 #

Hashið er:

SLOW DOWN COWBOY!


Baldur - 13/10/10 16:25 #

hvar kemur það það fram í biblíunni að það megi ekki slökkva ljós á sunnudögum?

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.