Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Vantrú fékk bréf

Þetta bréf barst inn um lúguna hjá Vantrú í gær. Við viljum deila fagnaðarerindinu með ykkur.









Eitthvað virðist bréfritari hafa ruglast og sendi annað bréf á sama stað. Við munum koma því til skila.

Ritstjórn 04.06.2009
Flokkað undir: ( Kristindómurinn )

Viðbrögð


Kristinn - 04/06/09 09:21 #

Þetta er rosalegt alveg hreint. Helvíti bíður.

Ætlaðir viðtakendur þessa bréfs eru m.a. Vantrú og Davíð Þór, -í sömu andrá.

Er þá ekki nokkuð ljóst að um grín sé að ræða?

Er ég mjög hæghugsandi?


Matti (meðlimur í Vantrú) - 04/06/09 09:22 #

Það er vandamálið. Fyrir mér virðist allt þetta húmbúkk hálfgert grín en flestum trúmönnum er víst alvara! Hvernig greinir maður á milli?


Ormurinn - 04/06/09 09:26 #

hehehe fyndið að stíla bréfið á DÞJ c/o Vantrú.

Annars veit ég ekki hvort maður á að brosa eða gráta þegar maður les innihaldið.

Ég fíla annars þetta: "Frá öndverðu hefur Guð ákveðið fyrirfram hverjir sáluhólpnir verði fyrir Hans náð, en ekki eftir verkum eða áreynslu manna". M.ö.o. það skiptir engu máli hvernig ég haga mér í mínu lífi. Það er búið að ákv. fyrirfram hvort sál minni verður bjargað eða ekki. Ég gæti þessvegna orðið múslimi. ;)


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 04/06/09 10:28 #

En ef þú gerst múslimi, er það þá ekki til marks um að sálu þinni hafi verið fyrirgert í öndverðu? Láttu frekar trúrækni þína til hins eina sanna guðs staðfesta hvað hann valdi þér í upphafi. ;)


Ormurinn - 04/06/09 12:02 #

Birgir, ekki fer ég að véfengja heilaga ritningu. :o þar stendur að þetta er allt fyrirfram ákveðið. Þú veist að vegir guðs eru órannsakanlegir. Ég hef engu að tapa. Halelúja!


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 04/06/09 12:38 #

Guð hefur greinilega ákveðið í árdaga að þú værir glataður. Öll hegðun þín og viðhorf benda til þess.

Þó er ekki útilokað að þessu sé öfugt farið og þessi mótþrói þinn sé partur af plönuðu þroskaferli. Þá verðurðu kominn á skeljarnar áður en þú veist af. Dýrð sé Guði.


Hjalti Rúnar Ómarsson (meðlimur í Vantrú) - 04/06/09 14:11 #

Sáluhjálp er náð með almætti hins þríeina Guðs.

...úti sem og Gabríel :P


Hanna Gunnars - 04/06/09 19:52 #

Dásamlegt. Alltaf gott að hlæja hjartanlega - Það er hollt fyrir bæði líkama og sál. Aðeins tvennt: Hvaða grá-hvíta rúðustrikaða mynd er þetta á bls 2 og hverjum ber að þakka þessa sendingu? Sáuð þið einhverja undirskrift á þessu göfuga plaggi?
P.s. Er yfir mig ánægð með þennan fína vettvang. Þökk til þeirra sem stofnuðu Vantrúar-vefinn og halda honum gangandi (maður er ekki alveg eins einmana í lífinu eftir að hafa fundið ykkur, félagar)


Hjalti Rúnar Ómarsson (meðlimur í Vantrú) - 04/06/09 19:58 #

Hver kassi táknar þúsund manns og þessir 144 kassar tákna "hina 144000 hólpnu", sbr tilvitnunina efst á þeirri síðu.

Ég hef hingað til bara heyrt um þessa trúarkenningu hjá vottum Jehóva, en höfundurinn er líklega ekki votti.


Matti (meðlimur í Vantrú) - 04/06/09 19:58 #

hverjum ber að þakka þessa sendingu? Sáuð þið einhverja undirskrift á þessu göfuga plaggi?

Við höfum ekki grun. Bréfið var alveg ómerkt en við erum að vinna í að ná fingraförum af því (djók).


Þundur Freyr - 04/06/09 20:35 #

Merkileg hugsun, að halda að með því að vitna í biblíuna þá getirðu snúið ókristnu fólki til kristni.

Guð skrifaði biblíuna.

Afhverju segir þú það?

Af því að það stendur í biblíunni.

Hvernig veistu að það er satt?

Af því að guð skrifaði biblíuna.

Afhverju segir þú það?

[...Endurtekið þangað til heiðinginn snýst til kristni]

PS En spáið í því hversu veik manneskjan er sem trúir þessu. Mér stendur bara ekki á sama. Að vita af slíkum sjúkling í samfélaginu er fucking scary. Hvað gæti svona manneskju dottið í hug að gera (í nafni guðs btw)?


Hannes - 04/06/09 23:20 #

ótrúlegt að bæklingar með svona stríðsæsingartali séu leyfðir. Blaður um musterisriddara og myrkravald Íslams, þvílíkt rugl.


Valtýr Kári - 04/06/09 23:41 #

Ef ég á að segja alveg einsog er þá er ég nú hjartanlega sammála höfundi bréfsins. Ég er þess fullviss að myrkravald Satans (illska og dauði) er ekki að finna í ESB.

Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að ég gæti haft rangt fyrir mér en þetta er allavega mín skoðun.


Arngrímur - 07/06/09 16:40 #

Ef það er búið að ákveða "frá öndverðu" hverjir séu hólpnir, til hvers eru þeir þá að leggja það á sig að skrifa þetta bréf?


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 07/06/09 19:09 #

Svo menn geti fundið það hjá sjálfum sér að þeir séu hólpnir og farið að hegða sér eftir því.


Davíð - 10/06/09 19:23 #

Áhugavert bréf.

Finnst eiginlega merkilegast að senda Vantrúarmönnum hvatningu þess að kristnir menn sameinist gegn Islam.

Flestir trúa að þessir 144.000 séu af hverri ættkvísl Ísraels eins og segir í Opinberunnarbókinni. Vottar Jehóvha trúa að það eigi við um þá. Afturámóti þá trúa Vottar Jehóvha ekki tilvist helvítis.

En ætli þetta sé ekki bréfið sem guðfræðingurinn átti að fá og ykkar bréf sé í Davíðs umslagi? Bara smá pæling þarna.

Takk fyrir að birta þetta bréf, er afar merkilegt.


Stebbi - 26/06/09 00:17 #

Það er bara verið að stríða ykkur með þessu bréfi...

btw að trúa ekki er trú.


Ragnar (meðlimur í Vantrú) - 26/06/09 00:28 #

Ég myndi fletta upp orðinu "ekki" , gæti gagnast þér í framtíðinni.

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.