24.10.2009
Ef þú þyrftir að tala við einhvern vegna einhverja erfiðleika, hvort myndir þú velja:
a. Sérfræðing í helgibókum fornaldar sem hefur tekið einhverja áfanga sem tengjast sálrænni aðstoð. b. Sálfræðing.
Hún Kristjana Bjarnadóttir fjallar um þetta í fínum færslum á blogginu sínu: Prestar og sálgæsla og Enn um presta og sálfræðinga.
Prestar veita ekki þjónustu endurgjaldslaust. Þeir fá frekar vel borgað fyrir þá þjónustu sem þeir veita, en það eru skattgreiðendur sem sitja uppi með reikninginn.
Vandamálið er að ríkið borgar yfirnáttúrufræðingum fyrir að sinna störfum sálfræðinga. Ríkið er að borga bakara fyrir að byggja hús.
Menntun sálfræðinga ofmetin ? Skelltu þér í BS í sálfr. + cand. psych í HÍ og hugsaðu þetta svo aftur.
Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.
Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.
Eva - 24/10/09 17:46 #
Mér finnst reyndar menntun og færni sálfræðinga vera stórlega ofmetin og út af fyrir sig ágætt að til skuli vera fólk sem veitir þjónustu án endurgjalds, hvort sem það er sálgæsla eða eitthvað annað. Það sem fer í taugarnar á mér er aðgengi stærsta sértrúarsafnaðar landsins að leikskólum, skólum, sjúkrahúsum og fangelsum þar sem þessari fríu þjónustu er bókstaflega troðið upp á fólk. Ég efast um að það félli í jafn góðan jarðveg ef Saving Iceland liðar færu í skólana og biðu börnum upp á ókeypis tilsögn í umhverfisvernd og fullyrði ég þó að flestir sem eru virkir innan þeirrar hreyfingar hafa mun meira vit á umhvefismálum og meiri reynslu af náttúrunni en náttúrufræðikennarar.