05.04.2010

Efast á kránni 6. apríl

[Facebook] [Heimasíða]

Á næsta fundi mun Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur koma og ræða um fræðigrein sína. Það er algengt að fólk hafi rangar eða vitlausar upplýsingar um næringu og hreyfingu í dag, sérstaklega þar sem fjöldinn allur af kuklurum dælir stöðugt út úr sér vafasömum staðhæfingum sem hafa engin góð sönnunargögn bakvið sig.

Ólafur skrifaði nýlega greinina "Láttu ekki ljúga að þér" á DV.is þarsem hann fór yfir 26 algengustu fullyrðingar um hreyfingu og mataræði sem eiga ekki við nein rök að styðjast.

Við ætlum aftur að hittast á Thorvaldsen 6. apríl klukkan 20.00. Komið og takið þátt í umræðunni!

Ritstjórn
Flokkað undir: ( Tilkynning )

Viðbrögð

Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.

Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.










Muna þig?